|
|
:: mánudagur, júní 23, 2003 ::
Komum til köben í fyrradag gleymdum að blogga, jæja fokkitt. Erum hjá Birnu núna, fórum uppá Kelduna í gær og tjölduðum þessu líka fína tjaldi og sváfum svo þar með EKKERT ofaná okkur eða undir. Veiii rosa notalegt ! en erum núna heima hjá Birnu, búnir að komast í sturtu og leggja okkur aðeins sem er gott.
Birna hennti í okkur laki og sagði okkur að búa til þennann margumtalaða 5aura fána og er hann nú tilbúin :)
Það er alveg ótrúlegt hvað það er komið mikið af tjöldum á svæðið strax á fyrsta degi, og við erum bara búnir að tjalda einu tjaldi og þurfum líklegast að færa það þegar við erum komnir með fleiri tjöld, þannig að við getum nú verið öll á sama stað :)
svo erum við að vinna í því að henda inn einhverjum myndum handa ykkur ! :)
og jámms FYI þá þá tekur ca 20 - 25 mínútur að fara með lestinni á milli "köben" og "roskilde" svo þarf að taka taxa eða labba eða strætó´á tjaldstæðið sjálft, veit ekki hvað það tekur langan tíma að labba þangað en það kostar í kringum 50 kall að fara með taxa !
Þetta er bara geðveikt :) ætla ekki að skrifa meira í bili en skrifa meira sinna, biðjum að heilsa öllum :)
5aurarnir sem eru komnir í "Danaveldið"
:: 5aur 13:24 ::
...
|
|