|
|
:: laugardagur, mars 20, 2004 ::

Obbosí !!!
:: Brynjar 18:29 ::
...
 Hae Hini! Hehe
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 16:54 ::
...
 Verslun i gangi
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 13:56 ::
...
 Morgunmaturinn
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 10:18 ::
...
:: föstudagur, mars 19, 2004 ::
 Go HK! Bibbi tíkall hljómar í Dublin í kvold!!
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 20:52 ::
...
 Buffid ad flassa bi... Hehe
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 19:00 ::
...
 Sími hjá drullaranum... Snilld!
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 18:04 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 16:36 ::
...
 Vodafone!
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 16:28 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 16:26 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 15:16 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 14:06 ::
...
 Svalur!
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 13:58 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 13:30 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 13:22 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 10:04 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 09:30 ::
...
 Bloodie Mary kl.9!
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 09:06 ::
...
 Buff & beer
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 08:10 ::
...
:: fimmtudagur, mars 18, 2004 ::
Dublin... here I come !!
sjóóó !! Þetta er allt að gerast, búinn að pakka "öllu" því sem fer með mér út. Þetta er nú ekki mikið enda er ætlunin að gera lítið annað en að djamma þarna úti. Þetta er alveg magnaður hópur af fólki sem maður er að fara með. Þessi kjarni sem er að fara þarna út er líka búinn að vera duglegur að "hita upp" núna síðustu helgar. Við strákarnir vorum t.d. flestir búnir að ákveða það að vera rólegir fram að Dublin en í stað þess að gera ekkert.... var bara drukkið og tjúttað. Ég, Steini, Gunni, Valli og Gunni (já, þeir eru tveir) stefnum á að leggja í hann til Keflavíkur um kl. 07:00 á morgun. Fyrsti bjór verður því líklegast kominn í belg um svipað leiti og stefnt er á það að hætta að drekka einhverntímann á sunnudagskvöld. Það læðist að mér léttur grunur að næsti mánudagur mun líklegast vera allt nema góður en það verður bara að hafa það. Ég mun senda inn myndir með símanum mínum hingað og svo verða líka myndir á þessari síðu. Þetta er síða sem við strákarnir settum í loftið fyrir Dublin-drykkju-bull.
Árni Stefánsson hættur með HK !!

Ég var að fá þær fréttir að Árni "Bragðarefurinn" Stefánsson er hættur að þjálfa meistaraflokk HK í handbolta. Núna er bara að sjá hvort að menn geta tekið sig saman og klárað þessa leiki sem eftir eru eins og menn. Ég vil persónulega þakka Árna alveg kærlega fyrir það sem hann hefur gert fyrir HK. Undir stjórn Árna kom dollan í Digró og það er e-ð sem gleymist seint. Því miður hefur ekki gengið nógu vel núna undanfarið og það endaði svona en við meigum ekki gleyma okkur í neikvæðum hugsunum. Maður hefur heyrt hinar og þessar sögur en eins og er þá er ég ekki að fara að taka þátt í einhverju neikvæðu bulli og veseni. Núna fá leikmenn þann séns að taka sig á og gera e-ð af viti í þessum leikjum sem eftir eru, núna reynir á liðið að þjappa sér saman og spila þann bolta sem við vitum að þeir geta spilað. Samkvæmt mínum heimildum var Vilhelm Gauti að stjórna æfinguni núna áðan en ég hef ekki fengið það staðfest hver mun klára tímabilið í plássinu hans Árna.
Binnamenn þakka Árna fyrir þær góðu stundið sem við áttum saman, SS Bikarinn, evrópukeppnin og margt fleirra.
Núna er ég að spá í að skella mér í tan, taka saman draslið mitt og jafnvel fá mér einn öl ;)
Dublin og HK kveðja....
:: Gringo 19:30 ::
...
