|
|
:: laugardagur, janúar 24, 2004 ::
Ég bara varð að blogga hér samtali sem ég átti við Peggið áðan....
Ég: Varstu að djamma í gær Pegg: nei, eða jú, ég var á bjórkvöldi. Þetta var samt svolítið skrítið Ég: skrítið ? Pegg: já, ég man eftir því að hafa verið að troða í grímuna á mér þegar ég kom heim (éta) og síðan vaknaði ég bara í sófanum með buxurnar á hælunum.
HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAAA !!!
:: Gringo 14:49 ::
...
Jæja laggbræður og systur.. voðalega eruð þið Hommaleg(þetta var fyrir Binna) langt síðan að marr nennti að blogga.. ég gleymi alltaf þessum passwördum hægri vinstri enda er nóg til af þessu.. ég held að ég sé með ein 6 hérna í vinnunni á mism. kerfi og annað.. þetta er ótrúlegt. Langar að segja ykkur líka frá því að ég smellti mér í bíó í gær. og það er ekki frásögu færandi en að Tom Cruise stendur alltaf fyrir sínu .. Þetta var semsé The Las Samurai og hún kemur skemmtilega á óvart.. ein besta mynd sem ég hef séð í mörg ár ..að frátalinni Lord of the rings. Jæja.. kúkur og piss... nenni ekki að tala meira um japanska bíó mynd. Var að mæta í vinnunna á þessum ágæta laugardegi og ég held að svei mér þá ég sé með Bigga syndrome.. nú veit ég hvernig honum líður á mánudögum.. illa lyktandi.. illa súr.. illa pirraður.. illa skeindur(ég reyndar alltaf hreinn og töff) illa gómaður og allt... ég er nokkurn veginn semsé Handónýtur hérna.,. Verður að vælast.. að ég er frekar ósofinn enda búinn að lúlla í sirka 5 tíma s.l. 2 daga og mér langar heim... já .. mjér langar heim.. Gæti gefið handlegg fyrir svona 4 tíma svefn í vibbbót. Jæjæa.. Varð að blogga aðeins ..
S0gu vil ég segja stutta nú er sagan öll !!
bæbæ og pissið á ykkur
:: Ómar 11:45 ::
...
:: föstudagur, janúar 23, 2004 ::
--- Binnamenn hittast aftur á Shooters um kl 17:15 í dag ---
Planið er að hittast aftur og horfa á Ísland - Ungverjaland sem byrjar kl 17:30 þar sem skapaðist svo skemmtileg stemning í gær.
Vonandi sjáum við sem flesta Binnamenn og 5aura
:: Björn Ágúst 10:50 ::
...
:: fimmtudagur, janúar 22, 2004 ::
Binnamenn að hittast á Shooters í kvöld !
Binnamenn ætla að hittast í fyrsta sinn á þessu ári á Shooters í kvöld og halda smá "fund". Stefnan er að hittast rétt eftir kl. 19:00, pannta sér bjór og borgara á Binnamannaverði og ræða aðeins stöðu mála hjá okkur (kortin, síðuna o.fl.) og bara að spjalla um komandi tímabil. Ekki skemmir það nú fyrir að opnunarleikur EM er á sama tíma á risaskjá.
Er ekki kominn tími til að hittast ??
cya there !
:: Gringo 11:19 ::
...
Smá viddó til að hressa upp á daginn :D
-----> Smellið hér <----- Þú veist að þú þarft gleraugu þegar þú sérð ekki munin á keilukúlu og fótbolta... hehe... ouch !!
:: Gringo 10:21 ::
...
:: miðvikudagur, janúar 21, 2004 ::
Var að fá alveg snilldar link... endilega kíkið á hann með því að smella hér !!!
Titties´N´ass
:: Gringo 14:32 ::
...
Ja, góan gaginn...
Á mánudaginn var kominn hér jeppi á verkstæðið sem var frekar klestur að framan, þetta var nokkuð sjoppulegur bíll þannig að ég var beðinn um að rétta hann að því marki að það væri bara hægt að opna og loka húddinu, svona stórslisalaust, þannig að ég gerði það. Sagan var sú að móðir ein lánaði teingdarsyni sínum bílinn og honum var skilað svona, teingdarsonurinn var víst frekar miður sín, skiljanlega, og ekki til fjármagn né í raun grunnur fyrir því að gera almennilega við bílinn. Þegar bíllinn er tilbúinn síðla dags, kemur dóttirin að sækja bílinn með "tengdarsyninum", og hver haldið þið að það hafi verið? enginn annar en hann "ónafntilgreyndi maður", þá duttu nú allar dauðar rottur af skallanum á mér..
