|
|
:: fimmtudagur, desember 25, 2003 ::
Gleðilega Hátið!!!!
Nuna er allir saddar og ánægdar með gjafirnar. Þetta er fysta íslennska jólin min og það var upplyftandi og gaman. Fekk marga fina gjafir af Bjössi og fjölskyldan hans, meira en ég átti von eftir. Langadi samt að vera heima hjá fjölskyldan min en maður fær ekki alltaf það sem maður vill :( En myndi samt ekki vilja vera an Bjössi á jólin. Han er allt of mikið krutt til að vera an lengri tima. Allir samála ekki það er ég viss um :)
Hafiði það gott og sjáumst hress og kåt fjotlega (hehehehehe)
5aur #15
:: Voffia 02:12 ::
...
:: miðvikudagur, desember 24, 2003 ::
Formaður Binnamanna og 5aur #2 óskar ykkur öllum gleðilegra jóla !!

Muna bara... jólin eru tími til að éta, drekka og láta sér líða vel ;) Að reykja smá jóltré er ekkert verra líka ;) ... hehe...
Merry X-Mas and a happy new beer !!
:: Gringo 10:46 ::
...
:: þriðjudagur, desember 23, 2003 ::
Var að fá frumsamið rapp jólalag frá M.C. Jóla sem er víst næsti Eminem okkar Íslendinga eða... tja... hann er allavega hvítur.
Yo, Yo, Yo, Yo, DJ þeyttu skífunum, því jóli er kominn hingað niður úr hlíðunum, MC Jóli, það abbast enginn upp á hann, því það var hann sem vann leppalúð’í sjómann.
Skífuþeytir kom fjórtándi og síðastur, á aðfangadag hann mætti heldur byrstur, því enginn skór var út í glugga, svo hann hélt inn í húsasund með skugga,
og hitti þar MC Jóla, saman þeir stofnuðu rappsveitina: J – Ó – L – A –skraut, tóku nokkur lög, voru svo horfnir á braut.
Skífuþeytir is coming to town, MC Jóli is coming to town, Skífuþeytir is coming to town, MC Jóli is coming to town,
Tóku nokkur lög saman á jóladag, þeir voru góðir, enda þetta þeirra fag, Skífuþeytir þeytti skífunum, en MC Jóli beytti raddböndunum.
Saman voru þeir hið heilaga tvíeyki, ekki einhverjar prímadonnur stúttfullar af meiki. Tóku fyrirmyndirnar til 2pac og Ruben, og Bölle Bob sem kemur frá Köben.
Þú hugsar kannski: ,,jóla-hvað, þessir sveinar geta ekki verið betri en það, að kunna nokkur ljóðspor.” en við getum gert meira, vantar bara þor.
Jóla-Hiphop glens og gaman, alltaf fjör að dansa saman, Jólaölið sullum við í okkur, Svo ekki þekki okkur maður nokkur.
Jólastemmari og gleði er hér í góðum gír. Ég er að vísu ekkert að fatta það að í dag er Þorláksmessa... damn... Ég er samt alveg að fatta af hverju ég er ekki kominn í jólafílingin, ég er ekkert búinn að heyra Jólahjól með Stebba Hill og Sniglabandinu. Þetta er alveg agalegt ástand !! Ég er núna, as we "speak" að surfa netið í leit af laginu, I NEED IT !! Það eru ekki jól án þess að sjá Stebba Hilmars eins og mongó, með brodda og í ógeðslegum snjóþvegnum gulrótargallabuxum að reyna að dansa fyrir framan jólahjólið sitt. Ég lennti aftur á móti í Helgu Möller live um daginn... alveg magnað... jólin koma og þá er hún mætt á svæðið. Við strákarnir ætluðum að njóta þess að vera þunnir og fara á Fridays í mat og bjór. Um leið og við vorum búnir að pannta kemur ekki Möllerinn á sviðið í Smáralimnum og byrjar að góla... jésús ... fær fólk ekki leið á þessari konu !?!?!?!?
