|
|
:: laugardagur, desember 13, 2003 ::
Hæ Krakkar!!!!
For á leikin i dag og það var fjörugt!!! En ég er ekki svo hress i dag. Var á jólahladborð i gær með Bjössi og vinnuni hans var að bjoða alla á sama deild og han. Það var fjörugt....... fritt vin og svo eftir það forum við aðeins i bæin að skoða. Forum til Hresso þar sem Gaui er að vinna i kvöld en þar var ekki mikið með folki svo við forum heim frekar snemma. En svo i morgun þegar ég vaknadi gat ég ekki gera neitt. Nenner ekki læra og ekki drekka bjor og Bjössi er að reyna að hella bjor i mig allan timan svo að ég myndi lifna við en það virkar ekki i dag. Á eitt prof eftir næstu viku i Computer Architecture. Og það er svo lélegt og helling að lesa i það. Kvernig einkver smá pinu drasl virkar i tölvunni uhhuuuuu..........
En ég er buin að tina köttin min........... hon kvarf sidustu nott þegar við kom heim frá fylleri i bæin. Hon for ut á svalirnar og bara kvarf. En held að hon kemur tilbaka eda svo alls ekki. Er buin að kalla á henni ut um allt hérna kringum Unzanum en engin kissi er ég buin að sjá i langan tima. Vill fá henni tilbaka svo ég get kura mér með henni aftur. Traci er lika að leita að kissan en það hjápir ekkert held ég. það er nog Traci sem er buin að reka kissan á hurdin. Snyft...... þetta er ekki gaman. Hon er buin að fylgja mér runt Islands sidan ég kom hingad. Fekk hana af fyrriverandi vinnuveitandi min af þvi að þau var að svæfa hana. Engin langadi i henni og hon var svo ung og sæt að ég fekk hana i stadin. Sidan það er hon buin að vera felagi min ;)
Jæja, ekkert gaman að gerast nuna. Toggi er hérna með Bjössi og drekkur og skipuleggur sumarferdin 2004. Við erum að fara til Hroaskeldu og svo eina tur til Finnlands að hitta fjölskyldan min. Hlakkar svo til að sjá þeim nuna. Litli frændi min var i adgerdi vikunni og allt gek fint hjá honum. Han kom heim dagin eftir og er eld hress nuna heima hjá brodir min. Mamma er buin að kvarta helling þegar ég ekki kemur heim nuna i jól en ég verd að vinna og hef ekki peningar að fara heim. Er að hugsa um að fara i vor lika ein ef ekki Bjössi get koma með þá, en við sjáum bara til.
Langar að legja mig undir sæng og bara sofa..... mmmmmmmmmmmm Nenner ekkert lengur i dag og svo á morgun erum við að fara að sækja jólatré blääää.......
Goða Nott og sweet dreams
:: Voffia 22:59 ::
...
Wheeee ..... Ég fann skondna mynd af mér .... :D

Sem er gott ... :D
:: Björn Ágúst 22:16 ::
...
Síðasti leikurinn á árinu búinn. Binni farinn á djammið og ég þarf að vinna í kvöld... hmm... greinilega ekki ég sem er að gera það gott í kvöld. Vinnan er nú samt bara frá 24:00-03:00 þannig að það getur vel verið að maður gerir e-ð eftir vinnu. Veit að drengirnir eru að fara að sötra bjór og horfa á boxið heima hjá Davíð, Grjóna og Magga. Gæti vel verið að maður kíki þangað.
Bjössi er allavega að fara að reyna að gera e-ð, hann er ekki enn hættur að drekka síðan á leiknum þannig að ég spái honum ekki langlífi í kveld... hehe
Binninn er að fara til Kef City (a.k.a. Silfiss II) í kvöld á vinnuskrall. Grunar að Binni litli verði alveg svart ölvaður og hress í nótt :D Binni minn... stingdu nú undan einhverju súkkulaði ógeði og brundaðu í sætið á Honduni hans :D Skilaðu þessu líka frá mér = körfubolti sökkar !!