..fáðu þér svo netfang fíflið þitt, time is money
Annars er bara allt gott að frétta af mér, svona af því þú varst að prumpa.
C ykkur síðar-buxur..
-eftir ritskoðun var mér ráðlagt að nefna ekki mannin að nafni, en það eru vísbendingar í textanum ;)
:: Ztebbsterinn 08:23 ::
...
:: þriðjudagur, janúar 20, 2004 ::
Hæhæ
Ég fór með hana Traci í árlega bólusetningu og ormahreinsun fyrr í dag. Við áttum pantaðan tíma kl 14:00. Mættum tímanlega og komumst inn rímlega 14:00. Læknirinn byrjaði á að skoða neðri vígtönnina í hægrigóm sem er brotin. Hún spurði hvort hún nagaði ekki vel og hvort hún kveinkaði sér eða væri að nudda svæðið eitthvað. Ég sagði henni eins og er að hún nagaði vel og kveinkaði sér hvorki né nuddaði þannig að hún ákvað að gera ekkert í þessu eins og er. Sagði mér að það eina sem væri gert væri að fjarlægja tönnina, en hún vildi ekki gera það að óþörfu þar sem rótin næði svo langt niður og tönnin væri svo föst. Allt í góðu með það, verður bara undir eftirliti.
Þá kom að bólusetninguni. Hún var með nýtt bóluefni sem virkaði ekki á lifrarbólgu, en hún sagði jafnframt að það væri í lagi þar sem það þyrfti ekki að bólusetja gegn henni nema annað hvert ár. Svo sprautaði hún þessu nýja í hana og gaf henni ormatöflurnar. Hún sagði mér líka að nokkrir hundar hefðu fengið ofnæmisviðbrögð við þessu bóluefni og ég þyrfti að fylgjast með því. Einnig nefndi hún að hún yrði eflaust slöpp fram á kvöld.
Planið hafði verið að skutla henni aftur heim og fara aftur í vinnuna. Ég ákvað að fyrst möguleiki væri á ofnæmi, þá myndi ég bara vera með henni heima það sem eftir væri dags og vinna þaðan. Sem er eins gott að ég gerði. Á heimleiðinni þurfti ég að koma við uppí Breiðholti. Á meðan ég skaust út úr bílnum þar kúkaði hún og ældi í bílinn. Ég brunaði á bensínstöð og þreif bílinn og svo heim. Þegar ég var búinn að vera heima í svona 45 mínútur tók ég eftir að hún var alltaf að klóra sér í eyrunum og kjaftinum. Þá sá ég þegar ég skoðaði betur að annað augað á henni var farið að "sökkva" eins og á boxara og trýnið á henni var að blása út. Ég hringdi strax í lækninn og mér var sagt að koma með hana aftur í hvelli í sterasprautu.
Okkur var hleypt strax inn og hún fékk helminginn í æð og rest í vöðva. Læknarnir sem tóku á móti okkur sögðu að ég yrði að passa uppá að hún fengi þetta bóluefni (Novivac eða e-ð svoleiðis) alls ekki aftur og skráðu það í skrána hennar. Hún byrjaði strax að hjaðna aðeins í andlitinu og klóraði sér ekki jafn mikið.
Nú er klukkan rúmlega ellefu að kvöldi og hún er enn soldið bólgin, en klórar sér ekki neitt. Hún er rosalega slöpp og liggur bara í bælinu sínu. Ég fer og tala við hana á svona korters fresti vegna þess að ég átti að fylgjast vel með heni og að bólgan hjaðnaði.
Nú er bara að vona að hún verði hressari á morgun.
Hér er svo mynd sem þetta sést aðeins á:

:: Björn Ágúst 23:29 ::
...
Ég var að fá sent eitt viddó sem ég bara varð að setja hér inn !!
-----> Smellið hér <-----
sjóó !
:: Gringo 11:15 ::
...
