|
|
:: föstudagur, febrúar 06, 2004 ::
Haukar 30 - 23 HK
Sorglegt og aftur sorglegt... ég komst ekki á leikinn en það sem ég hef heyrt frá Binnamönnum sem þarna voru, þá var þetta eins og að menn höfðu lítinn sem engann áhuga á því að vera inná vellinum. Pirringur og áhugaleysi víst þau orð sem lýstu okkar mönnum best víst í kvöld.
Ég ætla ekki að tjá mig meira um þennann leik þar sem ég var ekki þarna... eins gott að HK menn taki sig saman í andlitinu og sýni áhuga og baráttu á Sunnudaginn !!
Ég er farinn á karókí kvöld hjá Vodafone... sjóó !
:: Gringo 21:50 ::
...
Könnun á www.hk.is
Það er komin könnun á www.hk.is um okkur Binnamenn og þar er spurt
Binnamenn, fegurðin blekkir eru:
- Bestu stuðningsmenn landsin - Alveg ágætir - Fyllibyttur
Ég er nú ekki alveg að ná þessari könnun... við erum auðvitað lang bestur stuðningsmenn landsins, það þarf nú ekki einu sinni að ræða það !! Alveg ágætir ? er ekki í lagi ... pfff Fyllibyttur... hehe, það er s.s. ekkert sem ég er að fara að rökræða ;) Við erum bestir og fyllibyttur, vantar alveg valmöguleikann "bæði 1 og 3" þarna :D
Kjósið rétt !!
Fyrsti leikurinn er í kvöld og það er útileikur við Hauka... maður veit ekkert í hvernig ástandi Haukarnir eru, allt er í rusli hjá þeim og það verður bara að koma í ljós hvernig þeir eru spilandi í kveld. Binnamenn munu auðvitað mæta á svæðið en ég kemst því miður ekki þar sem ég er alveg fastur í vinnu :( Ég er samt sem áður að smala mönnum þangað í minn stað. Bjössi mun sjá um stemmarann þar sem ég kemst ekki, stattu þig Bjössi !
Þetta verður svo tekið með styla á fyrsta heimaleik ársins á Sunnudaginn... fórnarlömb dagsins þá eru húsmæður frá Garðabæ... a.k.a. kvöldverður ofaní HK menn ;)
:: Gringo 15:23 ::
...
Það sem fólki dettur í hug
----> Smellið hér <----
:: Björn Ágúst 13:10 ::
...
! Feministaumræður !
Í gær og í dag hafa komið upp mjög svo skemmtilegar umræður sem vert er að skoða (og hlæja vel að)
Þær eru svo súrar að þær geta vel kallast 5aur :-)
Hér er sú fyrri og Hér er sú seinni (sem er btw alveg brill svar við fyrra ruglinu)
Ég vill hér með þakka Salvöru og Sæsa fyrir þessi dýrindis skemmtun.
Og auðvitað batman.is fyrir að vera snilldar linkasafn. (Þar sem ég rakst á bæði þessi skrif)
Sjáumst svo hress í kvöld á Leiknum (Haukar - HK).
ÁFRAM HK - Binnamenn - Fegurðin Blekkir
:: Björn Ágúst 11:26 ::
...
:: fimmtudagur, febrúar 05, 2004 ::
PIXIES (US) TO ROSKILDE FESTIVAL
They have been missed for more than a decade – but now the reunion is a reality. Pixies are ready in the original line-up. Frank Black on vocals, Joey Santiago on guitar, Kim Deal on bas and David Lovering on drums are ready to take Roskilde Festival.
Pixies was formed in 1986 in Boston, USA. They soon became a cult-band and took part in leading the way for other legendary bands like Nirvana, Radiohead and Pearl Jam. The last time they could be experienced together was with U2 on "ZOO TV"-tour in 1992. After that the band dissolved.
Now the quartet is back together again, practice rooms are found – and they are ready to tour. Europe is about to be conquered.
A furious live experience awaits Roskilde Festival.
:: Björn Ágúst 17:09 ::
...
- Viddó Dagsins -
J. Fab sendi mér þetta ágæta viddó...
Þetta ætti að kenna fólki að nota belti ;)
ouch !!
:: Gringo 15:04 ::
...
 Þessi mynd er bara of góð til að sleppa henni !!
I know... I´m going straight to hell 4 this ;)
:: Gringo 13:14 ::
...
Tékkið á dallinum sem er á borðinu !
Ef að kallinn væri ekki með skegg.... þá er alveg spurning hvor er "konan" þarna ?!?!