Eins og að selja sand í eyðimörk ! HK-Fram 24-30
Núna er maður alveg hættur að skilja hvað er að gerast með liðið okkar. Ekkert gengur upp en samt sér maður engar breytingar eða aðgerðir. Ég sat í "búrinu" í gær og var að stjórna tónlistini og horfa niður á leik okkar manna sem var ekkert til að brosa yfir, það er alveg á hreinu. Eitt augnablikið sá ég glitta í hulstur af geisladisk sem Jón Heiðar hafði búið til. Þar sá ég lag sem ég var næstum búinn að spila í gær.... You´ll never walk alone... Ekki það að textinn höfði til HK heldur finnst mér vera svipaður bragur á liði HK eins og Liverpool. Þarna eru fínir menn sem eru flestir ef ekki allir að spila svo langt undir getu að mér dettur ekki einu sinni í hug orð yfir það. Ekki má gleyma að í báðum liðum eru stjórnendur sem þrátt fyrir allt sem er að gerast, virðast lítið sem ekkert ætla að gera til að bæta ástandið. Það vantar blauta tusku sem á stendur "HLUTIR BREYTAST EKKI SJÁLFKRAFA!" og ekki væri vitlaust að slá nokkra með henni þvert yfir grímuna. Eins og ég skrifaði í morgunn, þá hætti ég við að skrifa um leikinn í gær vegna þess að ég var alveg ílla pirraður og það sem ég hefði skrifað þá hefði líklegast ekki fallið í góðann jarðveg hjá sumum. Ég ákvað því að hugsa þetta aðeins, sofa á þessu og skrifa pistilinn bara í dag.
Ég gerði mitt allra besta í að smala saman góðum hóp af strákum til að sýna liðinu að við gefumst ekki upp og hættum að standa með þeim þótt að ílla gangi, Binnamenn gefast ekki upp, það er ekkert flóknara en það! Smalaði öllum þeim sem ég gat og við hittumst á Shooters fyrir leikinn. Þarna voru komnir rúmlega 10 strákar sem allir voru með þá von að núna færi e-ð að gerast hjá liðinu, unnum Gróttu/KR úti og Stjörnuna líka þannig að vonir voru miklar um að þetta væri allt að smella.Ég og Raggi fórum svo á undan hinum upp í hús til að koma tónlist í gang og vesenast. Fólk var að mæta í hús og Binnamenn komu svo allir saman með trommur, lúðra og gott skap. Stemmingin var mjög fín í húsinu og það er held ég það eina sem ekki er hægt að setja útá við HK þessa dagana.
Það fyrsta sem ég tók eftir var að Jói Lange var mættur á bekkinn. Ekki það að ég vilji ekki sjá hann þarna en var hann ekki rekinn fyrir nokkrum dögum ? Hann er, svo að ég viti til, búinn að vinna gott starf fyrir félagið og ég var aldrei búinn að fá það á hreint af hverju hann var rekinn en hann var mættur þarna aftur, velkominn aftur í gleðina Jói . Það voru 4 myndavélar á svæðinu (gaman að vita til þess að þetta rugl er til í fjórum eintökum) og ég var frekar bjartsýnn á að liðið væri að fara að sigra þennann leik.
Eftir um 10min. leik vorum við 5 mörkum undir (3-8), vörnin var eins og hjá Breiðablik og sóknin ekkert skárri. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn, þá voru menn eiginlega eins og fífl þarna á vellinum. Skotin vond, sendingar agalegar og ég veit ekki hvað. Það er samt ekki bara þessi lélegi leikur liðsins sem fór í mig (ég er nú að verða nokkuð vanur því að horfa upp á það þessa dagana) heldur var það sú staðreynd að menn voru farnir að fá áminningar frá dómurum leiksins fyrir það að rífa kjaft eftir 10min. Þetta finnst mér sýna best hvaða ástand er á hópnum. Menn eru greinilega að koma inn á völlinn pirraðir og ílla stemmdir og það er ekki eitt einasta stig að fara að koma til okkar ef að leikmenn eru í þessu ástandi. Er það ekki frekar slæmt að Andrius er að fá 2min fyrir kjaft og hann getur varla gert sig skiljanlegann ?