Er ekki stemmari í fólki og 5aurum að skella sér á Hard Cock (5aur) í kveld í borgara og bjór (jólabjór auðvitað) ??
Anyways.... vinna vinna og reyna að ná mér í Jólahjól til að hlusta á ;)
:: Gringo 15:00 ::
...
Jæja .. þá er dagurinn sem allir borða SKÖTU runninn upp >( Hvernig getur gólk lagt sér þennan óbjóð til munns ? Það er eitthvað sem ég skil ekki. Í mötuneytinu hérna í vinnuni er allavega verið að brugga einhvern illaþefjandi skötuóbjóð, en það kemur þó ekki að sök, þar sem við ætlum nokkrir í Kringluna að fá okkur burger eða eitthvað mönnum bjóðandi. Ég er viss um að hundurinn minn myndi ekki einu sinni vilja éta þetta.
Ztebbsterinn var einnig spyrja mig hvort ég ætlaði að mæta á hið árlega Hard Rock lagg í kveld. Þar sem ég hef verið í afmælisveislu á Þorláksmessu undanfarin ár hef ég ákveðið að slá til og kíkja á HC í kveld. Það verður eflaust fjör.
Skv mbl.is er von á að við fáum hvít jól í þetta skiptið. Ég vona að það verði af því :)
Ein skemmtileg frétt hérna í lokin. Ó hve glaður ég er að vera ekki ameríkani ... ;)
Jólakveðja
:: Björn Ágúst 11:31 ::
...
:: mánudagur, desember 22, 2003 ::
prumba?... nei hafa hægðir..
Góðan daginn.. mánudagur, hress og kátur í dag, þíðir ekkert annað.. Helgin var góð og það er mjólkin líka.. Addí á föstudaginn, good shit.. á laugardeginum vantaði eitthvað að gera þannig að ég áhvað að halda teiti, góð mæting, og vill ég sérstakleg þakka þeim stelpum sem komu fyrir hönd HK kvenna, TECÍLA!, og Þór fyrir að taka til áður en hann hélt niður í bæ.. Í gær fór ég í ELKÓ, hitti Gaua júl, hann reyndi hvað mest hann gat að selja mér búðina. Ég fjárfesti nú samt í "Back to the future" safninu, sem eru snilldar myndir, horfði á 1 og 2 í gær með fullt af sniðugu aukashiti..... baam baam baamm, ba ba ba ba ba bamm, ba ba bamm darí bíbbaaaa bbí búúddú búúúúú......... hehe
Góðar stundir..
:: Ztebbsterinn 08:28 ::
...
:: sunnudagur, desember 21, 2003 ::
úfff.... þá er þessi helgi búin og hún var alveg nokkuð góð. Helgin byrjaði á fimmtudegi hjá mér þar sem ég náði einhvervegin að enda sem bílstjóri hjá strákonum sem voru að drekka. Ég er enn að reyna að ná því af hverju ég endaði sem driver en það varð allavega til þess að ég fór ekki að sofa fyrr en um 5 um nóttina. Föstudagurinn var svo til 5-6 eða e-ð og laugardagurinn til um 4. Ekki slæmt (nema ekki mikið sofið).
Veit ekki til þess (ennþá) að það hafi gerst neinn skandall um helgina... ef einhver þarf að játa e-ð, bring it on ;) Binni var t.d. frekar svartur um helgina og það er allt of langt síðan að ég og Binni vorum að tjútta saman þannig að við tókum bara 2 kvöld í röð og skemmtum okkur konunglega ! Held að Binni hafi nú farið einn heim bæði kvöldin (þrátt fyrir að ég hafi boðist til að kúra með honum á laugardaginn... hehe).
Þessi helgi var svo enduð með því að heima hjá gamla settinu var jólaboð í dag, ekkert betra en að vera þreyttur/þunnur í fjölskylduboði með her af litlum krökkum... NOT !
Dagskráin í kveld... hanga í manager, slappa af, sötra bjór..... love it !
:: Gringo 21:33 ::
...
|
|