|
|
:: föstudagur, janúar 02, 2004 ::
Gleðilegt ár !! Ég vil nota tækifærið og þakka ykkur flestum fyrir árið sem var að líða... vonum að þetta ár verði jafn gott ef ekki betra ;)
Þetta ár verður í okkar minni sem árið sem að Binnamenn fóru almennilega í gang. Þrátt fyrir að það hafi ekki komið fram í þessu annars önurlegu pólitíkusarskaupi þá var það samt einn af helstu atburðum ársins... ekki satt ? ;)
Ég er staddur hérna í vinnuni alveg gjörsamlega tjónaður og í raun bara alveg í drasli ! Líkaminn á mér er enn að jafna sig eftir keppnisdrykkju og Íraks-stemmara í garðinum hjá mér. Þessi áramót voru alveg stórgóð og enduðu ekki fyrr en rétt fyrir hádegi á nýarsdag hjá hörðustu 5aurum :D Ég og Binni tókum áramótin með style og það fór held ég ekki framhjá fólki sem býr í næsta nágreni við mig að það voru nóg af flugeldum í garðinum okkar ;) Svaðalegar bombur og ekkert sparað... fólkið í næsta húsi kom yfir í garðinn minn til þess að horfa á okkur sprengja... hehe
Ég er að spá í að hætta að skrifa núna... heilinn er ekki að virka og því varla hægt að búast við gáfulegum hlutum frá mér í dag.....
sjóóó
:: Gringo 12:01 ::
...
:: miðvikudagur, desember 31, 2003 ::
Gaaaarg ... kuldi ... fúff ...
Var að koma af brennuni í Kópavoginum. Var þrælfínt ... fínasta flugeldasýning og svona :)
Var fyrr í kvölt í mat hjá systur minni. Við fengum Svínasteik, kjúklingasalat og fleira gúmmelaði og ís á eftir ... namm.
Nú er ég bara að taka mig til fyrir skaupspekk hjá Bigga :-)
Allavega, Gleðilegt árið öll sömul og takk fyrir það gamla.
Sjáumst vonandi sem flest í kveld.
:: Björn Ágúst 21:52 ::
...
:: þriðjudagur, desember 30, 2003 ::
Áramótin eru að koma og við piparsveinarnir erum að spá í að elda saman um áramótin. Ég er búinn að vera að spá mikið í þessu og núna er kominn "matseðill" fyrir kvöldið og hér kemur hann:
Forréttur: Rjómalöguð humarsúpa
Aðalréttur: Eldsteiktar lambalundir í rjómasósu Ofnbakað kartöflugratín Hrísgrjón
Eftirréttur: MS ís (auðvitað) með sósu og ávöxtum
Þessu verður auðvitað skolað niður með góðu rauðvíni.
Stefnan er að hittast svo öll á brennuni og fólki er velkomið að horfa á skaupið heima hjá mér líka. Stefnan er svo sett til sambýlismannana Stefáns og Guðna í sprell fram á nótt, held ég, eftir að við erum búnir að sprengja Vallartröðina í heild sinni til tunglsins.
:: Gringo 18:55 ::
...
:: mánudagur, desember 29, 2003 ::
Sæl og blessuð öll sömul. Ég hef í raun ekkert merkilegt að segja, en fann fyrir þeirri löngun að tjá mig aðeins..
Ég ættla að byrja á því að óska öllum gleðilega rest og farsældar á komandi ári..
Það var nett teiti hjá okkur Guðna á föstudaginn síðasta. Þegar ég kom úr mataboði til minnar heima kynna um klukkan 22:07 leitið, voru komnir um 4 til 5 gestir, svo var bara eins og það hafi komið rúta með lið, því að fyrr en varið var íbúðin pökkuð, Guðni hafði gróft manntal og taldi hann um rétt tæplega 40 manns í þessari annars nettu íbúð :D.. ég held að það sé aðeins of mikið, enda var slatta hellt niður :/ en smá plús í dósa og flösku söfnun ;) hehe... ..og vill ég þakka frammlagi HK stúlkna til þessa teitis, sem hefur núna stækkað ;)
Laugardagurinn var slakur hjá mér, leigði mér DVD og slakaði á, en svo kom að því að taka til eftir teitið.... úff Svo kíkti ég út í Garð, eldaði með Gaua og Addí, spilaði MR & MRS, horði á "Drepast hart 3" og keirði svo heim, sofa kl 04:00
Sunnudagur (í gær), verslaði mér taugrind (sökum þurkaraleysis) og óhreinataus körfu... fór í bíó kl.20:00 á "Loony Toons", og í þeirri svipan er ég labbaði inn í bíóið, hringdi vinur minn í mig og bauð mér á "Lord og the rings" kl.23:00. Þannig að eftir "Loonyið" hélt popp átið og kók þambið áfram til að verða 03:00... sofa kl.04:00
Mánudagur (í dag). vaknaði kl.13:00... rassgat, allt snjóað til fjandans... vinur minn sótti mig og ég fór að "spellast" aðeins.... át áðan hér fisk með raspi hjá mömmu og pabba og er núna að pikka úr mér vitglóruna...