Af hverju eru menn orðnir pirraðir og farnir að hengja haus eftir 10 min. ???? Ég er ekki að tala um hvort að menn séu í formi, séu að læra í raun e-ð á æfingum eða neytt. Núna er ég bara að spá í þessari einu spurningu og ég vil að þið sem lesið þetta geri það líka. Af hverju er mórallinn svona agalegur í liði sem eitt sinn fór sem lengst á baráttu og vilja. hvað þarf að gera til þess að koma þessu í gang aftur er spurning sem margir eru örugglega að velta fyrir sér akkúrat núna. Ég er samt að spá í einu, hvað er búið að gera til að reyna að bæta ástandið ? Það eina sem að ég get talið upp er að Jói Lange var rekinn í nokkra daga. FRÁBÆRT !! Það er um að gera að reka manninn sem er að sjá um tölfræðina þegar ílla gengur. hvernig verður þetta núna eftir þennann leik, hvort á að reka Sigga eða Gunnsa núna ? Þetta er auðvitað bara barnalegt og ekkert nema bull. Hvernig væri að fara að gera e-ð í þessum málum áður en allt fer endanlega í rúst ?? Mér sýnist bara vera algjört vitleysa í gangi þarna á bekknum og ekkert annað.
Ef við spólum aðeins til baka og spáum í því hvernig stjórnendur liðsins voru í gær. Árni var alveg vel pirraður, fékk gult spjald, aðvörun og næstum rautt fyrir kjaft og pirring. Aðstoðarþjálfari hans, Atli, sprakk næstum úr pirring í seinni hálfleik og endaði þann pirring með dramatísku atriði þar sem hann lamdi í gólfið og hausinn á honum hékk niður á bringu eftir það. Ég er alls ekki að kenna þessum 2 mönnum um tapið eða ástandið beint heldur aðeins að benda á þá tvo menn sem stjórna liðinu. Þegar þú ert svona hátt settur og stjórnandi, þá ert þú oftast sá fyrsti sem fær skammirnar þegar ílla gengur. Það er kanski ekki alltaf sanngjarnt eða réttlætanlegt en þannig er það nú samt sem áður.
Andrius sýndi það enn og aftur í gær að hann á ekki að taka víti en það virðist vera e-ð sem stjórn liðsins er bara alls ekki að sjá. Davíð kom og kláraði sín víti en hann var nú líka búinn að fara ílla með ein 3 færi í röð áður í leiknum. Gæti það nú ekki samt mögulega verið að það séu tengsl á milli þess að menn eru að klúðra færum og andlega ástand liðsins? Það er mun minni líkur á því að þú sért að fara að skora úr fær, hvar sem það er á vellinum ef að sjálfstraustið og andlega hliðin er ekki í lagi. Þú vinnur ekki leik nema að þú trúir því að þú getir það.
Þetta sem ég skrifa hér er auðvitað mest bara mitt álit en það er þess virði að taka það fram að flestir Binnamenn hafa beðið mig um að skrifa harðann pistil og heimta að núna verði e-ð gert. Þetta er samt sem áður mest bara mitt álit og ef fólk er ekki sammála því, þá er þeim alveg velkomið að svara hér að neðan eða á HK spjallinu. Ef það er ekki nóg fyrir þig, þá geturu bara sent Dr. Phil bréf.
Það sem ég vil sjá núna eru einhverjar breytingar í og í kringum þennann hóp. Ég er alls ekki að fara fram á það að einhver sé endilega rekinn eða settur úr liðinu heldur vil ég sjá e-ð annað en væl, pirring og svekkelsi. Datt t.d. einhverjum það í hug í gær að þakka þeim stuðningsmönnum sem þarna voru fyrir stuðninginn? Hvað þá sú staðreynd að leikmenn voru búnir að gefast upp á undan stuðningsmönnum liðsins. Hversu lélegt er það ? 10 min. eftir af leiknum og leikmenn HK algjörlega hættir að nenna að spila og stuttu seinna sló dauðaþögn á stúkuna. Áhorfendur voru alveg búnir að meðtaka andleysuna í liðinu, það sást alveg greinilega. Þrátt fyrir það finnst mér það skítt að ekki einn einasti maður þakki fyrir þann stuðning sem þeir eru að fá þrátt fyrir að þeir séu að spila eins og hinir mestu aumingjar. Þetta endar bara á einn veg og það er sá að fólk hættir alveg að nenna að horfa liðið spila. Hvernig haldiði að það sé að reyna að sannfæra fólk til að kaupa Binnamannakort á svona leiki ? Það er auðveldara að selja sand í eyðimörk... Hver fer að borga fyrir það að þurfa að horfa upp á þetta ?
Nenni ekki að vera að svekkja mig meira á þessu, enda þetta með sömu tveim spurningum og ég kom með áðan...
Hvað er hægt að gera ?
Hvað er búið að gera ?
Birgir Hrannar Stefánsson Formaður Binnamanna
:: Gringo 15:00 ::
...
