|
|
:: föstudagur, febrúar 20, 2004 ::
Vinna... vinna og vinna smá meira
It´s friday baby... það er nú bara þannig litlu hnoðrarnir mínir að það er komin helgi, núna er kominn tími á að pússa skónna, taka út djamm-dressið og byrja að hella í sig. Ég mæli samt alls ekki með því að djamma þessa helgina, held að það sé lítið sem ekkert varið í það. Skítaveður, kalt, snjór, rok og svo auðvitað aðalástæðan..... *drums* ég verð ekki á djamminu ;) hehe
Þið þurfið samt ekki að örvænta þar sem ég mun vera í miðbænum í kveld og annað kveld líka. Þannig standa mál núna að við strákarnir erum aftur teknir við Hressó og ég er búinn að skrá mig allavega næstu 3 helgar... bæði föstudag og laugardag. Ég ákvað að taka smá pásu á djamminu þar sem ég er að fara til Dublin í þessum mánuði og London í þeim næsta! Ég nenni ekki að fara alveg gjörsamlega á hausinn við þetta þannig að núna er kominn tími til að róa sig (nei Bjössi... ekki fróa) á b00zinu og vinna, æfa og dekkja sig (hehe). Langar að versla mér digital myndavél þegar ég fer út... held að ég láti bara verða af því.
HK var að tapa fyrir KA fyrir norðan með 5 mörkum. Ég var bara að sjá þetta núna áðan á textavarpinu þannig að ég get lítið annað sagt ykkur um leikinn en stöðuna sem ég sá. Ég bjóst s.s. ekkert við því að við myndum vinna leikinn þar sem þetta er einn erfiðast heimavöllur á landinu.
Ég nenni ekki að skrifa meira í kveld.... ætla að fara að kíkja á Bjössa á Skjálfta og svo er það vinna fram á nótt....
Þið sem eruð að fara að djamma, skemmtið ykkur vel og drekkið smá Tequila fyrir mig (Absent ef að þið þorið líka !)
:: Gringo 21:10 ::
...
Spenntur !!
Nú sit ég heima ... spenntur að fá að vita stöðuna í KA - HK
Ég vill hér með senda góða strauma norður og vonandi taka þeir þetta nú.
Þegar einhver hefur stöðuna má endilega senda mér SMS ;)
:: Björn Ágúst 20:00 ::
...
Jæja já og sjúddirallirey... :Þ
MIG langaði bara svo svaðalega mikið að tjá mig eitthvað, þar sem að langt er um liðið frá því að ég gerði það síðast, og hæna nú..
Ég sit hér í hægðum mínum og skeini mér svo (þannig væri það allavega ef að ég sæti á salerninu) :D
Er ég skrifa þessa þvælu, stendur einn og situr annar mér við hlið, sem að kemur ykkur ekkert við.
...jæja nóg um mig, góða helgi
:: Ztebbsterinn 14:54 ::
...
:: fimmtudagur, febrúar 19, 2004 ::
seint blogga sumir en blogga þó
Leiðinlegt að maður skuli ekki vera búinn að blogga neytt í dag en það er bara búið að vera bilað að gera hjá manni. Ég mætti á CISCO námskeið klukkan 09:00 í morgunn og ég get ekki sagt annað en að ég hafi náð því að vera nokkuð VEL langt frá því að vera ferskur.. hehe... Ég er það að vísu eiginlega aldrei á þessum tíma dags :) Námskeiðið var alveg til rúmlega 4 og ég er aftur á því á morgunn. Þetta er fínnt, maður lærir vonandi e-ð gáfulegt ;)
Ég er annars að spá í því að byrja blogg dagsins með því að óska mínum manni, Binna, til hamingju með það að vera kosinn maður leiksins á móti ÍR á heimasíðu HK. Núna er ísinn brotinn og núna fara Binnamenn í gang, það er alveg á hreinu! Það er mér mikil sorg að segja frá því en fjármál Binnamanna standa þannig að líklegast er enginn af okkur að fara norður með HK þegar þeir spila við KA. Það er fátt sem manni langar meira en að fara norður og gera braggann hjá KA mönnum fokheldann.. hehe. Núna þurfa HK menn að sýna hvað þeir geta og við tökum svo vel á móti þeim þegar þeir koma suður. Stefnan er sett á það að fjölmenna duglega út á Nes þegar við spilum við Gróttu/KR (5.mars). Ég lofa því hér og nú að munum eiga það hús eins og flest sem Binnamenn koma í.
Það er búið að vera að vera að skjóta slatta á mig í dag vegna þess að það er svolítið síðan að ég póstaði "sprell-viddó"... Ég þori nú ekki annað en að standa undir þeirri pressu sem er komin á mig og pósta hér nokkrum myndbútum. Þema dagsins í dag eru dýr (nei, þetta er ekki dýraklám... ekki í þetta sinn... hehe)
-= sprell =-
sprell-viddó #1
sprell-viddó #2
sprell-viddó #3
that´s all 4 2day folks... farinn í tan & muscle....
:: Gringo 20:41 ::
...
Jesús er með þér ..... alltaf