Fórum á leik HK og FH áðan og leikurinn var ágætur, við unnnum 30-28 en þessi leikur skipti engu máli þar sem við erum komnir upp í úrvalsdeild en FH þarf að vera í sama riðli og stórliðin Breiðablik og Þór ;) Grunar að það verði bara barátta á milli FH og Víkings í þeirri deild. En tja... maður þarf ekkert að spá í því fyrr en eftir áramót.
Spá í að fá mér einn kaldann og kíkja svo í vinnuna... cya
:: Gringo 20:35 ::
...
Við unnum :D

Það eru komnar myndir
:: Björn Ágúst 20:14 ::
...
:: föstudagur, desember 12, 2003 ::
Nú er komin ný könnun neðarlega á vinstri væng síðunar. Vinsamlegast takið þátt :)
Hér er einnig lokastaðan í síðustu könnun

Njótið vel
:: Björn Ágúst 15:35 ::
...
:: fimmtudagur, desember 11, 2003 ::
Jæja, þá er stutt í Laugardaginn !! Leikur við FH og svo það sem búið er verið að bíða eftir, fyllerí....fyllerí....fyllerí(lalalala) ! Kef City með vinnufélögum og svo vill svo skemmtilega til að Jóhanna er að vinna þarna á Kastró um kvöldið, skemmtileg tilviljun ! Ég fór í Kef City og þessi bær leit ekki svo ílla út(kvenmennirnir sko), þannig að manni lýst bara vel á þetta. Kallinn er kominn með "virkt" sjónvarp í herberginu, er þar í augnablikinu að horfa á Skjá 1, djöfuls snilld !
Hafiði þið það gott öllsömul og kiss kiss..........
p.s Ég VANN Bigga í Fifa 2004 í xboxinu !!!!!!!!!!! Ég vann...ég vann.....ég vann......ég vann ! Biggi tapaði....Biggi tapaði.....Biggi tapaði !
Sjáumst
:: Brynjar 23:41 ::
...
jæja, þá skal þessi dagur brátt ljúkast... ég er búinn að vera geðeigt góður í dag marr, fór til ömmu og lagaði hjá henni útiljósið milli 18-19, fór svo aftur í vinnuna eftir nett wisky glas og kleinur, kláraði hér það mesta sem hægt er, var svo allt í einu alls ber, eins og kræki ber, ég er ekki squer, því nú ég hættur er.
:: Ztebbsterinn 22:38 ::
...
Hey, strákar, það er leikur núna kl.20:00 hjá stelpunum okkar í Kaplakrikanum gegn FH...... allir að mæta!!!!!!!!!1 ég get það samt ekki, er að djobba ......... :/........ :Þ
:: Ztebbsterinn 19:57 ::
...
Vaaaaaá ... ég bara varð að sýna ykkur þetta
Traci verður höfð inni um áramótin ;)
:: Björn Ágúst 17:07 ::
...
Gleðilegan dag ... Nú ætti jólafílingurinn að vera kominn í einhver ykkar og í tilefni þess ber mér skylda til að deila þessu yndæla jólalagi með ykkur.
Njótið vel.
:: Björn Ágúst 09:35 ::
...
mmmmmmm.... Tuborg julebryg...... úfff. Þetta er líklegast eitt það besta við jólin.. fleirri tegundir af bjór! Ég er búinn að vera að smakka nokkra jólabrjóra núna síðustu kvöld og ég er alveg á því að Tuborg er sigurvegarinn... enn og aftur. Julebryg er bara snilldar bjór og ekkert annað. Þetta er alveg perfect bjór til þess að sytja bara með í góðu tjilli, ískaldur og sveittur í gleri og sötra hægt og rólega... mmmm
Ég er búinn að vera að vesenast uppí íbúð í kvöld, núna er hún bara að verða reddí fyrir utan það að það vantar um 60cm af gólflista (urrrrrrr) og svo bara að þrífa á morgunn. Útlendingurinn sem er að fara að leigja af mér (er frá Vestmannaeyjum) flytur svo inn á föstudaginn. Þið getið varla trúað því hvað mig langar mikið að flytja bara inn sjálfur ... ugh.. næsta sumar verður af því og vá hvað mig grunar að það verði nice sumar !