Frekar fyndin saga sem ég fann á netinu..
Hey guys, I've got a 98 1.8T. I've had a k04 and chip for a while and wanted to get more performance. I was recommended to port and polish the intake and exhaust. We found out they used abrasive material to do it like gritty sand. So I got with my friend that tunes Hondas and we decided to try it ourselves. We got a bag of sandblasting sand and hooked up into the intake and started the car. We had to hold the gas so it would run. He wanted to let the engine suck in the sand through the intake so it would port it out and then push it out the ehxaust so it would port the exhaust manifold. I was worried that it might cause problems but he figured it'd be OK as long as we didn't make boost and it get sucked in the turbo. After running the car and letting it suck in sand we got about half way through a 25 lb bag. The check engine light was on and the engine was bucking and kicking and sounding really weird. We stopped and hooked the car back up normal and took off the sand supply. We tried to start it again and it was really hard. Once started it couldn't idle and kept making weird noises. We took it out and drove it and it started to make scraping and knocking noises. Help! Can anyone tell me what to do! My buddy only does Hondas so he doesn't know much about Audis.
HAHAHA!!! ...þvílíkur asni
:: Ztebbsterinn 14:41 ::
...
:: miðvikudagur, mars 17, 2004 ::
 Kíkti aðeins á nýjasta frænda minn og ætlaði að taka mynd af honum. Hann hnerraði auðvitað akkúrat þegar ég var að fara að taka myndina og hrækti duglega framaní mig.... vinalegt
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 17:28 ::
...
pistill um leikinn kemur í kvöld
Ég mun koma með pistil eftir vinnu í dag um leikinn... ég ákvað að skrifa hann ekki í gær þar sem ég var hreinlega allt of pirraður til að koma frá mér einhverju af viti.
Langur pistill um allt og alla í kvöld..... cya
:: Gringo 09:49 ::
...
:: þriðjudagur, mars 16, 2004 ::
 Binnamenn
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 18:42 ::
...
 drengirnir ad hita upp fyrir leikinn
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 18:26 ::
...
HK - Fram í Digranesi kl 19:15
Ég vill minna alla 5aura á að mæta á HK - Fram í Digranesinu kl 19:15 í kvöld. Ég reikna með að við hittumst á Shooters fyrir leik (um 18:00). Ef þið eruð í vafa ... bjallið þá bara í mig í 8967463 eða Bigga í 6989899 Binnamannapakkarnir verða til sölu en þeir samanstanda af Binnamannabol og korti sem gildir sem aðgangseyrir að öllum heimaleikjum sem eftir eru á tímabilinu 2003 - 2004. Einnig veitir kortið handhafa brilliant Binnamannaafslátt á Shooters :) Ágóði sölunar á pökkunum rennur óskiptur í uppskeruhátíð Binnamanna (Lesist BJÓR) sem verður haldin á Shooters í lok tímabilsins. Stöndum saman og látum sjá okkur í Digranesinu !!!! Áfram HK !!!! Fyrir hönd Binnamanna
:: Björn Ágúst 12:22 ::
...
!!! Lesið þetta vel !!!
Smellið á bannerinn fyrir nánari upplýsingar ....

Þetta er bara spooky stuff ... :-/
:: Björn Ágúst 12:21 ::
...
Einn fyrir stelpurnar
Tveir einstaklingar óku bílum sínum, um var að ræða konu og mann. Slysin gera ekki boð á undan sér eins og í þessu tilfelli en bílar þeirra skullu skyndilega saman. Lánið lék við þau en þau sluppu ómeidd eftir þennan annars harða árekstur. Karlinn rankar við sér felmtri sleginn, skríður úr bíl sínum og segir: "Svo, þú ert þá kvennmaður, en spennandi. Og ég er karlmaður. Vá, sjáðu bílana okkar! Þeir eru gjörsamlega í klessu, en sem betur fer slösuðumst við nú ekkert. Þetta hlýtur að vera tákn frá Guði um að okkur sé ætlað að hittast aftur, vera vinir og búa saman í friði til æviloka."