:: mánudagur, janúar 19, 2004 ::
Jæja, ætli það sé ekki best að ég segji(skrifi) nokkur orð hérna inn......
Gaman að sjá að þessi kort séu að verða til, stuðningsmanna félagið mitt er að standa sig frábærlega ! Enda líka er það orðið stórt. En það er stutt í EM og á Gummi Gumm eftir að velja endanlegan hóp. Vona ég að Bjöggi fái að vera áfram en finnst það ólíklegt, því miður ! Það hefur verið gaman samt að horfa á liðið(á móti Dönunum) og þá sérstaklega Ólaf Stefánsson sem er ekkert nýtt. Nú var ég að heyra að Bjöggi hafi verið sendur einn heim. Jæja Bjöggi, þinn tími kemur og það fljótlega !!!! Þú ert einfaldlega miklu betri en þeir ! :) Ætli það sé ekki best að ég fari að sofa.....
5aura og HK kveðja,
Binninn
:: Brynjar 23:49 ::
...
Jæja ... Hér eru komnar myndir frá föstudagskvöldinu. Þær voru teknar á Gauknum í blíðskaparveðri á fallegu vetrarkvöldi .... NOT ;)
Þessi fannst mér alveg bera af :P

:: Björn Ágúst 22:41 ::
...
Slagorðakeppni Binnamanna er lokið !!
Já kæru sykurpúðar og téddlingar... þetta er búið... þetta er búið (eins og Bubbi sagði). Þessi keppni er búin að vera skemmtileg og ég get ekki annað sagt en að við höfum skemmt okkur vel að lesa yfir þær hugmyndir sem okkur hafa borist. Þrátt fyrir margar hugmyndir og sumar bara nokkuð góðar (og aðrar alveg hrottalega vondar) þá er það engin annar en 5aur #1 hann Bjössi sem stendur uppi sem sigurvegari í þessari keppni. Hann kom með þetta líka alveg snilldar slagorð sem hefu r vakið mikkla lukku:
--------> Binnamenn - Fegurðin blekkir <--------
Þetta slagorð er bara snilld og með góðum húmor (en auðvitað í bland við smá sannleika) ;) Núna er s.s. stefnan hjá okkur að byrja að búa til þessi blessuðu Binnamannakort (erum að vísu byrjaðir þannig að þetta er allt að koma). Þau fara í sölu núna vonandi á næstu dögum.
Þrátt fyrir að þetta slagorð hafi unnið öruggan sigur, þá voru nokkur mjög góð þarna á milli... hér eru nokkur dæmi:
Stebbi Binnamaður kom t.d. með þessi: Það dugar ekkert minna en hann Binna. Binnamenn vinnamenn! Vinna binnamenn þinnamenn?
Ómar kom t.d. með þetta: Binnamenn - Gleðigrísir
Sigurður Stefánsson nuddari HK með meiru kom t.d. með þessi: Binnamenn=HK-menn Binnamenn- Það erum við Binnamenn- Við Brosum alltaf Binnamenn - Og stoltir af þvi
Kristján Helgi, stuðningsmaður HK til margra ára kom t.d. með þessi: Binnamenn, bestir í búsi Binnamenn - the religion Binnamenn, bestir í hófi
Aldís kom með þetta: Binnamenn - Betri helmingurinn
Heiðursverðlaun fyrir frumlegheit fá þær Selma og Líney fyrir 2 ljóð sem þær komu með... aldrei að vita nema að þau endi á Binnamannakortum líka.... Á leikdegi miklum Binnamenn vakna, fljótir á fætur því Binna þeir sakna. Hlaupa upp í hús í góðra vina hópi, hvetja sína menn með köllum og hrópi!!
og
HK menn eiga sér stuðnigsmenn góða, það eru Binnamenn sem gera alla óða. Með brjálaðri innkomu koma í húsið, og spurja alla gesti, HVAR ER BÚSIÐ!?!?!?!?
Ég sem formaður Binnamanna og Bjössi sem varaformaður og snillingur mikill viljum þakka fólki fyrir öll þau slagorð, ljóð og speki sem þau sendu okkur, við munum láta vita um leið og kortin eru tilbúin til sölu !
:: Gringo 16:13 ::
...
Peggið sló öll met !!