Dösterinn fékk smá jólagjöf í dag. Fór í Nesradíó og lét setja í hann þjófavörn. Það hefur verið brotist inn í 2 bíla hjá mér og reynt að brjótast inn í þann þriðja þannig að ég tek ekki áhættu á því að það sé að fara að gerast aftur! Núna þarf ég líka ekki að opna hann með lykli sem er snilld... þoli ekki að vera með allt frosið og tómt vesen !
Ég og Bjössi tókum gott HTML hakk áðan og löguðum bloggið okkar töluvert... núna er hægt að skoða gömul blogg og vita hvað maður er að skoða. Erum e-ð að spá í að ráðast í það að breyta lookinu hér alveg frá grunni en gerum það líklegast ekki fyrr en við erum búnir að setja upp http://binnamenn.hk.is ;)
mmmm... búinn með 2 julebryg, þetta rennur niður eins og vatn. *burp* <---- smá Hómer fyrir Bjössa.. hehe
well... gott í kveld...
p.s. Stebbi, mæli ekki með þessari aðferð til að ná í einhvern heim. Sá eini sem vildi koma hjá mér var Binni.. vonandi gengur þér betur (ekki það að Binni sé slæm veiði, bara ekki alveg það sem ég var að vonast eftir) ... hehe
:: Gringo 00:54 ::
...
:: miðvikudagur, desember 10, 2003 ::
jæja, þá er fyrsti langi "vinnu"-dagurinn búinn (en eins og margir vita þá er ég að dútla annarstaðar á kvöldin svona venjulega). Hann gékk bara svona stór~slisa~laust fyrir sig, ég vaknaði í morgun kringum 7:26 leitið, labbaði framm á gang og þá lá hann Guðni minn fyrir framan sjónvarpið, þá hafi hann sofnað yfir því og þar sem að hann var ekki að vinna í dag, þá leifði ég honum það. Það er eitthver stress andi hérna í loftinu á verkstæðinu, jólin að koma og allt þarf að gerast, :Það er ekkert svo spennandi að vinna undir svoleiðis pressu, þannig að maður leiðir það bara frammhjá sér. Annars var þetta ágætt núna í kvöld þar sem ég var sá eini sem nennti að vara eitthvað frammeftir, þá fékk maður frið... en á morgun skilst mér að ég verði ekki einn.
Villtu diss, kúkur og biss.. ..góða nótt
ps. ég sef einn, einmanna í stóru rúmmi, stelpur hringiði í mig.............................
:: Ztebbsterinn 23:11 ::
...
Fúff ... þetta er eitthvað sem ég myndi ekki vilja lenda í .... osseisei nei ...

:: Björn Ágúst 10:13 ::
...
Það verður fjör hjá mínum til jóla, yfirmanni mínum datt það snjallræði í hug að við ynnum hér frá 8:00 (eins og venjulega) til svona 22 eða 23:00, og fá þá frí milli jóla og nýárs.... "það er bara allt fullt af bílum hérna sem væri gott að klára fyrir áramót"..... blablabla :Þ En jæja, maður verður þá allavega ekki á kúpunni yfir jólin ;)
Stemmari á Laugardaginn, ekki smurning ;D (síðasta og þann næsta)
:: Ztebbsterinn 08:28 ::
...
:: þriðjudagur, desember 09, 2003 ::
lagg... Eftir mjög slappann dag er ég kominn heim til Bjössa og uppí sófa þar. Erum að horfa á National Lampoons Thanksgiving e-ð bull.... Alls ekki jafn góð og hinar national lampoons myndirnar, það er alveg á hreinu !! Þetta er alveg ömurlega slöpp mynd í raun.. lítið annað að segja um hana. Bjössi er að lagga gríðarlega hérna, er að dotta uppí sófa og ekkert gaman af honum í kvöld. Ég er nú ekki búinn að vera neytt rosalega hress í dag sjalfur þannig að ég get víst e-ð lítið verið að bögga aðra.
Það sem er helst að frétta af Binnamönnum er það að að stjórn HK ætlar að bjóða okkur frítt á leik HK og FH núna næsta laugardag. Þetta er síðasti leikurinn á árinu og sjónvarpsleikur í þokkabót þannig að við ætlum að klára árið með stæl !!! Trommur, lúðrar, Bibbi Tíkall, gleði og stemming !!! Þetta er leikur sem við verðum að vinna og það mun vera geggjuð stemming í húsinu, það er alveg á tæru. Núna er síðasta tækifærið til að missa sig á handboltaleik á þessu ári.