Smellið á myndina fyrir fleiri ... þetta er snilld :-)
:: Björn Ágúst 10:23 ::
...
:: þriðjudagur, febrúar 17, 2004 ::
Binni hetja HK !!
Ég get ekki sagt mikið frá leiknum þar sem ég var ekki þar en elskurnar mínar... þarna sjáiði það að HK hjartað slær enn í þessum mönnum. Við erum held ég 5 mörkum undir í hálfleik, manni færri stórann hluta af seinni hálfleik og vinnum leikinn !! Skildist að Hörður Flóki hafi komið inná og varið eina 16 bolta í seinni hálfleik. Það er nokkuð ljóst að Bjöggi þarf að fara að taka á honum stóra sínum ef að hann ætlar sér að halda sínu sæti í liðinu.
Þar sem ég var ekki þarna, þá ætla ég ekki að tjá mig meira um það sem ég veit ekki um... langar bara að óska honum Binna okkar innilega til hamingju með þetta glæsilega sigurmark í kvöld... sirkúsmark á loka sek. leiksins og hann hausar markmanninn.... Þetta er sko minn Binni !!!
Ég skora á alla Binnamenn og konur að kjósa Binna á Heimasíðu HK og svo mæli ég einnig með því að fólk kíki á það að Brynjar okkar er mættur á forsíðu mbl.is !!
 Áfram HK og Binna sem forseta !!
:: Gringo 21:11 ::
...
vaknaði hel ílla í nótt !!
Ég varð fyrir alveg hrottalegri reynslu í nótt og bara varð að deila henni með ykkur......
Þetta var s.s. þannig að áður en að ég fór að sofa í gær, þá náði ég mér í stórt vatnsglas (1/2 líter eða meira) og setti svo glasið í glugakistuna eins og ég geri alltaf (fyrir þá sem ekki vita, þá er hún beint fyrir ofan hausinn á mér þegar ég ligg í rúminu mínu). Í nótt var svo alveg skemmtilega vont veður, mikið rok og mikil gleði. Vindurinn var það mikill að hann blés gardínurnar mínar í glasið sem endaði svo beint ofaná hausnum á mér !!!! Ég s.s. vaknaði kl. 06:00 í nótt með um líter af ísköldu vatni ALL OVER ME og glasið lennti beint í andlitinu á mér í þokkabót. Ég flaug gjörsamlega á lappir og svo stóð ég þarna bara eins og fífl og vissi varla á hvaða hnetti ég var, skildi ekki rass í þessu. Ég þurfti s.s. að fara og þurka mér (var vel blautur og ískaldur) og þurka svo rúmmið mitt svo að ég gæti sofið e-ð meira. Það þarf nú varla að taka það fram að það gekk ekki mjög vel að sofna aftur.... ugh... what a night !
:: Gringo 17:18 ::
...
Binnamannafréttir
Kortin eru tilbúin til plöstunar !! Jú jú, mikið rétt, þetta er allt að gerast. Þar sem að ég er ekki alveg 100% á því að allir viti til hvers við erum að gera þessi kort, þá ætla ég að koma með smá info...
Binnamannapakki - 2000kr. inniheldur: Binnamanna bol (eins og Binnamenn hafa verið í undanfarið) Binnamannakort
Binnamannakortin gilda s.s. sem miði á heimaleiki HK og einnig fær handhafi kortsins alveg magnaðann afslátt á Shooters í Engihjalla. Þessi pakki fer að fara í sölu, látum vita ;)
kveðja, Binnamenn
:: Gringo 16:54 ::
...
:: mánudagur, febrúar 16, 2004 ::
Vinnustaðagrínari
Hér á eftir kemur bréf frá ónefndum nýjum starfsmanni Og Vodafone.... Jón Ingi félagi minn hérna ákvað að bjóða hann velkominn til starfa ;) Gó Jón Ingi !!
Sæl og bless,
hér með staðfesti ég að Jón Ingi Jónsson starfsmaður í þjónustuveri Og Vodafone, hafi verið kosinn "vinnustaðagrínari Og Vodafone fyrir febrúar mánuð 2004". Strákurinn er vel að sigrinum kominn enda þekktur fyrir að vera mikill grínari. Hann náði á þessari kvöldvakt að toppa öll sín fyrri grín með því að smyrja tölvumús starfsbróður síns með smjöri og KFC fitu. Vil ég þakka honum fyrir vel heppnað "vinnustaðagrín" og í leiðinni óska honum innilega til hamingju með titilinn, "Vinnustaðagrínari febrúar mánaðar".
Þetta reddaði alveg mánudeginum hjá mér !
:: Gringo 21:01 ::
...
5aur
Var að versla 5auradót.... check it out :
Bolur (front)

Bolur (back)

Boxer nærbuxur

Thong (front)

Thong (back)

að lokum er það svo háskólabolur með kvart-ermum

Looking good.... hehe
:: Gringo 13:30 ::
...
|
|