Myndskreytið nú þetta fallega par að eðla sig... anal style !
:: Gringo 12:31 ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 04, 2004 ::
HK kvennabollti hvað? -----> Mynd <----- ...þetta er lið sem ég væri til í að þjálfa ;D
:: Ztebbsterinn 18:10 ::
...
-- > Snilld < --
Þetta er svo mikil snilld að ég varð bara að setja það hingað. Ég er ekki alveg á því að trúa því að þetta sé ekta ;-)
:: Björn Ágúst 13:22 ::
...
Nokkur umhugsunarverð atriði
Var að fá þetta í pósti ... og ég fór að hugsa ... heppinn ?
Hver var það sem fyrstur leit á kú og hugsaði: "Ég ætla að kreista þetta drasl sem hangir niður úr henni og drekka það fyrsta sem kemur út"?
Hver var fyrstur til að líta á hænu og segja: "Sjáið þessa hænu þarna.... ég ætla að éta það fyrsta sem kemur út úr rassinum á henni."
Af hverju eru allar brauðristar með hæstu stillingu sem býr til viðbjóðslegan kolamola úr brauðinu sem enginn gæti étið?
Af hverju er ljós í ísskápnum, en ekki í frystinum?
Af hverju bendir fólk á úlnliðinn á sér þegar það spyr hvað klukkan sé, en ekki á rassinn á sér þegar það spyr hvar klósettið sé?
Af hverju stendur Guffi uppréttur, en Plútó á fjórum fótum? Þeir eru sams konar hundar.
Ef maísolía er úr maís og ólífuolía er úr ólífum, úr hverju er þá barnaolía?
:: Björn Ágúst 08:33 ::
...
:: þriðjudagur, febrúar 03, 2004 ::
! Black & White !
Vegna fjölda áskorana þá ætla ég að smella hér mynd inn sem var tekin fyrir norðan um helgina.... Á þessari mynd sést greinilega áhrif ljósabekkja á húðlit þinn. Hér erum við með mann sem stundar ljósin nokkuð vel, er með gott base tan og ræktar það eins og sannur PIMP.Á sömu mynd er einnig að sjá mann sem hefur ekki farið í ljós síðan að hann fermdist, hann vinnur neðanjarðar á Kárahnjúkum og hefur því varla séð sól í um 2 mánuði held ég. Hann er jú líka PIMP á sinn veg en baste tan er orð sem er ekki í hans orðabók. Ég þurfti að laga myndina aðeins til þar sem kynfæri hvíta mannsins láku úr Speedo skýluni hans við þessa pósu....
 Það getur varla verið mikið meiri munur á tan en þetta ???
Splæsum ljósakorti á Ragga.... eða gefum honum kortið hans Óma ;)
:: Gringo 15:29 ::
...
:: mánudagur, febrúar 02, 2004 ::
Superbowl shocker !!
Ég gat ekki alveg sofnað í gær og sat því og horfði á Superbowl. Þetta var snilldar leikur og tala nú ekki um das show sem var í hálfleik !!! J.T. kíkti á sviðið og var að dansa við Janet jackson... endaði atriðið með því að "frelsa" aðra julluna á henni... damn !!

Grunar að þetta sé nú lítið annað en tilraun til að toppa það sem 3 stöllur gerðu á MTV verlaunahátíðini, þetta er ekkert að toppa það ! do I care ??? no... nice tits ;)
-----> Myndband -- Stór mynd <-----
:: Gringo 14:33 ::
...
Var að fikta smá ... og fiktið kom bara vel út :-)
Kíkið á það hérna
:: Björn Ágúst 13:05 ::
...
Jæja.... kallarnir komnir heim !
Já... við vorum að koma í bæinn áðan, þvílík snilldar helgi !! Mér líður eins og að ég hafi verið í fríi í viku en ekki bara eina helgi, fátt sem toppar svona chill !