Annars er ég bara að spá í að lagga hér áfram, Binni og Ómi fara að koma og Peggó var að mæta, eins og vanalega settist hann strax fyrir framan tölvuna og fór að specca pr0n ;) Held að BangBus hafi verið fyrir valinu í þetta sinn, allavega sé ég gaur að taka spidermonkey í aftursæti á sendibíl. Kíki á hann eftir smá... ef það er bóner... þá er Peggið goner.. hehe
tja... er að spá í að halda bara áfram að lagga og koma mér svo heim undir sæng (anybody want 2 join me?) :D
:: Gringo 20:38 ::
...
Nú voru mér að berast fréttir þess efnis að 5aurinn okkar hann Kiddi Rokk væri orðinn pabbi. Hann og Lára konan hans eignuðust ungan dreng kl 14:28 í dag, þann 9. desember 2003. Hann var 15 merkur og 52 cm.
Vill ég hér með óska þeim til hamingju fyrir hönd 5aura og Binnamanna ...
Við bíðum spennt eftir myndum :-D
:: Björn Ágúst 17:09 ::
...
Myndirnar sem Gréta tók eru loksins komnar á netið (e-ð verður maður að gera þegar maður nennir ekki að sofa)...
http://www.5aur.net/myndasafn/album30
:: Gringo 01:41 ::
...
:: mánudagur, desember 08, 2003 ::
ok.... það að detta vel í það kvöldið áður en maður á að mæta í fjölskylduboð klukkan 11 um morgun er e-ð sem ég mæli bara ekki með !! Þetta er búið að vera alveg hræðilegur fucking dagur. Ekkert smá súr dagur.. byrjaði auðvitað á því að ég var dreginn í þetta matarboð þar sem ég sló í gegn fyrir einstaka fegurð og ferskleika... NOT !! Ég mætti þarna við fögnuð bræðra minna og fékk auðvitað strax comment um hversu ferskur og hress ég væri (kaldhæðni dauðans). Ég fann mér gott sæti í sófanum og var þar eiginlega allann tímann... stóð upp til að fá mér að éta og that´s it. Eftir að þetta boð var loksins búið hélt ég að ég væri að fara heim.... boy was I wrong !! Ég var ekki á bíl þar sem ég var frekar langt frá því að vera í ökuhæfu ástandi. Ég var því neyddur til að fara með mömmu og pabba í LHÍ (Lista Háskóla Íslands) þar sem systir mín var að sýna verk sem hún hafði gert. Það var ekkert að því að kíkja á þetta verk, systir mín er flottur listamaður og ég kann mjög vel að meta það sem hún gerir. Vandamálið var það að það voru auðvitað hellingur af verkum þarna sem voru ekki eftir hana sem mamma og pabbi vildu skoða líka. Eftir þessa ferð spyr ég bara.... hvað er list og hvað ekki ?!??!?!? Ég sá t.d svínsblóð leka niður vegg og 2 rotnaða gullfiska (gríðarlega gaman að skoða þannig þegar maður er þunnur). Þetta voru s.s. bæði listaverk.... ég er bara ekki enn búinn að fatta þetta, gott að vita samt að maður geti farið í háskóla til að læra e-ð jafn fróðlegt og þetta !! Núna vil ég taka það fram að allar stafsetningar og málfræðilegar villur í skrift minni er list og ég er að vinna í umsókn um að fá penig frá ríkinu sem starfandi listamaður. Eftir svínsblóð, gullfiska og sýru var stefnan loksins tekin heim. Ég gat nú bara slappað af í einhverjar 30min af því að ég var að fara á leik Breiðabliks og HK í handbolta. Sá leikur var massa súr og við rétt náðum að vinna helvítis Blikana með einu marki... nenni ekki að skrifa um hann þannig að þið verið bara að fara á www.hk.is ;)
Farinn að lúlla....
:: Gringo 00:29 ::
...
:: sunnudagur, desember 07, 2003 ::
einn og svo tvemur fyrir neðan þá var það víst ég sem var að singja einsöng...... hvar eruð þið samt HK telpur mínar?
:: Ztebbsterinn 00:33 ::
...
|
|