Upp með sér stamar konan loks út út sér: "Ó,já, ég er þér alveg hjartanlega sammála!" "Þetta hlýtur að vera tákn frá Guði!" hélt karlinn áfram, ég meina sjáðu, þetta er annað kraftaverk. Bíllinn minn er algjörlega í klessu en þessi vínflaska brotnaði ekki. Guð villörugglega að við drekkum þetta vín og höldum þannig upp á heppni okkar og yndislega sameiginlega framtíð sem við eigum í vændum."
Síðan réttir hann konuni flöskuna. Hún kinkar kolli til samþykkis, opnar flöskuna og drekkur hana hálfa og réttir síðan karlinum. Karlinn tekur flöskuna, setur tappann í og réttir konuni hana aftur.
Konan spyr: "Ætlar þú ekki að fá þér?" Karlinn svarar: "Nei. Ég held ég bíði bara eftir lögreglunni..."
BOÐSKAPUR SÖGUNNAR: Karlar eru MJÖG skarpir. Ekki abbast upp á þá.
(h4x3d by Gringo)
:: Björn Ágúst 09:07 ::
...
:: mánudagur, mars 15, 2004 ::
 4 dagar í Dublin (test með gsm-bloggi)
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 14:00 ::
...
School of Rock

Skelltum okkur góður hópur á þessa annars alveg fínu mynd í kvöld. School of Rock þar sem Jack Black snillingur fer á kostum. Myndin var að vísu með alveg vel væmnum happy ending eins og er alltaf en fyrir hlé koma alveg þónokkrar 100% quality setningar frá kallinum. Ég mæli alveg með þessari mynd en það er kanski ekki alveg að marka okkur, við vorum það heppnir að við fengum húmors-blessun með okkur í bíóið... Nei við vorum ekki að reykja gras heldur kom allt í einu ákveðinn maður labbandi inn í Laugarásbíó sem reddaði myndini. Það er smá saga sem fylgir þessu (nei Davíð, hún er ekki löng) og here it is: Í bílnum á leiðini í bíóið sagði ég að það er ekkert svo gaman að fara á svona mynd ef maður er ekki í réttum félagsskap. Það verður að vera einhver með manni sem er með smitandi hlátur sem kemur öllum af stað. Raggi er t.d. alveg svona maður en þar sem hann var búinn að sjá myndina, þá gátum við ekki treyst á hann. Eini maðurinn sem mér datt þá í hug var Benni "svínarifsslátrarinn" og það er sko maður sem er með MEST smitandi hlátur á öllu landinu. Það er bara EKKI hægt að gera annað en að springa úr hlátri þegar Benni er í ham. Fyrir þau sem ekki kannast við þetta þá er gott dæmi það að þegar Benni og strákarnir fóru á Pablo stand up þá var Pétur "ding-dong" að hita upp og hann stoppaði showið til að gera sérstaklega grín af hlátrinum í Benna ! En tja... þessi saga er að verða löng þannig að ég klára hana hér með... þegar við löbbuðum inn í bíóið kom Benni, kalli (A.K.A. Héðinn) og bróðir hanns labbandi inn. Kvöldinu algjörlega reddað ! Við hlógum svo ógeðslega mikið í kvöld að þetta verður seint toppað. Hlógum t.d. svo mikið í hléinu áður en myndin byrjaði aftur að fólk var farið að snúa sér við og stara á okkur.... snildin ein!
Þakka þér Benni fyrir að redda kvöldinu !
Farinn að sofa, fucking mánudagur á morgunn.... ugh...
4 dagar í Dublin !
:: Gringo 01:57 ::
...
:: sunnudagur, mars 14, 2004 ::
Glæsilegt partý !
Það er ekki hægt að orða þetta öðruvísi en að þetta hafi verið alveg brilliant kvöld í gær. Ég vil bara byrja á því að þakka fyrir mig, gjafirnar og stemminguna. Mér var tjáð það í gær að það hafi verið um 160 manns í húsinu í einu þegar mest var og ekki voru margir gestir þarna fyrir utan afmælisgesti þannig að mætingin var brilliant og ekkert annað ! Þarna var allur Kópavogurinn og ekki er það nú slæmt. Gaman að sjá HK-inga þarna líka og enn og aftur þakka ég öllum fyrir komuna. Við strákarnir kíktum smá hring í bænum eftir þetta og vorum eiginlega bara fljótir að gefast upp á því. Ég er EKKI maður sem nennir að standa í röð í einhvern massa tíma til að vera svo í einhverjum troðning og veseni... pfffff
Kvöldið var samt í heildina ekkert nema frábært og það ég get varla séð fyrir mér að þetta hefði getað farið e-ð betur. Bjórinn flæddi um öll gólf og allt að gerast ;) Sá merki atburður gerðist líka í gær að Gaui Panda missti sig víst hreinlega á dansgólfinu á Hressó ! Maður er að heyra sögur af því að hann hefði bara verið kominn á sokkana og sveittur sem foli böstandi move á gólfinu sem ekki hafa sést síðan að MC. Hammer var vinsæll. Ef að einhver var svo sniðug(ur) að ná þessu á mynd... PLZ send it 2 me !!!