Smá brot úr ferðini:
Ég, Raggi og Ómar náðum að leggja í hann um kl 8 á fimmtudagskveld þannig að við vorum ekki komnir norður fyrr en um kl 1 um nóttina eftir leiðindarveður hér og þar. Við vorum á jeppanum hjá gamla þannig að smá skaflar og skafrenningur var ekkert sem var að stoppa okkur ;) Við komumst alla leið upp að bústaðinum vegna þess að mesti snjórinn var frosinn og við gátum keyrt á honum. Um leið og við komum voru opnaðir bjórar og tekið smá tjill yfir sjónvarpinu og spjallað um hitt og þetta. Gleði kvöldsins var alveg 100% hann Stuart Litli, eða Stulli eins og við kölluðum hann. Eins og þið sjáið á þessari mynd þá var Stulli með fallegann variant um hálsinn í tilefni komu okkar og þótti það okkur mjög fallega gert af honum. Þrátt fyrir þessa tilraun hjá honum, þá fekk hann að fjúka út til að sýna vini sínum nýja hálsmenið sitt ;)
Vöknuðum svo ferskir og fallegir á föstudaginn, stefnan var tekin á það að gera sem allra minnst um daginn. Kíktum í Kaupfélagið, ríkið og í sund á Dalvík og svo var það bara tjill og Tiger ( í Ps2) sem tók við. Við spiluðum alveg slatta mikið af Tiger í þessari ferð og það var ekkert nema snilld að taka Ps2 með í bústaðinn ! Ætluðum að vera voðalega flottir á því og kaupa góðann mat til að elda saman en það endaði nú bara í Gordon Blue og Pizzu... hehe... Um miðjann daginn byrjaði að snjóa og það snjóaði gjörsamlega endalaust á meðan við vorum fyrir norðan ! Seinna um kveldið var svo kíkt í pottinn og drukkið. Raggi sá um smá skemmtiatriði um kveldið þar sem hann var með gríðarlega hress sprengiefni með sér... bara snilld !!
Á laugardaginn kíktum við á Akureyri til að ná í Binna sem var að koma með flugi til okkar. Við fórum á Crown Chicken og fengum okkur sveittann borgara og svo fórum við tvisvar í ríkið.... damn, við fórum s.s. í ríkið áður en við fórum og svo þrisvar í þessari ferð... nice ! Eftir þessa erfiðu og stressandi bæjarferð var stefnan sett aftur í bústaðinn til að ná hjartslættinum aftur niður í 2 slög á min. Bjórar voru opnaðir, matur eldaður, snakk og nammi étið og allt að gerast. Aníta, frænka mín, ætlaði að koma og kíkja á okkur með vinkonum sínum þetta kvöld en þar sem þær voru að vinna til um 23 þá vorum við bara 4 að gera það gott þangað til. Við höfðum lítið sem ekkert að gera og því var ekkert annað hægt en að afllita hárið á Ragga til að skemmta okkur. Ég setti nú e-ð í kollinn á mér til þess að fá Ragga til að gera þetta, þetta var svo fyndið þegar við skoluðum þetta úr að ég og Binni erum búnir á því í maganum í dag vegna hláturs-þreytu. Þetta sést nú ekki mikið enda var þetta ekki lengi í hausnum á honum en þegar við vorum nýbúnir að þessu, þá var það alveg eins og að Raggi væri að verða sköllóttur. Ég hef sjaldan skemmt mér jafn vel, það er alveg á tæru !!
Við duttum nú aldeilis í lukkupottinn þegar við ætluðum í pottinn, það vill svo skemmtilega til að það er nokkuð gott safn af gömlum fötum, úlpum og sundfötum uppí bústað. Okkur fannst það alveg frábært að þarna voru fjórar "euro-spedoo-mini" sundskýlur og því var ákveðið að nota þær í staðin fyrir okkar eigin... hérna eru smá myndir af því :
- hópmynd - - buns of steel -
Er með alveg helling af myndum en þar sem þessar skýlur eru ekki beint efnismiklar, þá voru menn aðeins að missa sig og oftar en ekki sést í kynfæri eða aðra mis fallega hluti á þeim flestum... kann ekki við að blogga því ;)
Seinna um kveldið var einnig keppni milli Binna og Ragga... keppni um það hvor þeirra var með loðnari kjallara. Ég veit ekki hvor þeirra vann, gerði mitt besta til þess að láta þessa keppni fara framhjá mér en þar sem Raggi er jú að vinna á Kárahnjúkum... þá grunar mig að hann hafi unnið þetta án vandræða.
Nenni ekki að skrifa meira um þessa ferð, eitt orð dugar... = snilld ! læt fylgja með nokkrar myndir til að gleðja fólk ;)
- Raggi, í fallegum varíant - - gerir EKKERT í þessum brillum - - ferðabíllinn - - TNT - - potturinn - - Ragnar "The Hulk" - - kallinn í brúnni - Þessi mynd var alveg gríðarlega vinsæl í þessari ferð, mikið spáð í hvernig stemmarinn var í bátnum þegar myndin var tekin ;)
till... teebah... möhh....
:: Gringo 02:01 ::
...
|
|