Já... þið sem ekki voruð með okkur á laugardaginn... þið misstuð af miklu !! Peggið tók feitann Frank The Tank !! Hann var að vísu ekki berrassaður (thank god for that) en það var ekki kvennmansbotn í mínu húsi sem Peggið var ekki búinn að leggja hönd á, það er alveg á tæru ! Ég var búinn að vera að skjóta mikið á Peggó fyrir föstudaginn þar sem hann fór snemma heim og fór meir að segja áður en fríi bjórinn var búið. Þetta taldi ég ekki vera eðlilega Pegg-hegðun og var búinn að vera að djóka í honum. Peggið sá alveg um að vinna þetta upp á laugardaginn, það fór ekki á milli mála!!! Hann drakk eins og maður sem var að koma úr tveggja vikna vatnslausri ferð úr Sahara !! Hann var ekki einu sinni að nenna að blanda vínið þegar líða tók á kveldið, tók bara kaffibolla (fallegann Arsenal bolla) helti hann fullann af landa og drakk það eins og vatn. Hann var e-ð að tala um það daginn eftir að fólk hefði alveg verið að missa sig í að hella á hann en mig grunar að hann hefði ekkert þurft hjálp til að hella á sig, hann var alveg að sjá um það sjálfur ;) Peggó vann sér inn ótakmarkaðar vinsældir á meðal starfsmanna OgVodafone þetta kveld, þeir karlmenn sem voru það óheppnir að taka dömuna sína með sér til mín fengu að horfa uppá Peggið ráðast á taðgatið á þeim trekk í trekk. Ómar Smith var kominn í full time vinnu í að hafa hemil á Pegginu sem var sem andsetinn maður!! Grunar að engin nema Jóhannes Páll Páfi hefði getað frelsað Peggó þetta kvöld, það er ekkert grín ! Ómar Smith sagði sjálfur að þetta var líklegast mest peggaði maður sem að hann hefur séð síðan að hann var staddur með Peggó í Portúgal árið 1999... þá er það staðfest, þetta er pegg-met fyrir þessa öld !!! magnað !! Sigrún og Ómi skuttluðu svo dýrinu í bæinn sem fiktaði víst í öllu mögulegu í bílnum á leiðinni í bæinn, við miklar vinsældir bílstjórans (Sigrúnar).
Hérna eru nokkrar myndir tekner með GSM símum þetta kvöldið:
Hérna er farið eftir að Doddi settist berrassaður í snjóinn fyrir utan... skulda honum víst þúsara fyrir það :D

Steini að losa um MOJO-inn hjá sér.... hehe

Á þessari mynd sést í bollann góða sem Peggó notaði MIKIÐ þetta kveld ;)
.jpg)
Smá hópmynd
.jpg)
Fann svo hérna 2 myndir á www.kallarnir.is af Peggó og Ómari í bænum (já gott fólk... Peggó komst í bæinn ;)


Ef að einhver var með myndavél eða e-ð slíkt þarna um kveldið, þá væri ekki leiðinlegt að fá myndir, ég tók alveg heilar 7 myndir á mina vél... :S
In short, þá var þetta bara alveg magnað kvöld og ég vil bara þakka öllu þessu fallega fólki sem þarna kom (já Peggó, líka þér ;) fyrir komuna og góða skemmtun !!
smá 5aur til að enda þetta:
Maður einn hefur haft það fyrir sið í 30 ár að fara að veiða eldsnemma á sunnudagsmorgnum og hefur ekki látið neitt stöðva sig hingað til.
Einn morgunin vaknar hann, klæðir sig í veiðigallan og útbýr nesti, allt eins og venjulega bara. Þegar hann opnar útihurðina sér hann að það er haglél, vindur á borð við hvirfilbyl og algerlega ófært að vera utandyra.
Gaurinn er náttlega ekki par sáttur, en ákveður þó að játa sig sigraðan í fyrsta skiptið í 30 ár, lokar hurðinni, klæðir sig úr vöðlunum og veiðigallanum og fer aftur inní svefnherbergi til konunnar sinnar.
Hann skríður uppí rúmið og hvíslar að konunni sinni sem er ennþá sofandi; "Djöfulsins skítaveður er úti...". Konan svarar hálf sofandi "Já, og spáðu í að helvítis fíflið hann maðurinn minn grunar ekkert og er samt úti að veiða eins og venjulega".
:: Gringo 10:42 ::
...
|
|