..ættla að fara að fynna mér eitthvað skemmtilegt að gera, góðar stundir :D
:: Ztebbsterinn 19:22 ::
...
LALALALALAALLALAALAAALALALAL...
BARA AÐ MINNA Á FLUGELDASÝNINGU HK Í KVÖLD Í DIGRANESI KL. 20.00 !!!!!!!!!!!!!!!!!
:: Brynjar 16:31 ::
...
snjór snjóg og meiri snjór !! Dösterinn sannaði sig sem jeppa í dag... bombaði í gegnum skafla sem náðu honum yfir framljós... djöfulsins nagli !! Hvað er samt málið með þetta veður ?? Ég rumskaði um 9 í morgunn og kíkti út og þá var bara smá skafrenningur, ekkert annað. Svo núna rétt fyrir 11 þá er bara allt komið í steik, bílar fastir hér og þar, kringlumýrabrautin aðeins fær jeppum(og Dösternum) og allt í steik! Mikið rosalega er samt gama að ralla í þessari færð !! Ég var með bílinn gjörsamlega í botni alla leiðina og hanbremsan var mikið notuð ! ;)
Er ekki við hæfi að skrifa aðeins um síðustu helgi ? Föstudagurinn var rólegur hjá mér, ég var að vinna á Hressó þannig að ég stoppaði bara stutt hjá þeim sambýlismönnum Stefáni og Guðna. Það var teiti í gangi þar og fínn stemmari... sem ég varð auðvitað að yfirgefa vegna þess að ég var að fara að vinna :S Það var víst alveg massa mikið drukkið þarna og kanski þess vegna sá maður aðeins hluta af hópnum í bænum ;) Vinnukveldið var rólegt hjá mér og það endaði nú bara með því að ég náði í Binna og skutlaði honum heim.
Laugardagurinn var tekinn með style hjá mér og Binna... það var vaknað, farið í ríkið, verslað í matinn og meðlæti með kveldinu og svo tekið smá tan session. Ákveðið var að skella sér í pottinn um kveldið og var sú ferð tekin með style (eins og allt kvöldið í raun) Binni kom með osta og rauðvín og til þess að jafna það tók ég mig til og súkkulaði húðaði jarðaber :D Kvöldið byrjaði nú samt rólega, sátum bara við drykkju og spjölluðum fram á nótt. Þetta voru s.s. ég, Binni, Ómar og Sigrún sem þarna voru, svo kíkti Peggó á okkur og vinkonur Sigrúnar. Við enduðum þetta auðvitað með því að skella okkur í pottinn með kertaljósi og huggó stemmara. Peggó kom alveg 100% bæði með setningu kvöldsins ("ég er án efa kynþokkafyllsti feiti maðurinn hér í kvöld") og move kvöldsins þegar hann flaug gjörsamlega alveg hræðilega á hausinn þegar hann ætlaði að standa upp úr pottinum. Þetta "fall" hjá honum var snilld... hann var alveg í svona 5-10 sek. að detta oglætin... shit !! Við sem vorum í pottinum vorum næstum köfnuð úr hlátri ;) Þetta kvöld var endað snemma um morgunin með því að ég og Binni ætluðum að horfa á LOTR II... það dugði í um 5min held ég... þá vorum við báðir dauðir.
Dagurinn í gær var mjööööög þunnur. Kíktum á Fridays að éta morgunmat (klukkan rúmlega 17:00) og síðan var stefnan tekin á flugeldasölu HK. Ég og Binni vorum að vinna þar til um 22 í gær sem sölumenn ársins (eins og alltaf). Endilega kíkið nú við og styrkið HK með því að kaupa flugelda !! Það sem er gott fyrir HK er gott fyrir Binnamenn :D
Jæja... ætla að halda áfram að vinna... og kíkja út um gluggann og hlægja af fólki sem er fast hérna í síðumúlanum :D
sjóóó
:: Gringo 12:29 ::
...
|
|