Ég var ekki með myndavél í gær og því óska ég hér með eftir að fólk sendi á mig myndir ef það var með vél á sér í gær...
 Úlli í góðu chilli... mynd tekin af kallarnir.is
Stjarnan-HK
Ég ætla nú að byrja að fá aðeins að tjá mig um þær umræður sem ég hef heyrt um síðustu skrif mín. Það virðist vera að sumum hafi fundist ummæli mín um chubby-tan ekki verið merkileg og það er allt af hinu góða. Það sem ég skrifa er bara mitt álit og mínar skoðanir. Persónulega finnst mér allt of mikið af því að fólk nöldri bara í sínu horni og ekkert meira. Umræða er góð og þótt að sumum finnist það sem ég skrifa ekki gáfulegt eða merkilegt, þá er það bara allt í góðu mín vegna. Ég er að reyna að koma smá umræðu í gang í kringum liðið til þess að bæði að vekja áhuga fólks á liðinu og til þess að reyna að gera e-ð gott fyrir liðið. Við strákarnir erum búnir að leggja mikla vinnu í Binnamenn og við erum ekkert að fara að hætta því eða leggja árar í bát af því einhverjir eru að væla eða ekki að nenna að standa sig. Við munum ALLTAF standa með HK í gegnum súrt og sætt og það er alveg á hreinu!
Núna að leiknum... Þetta var frekar fyndinn leikur og þá er ég aðallega að tala um dómgæsluna. Í byrjun leiks hallaði hún mikið á okkur en svo þegar leikurinn var að klárast var eins og Jónas kallinn og félagi hanns sem að ég man ekki hvað heitir fengu samviskubit og reyndu að bæta fyrir það sem þeir voru búnir að gera. Eftirlitsdómarinn átti víst alveg frábærann dag líka, sú saga gekk í bænum í gær að hann hefði mælt hversu langt bekkurinn var frá hliðarlínuni með tommustokk.... HA HA HA HA !! Hvernig væri nú frekar að einbeita sér að því að læra mikilvægar reglur leiksins í stað þess að missa sig í svona gleði ? Ekkert annað hægt en að hafa gaman af þessu þar sem við unnum leikinn og þarna komu 2 mikilvæg stig í pottinn.
Það sem stóð uppúr eftir þennann leik var það að Haukur var mættur í sóknina og gerði bara fína hluti. Hann er greinilega tæður á meiðslum en hann gaf sig allann í þetta og það er ekki hægt að byðja um meira. Atli kom aðeins inná og tróð því sem ég skrifaði um hann eftir síðasta leik svo langt ofaní kokið á mér að ég held að ég þurfi skíðastaf til að ná því upp. Frábært hjá þér Atli !! Maður leiksins fannst mér samt vera Davíð, hann fékk að vísu rautt spjald eftir að hann var búinn að fá þrisvar 2min. en það var alveg unun að sjá hann þarna í vörnini. Hann var líklegast um 20cm minni en sá sem hann var að "dekka" og örugglega 10-15kg léttari en það var alls ekki að sjá það í leiknum. Barðist eins og vitlaus maður og fær hann mikið hrós frá mér fyrir það !
Ég trúi ekki öðru en allir leikmenn HK vita að þetta er hægt, núna er bara að klára dæmið. næsti leikur er á móti Fram á þriðjudaginn og Binnamenn munu vera þar með stemmingu og við sættum okkur ekki við neytt minna en 2 stig í viðbót eftir þann leik. Núna erum við lausir úr neðsta sætinu og við stefnum lengra frá því !
Einn leikur í einu... einn sigur í einu !!
Áfram HK !
:: Gringo 18:25 ::
...
|
|