|
|
:: laugardagur, apríl 17, 2004 ::
Ný könnun
Við strákarnir erum búnir að vera að spá í því mikið hvað við ætlum að gera með uppskeruhátíð Binnamanna. Fyrstu plön okkar voru nú að halda þetta bara á Shooters í Engihjalla en núna með hækkandi sól og góða veðrinu eru að koma upp hugmyndir um að færa þessa "hátíð" út á land. Við vorum að ræða þetta aðeins áðan og eftir það var ákveðið að setja þetta bara hingað á síðuna og fólk getur þá tjáð sig aðeins.
Persónulega er ég rosalega heitur fyrir því að smala fólki e-ð stutt fyrir utan bæinn og skella okkur í útileigu eins og sannir 5aurar. Það eru svo margir góðir staðir sem við getum verið á eins og t.d. Seljavellir, Húsafell og Þórsmörk t.d. Endilega kommentið á þetta hér fyrir neðan þótt að þú sért nú ekki "skráður" Binnamaður eða kona, þá ertu auðvitað velkomin að taka þátt í uppskeruhátíð Binnamanna.
Skellið inn atkvæði og ykkar áliti....
 aldrei að vita nema að "bragginn" góði verðu brúkaður
:: Gringo 19:57 ::
...
busy... er að fara að skoða jeppa.
Kominn á lappir kl. 11:00 á laugardegi... gerði að vísu lítið sem ekkert í gær þannig að það er alveg í lagi en að vakna við lætin í krökkum er lélegt. Það eru s.s. litlir frændur og frænkur hér heima eins og oft um helgar og ekki er hægt að segja að það heyrist lítið í þessu. Ég er að vísu ekki enn staðinn upp úr rúminu mínu ... hehe. Ligg bara uppí rúmi með lappann og er að plana daginn ;) Stefnan er sett á það í dag að bruna á bílasölur og finna minn rétta jeppa ! Ég setti mér það markmið að vera búinn að skella mér á jeppa fyrir sumardaginn fyrsta og ég ætla mér að gera allt til að ná því. Það vantar ekki að það sé nóg til af jeppum á sölu en það getur verið erfitt að vera sérvitur og kröfuharður eins og ég. Núna er spurningin í hversu mikið breyttann jeppa maður fer. Menn eins og Guðjón J. eru harðir á því að ekkert nema Toyota á 38" komi til greina en ég er nú að skoða annað líka. Ég ætla s.s. að skella mér á sölur eftir smá og prófa nokkra jeppa sem að ég var búinn að sjá.
Ef að þetta gengur allt upp þá stefnir í alveg nokkrar vel góðar ferðir í sumar hjá 5aurnum. Þetta er að verða nokkuð magnaður floti sem gæti farið í góða fer.... þ.a.m.
Gaui - 38" Toyota Einsi - 38" Toyota Mundi - 38" Toyota en er að spá í að fara í e-ð American... Andri - 38" Toyota Mummi - 38" Bronco Raggi - 33" Wrangler Biggi - ????? (working on it)
Þetta eru bara þeir nánustu... ég veit um allavega 2-4 "kunningja" í viðbót sem væru til í að kíkja með.
Það má smala nokkrum í hvern bíl og við erum komnir með HUGE hóp í gott djamm í Þórsmörk, Húsafell, Seljavelli eða e-ð þannig :D
Nokkrar vinkonur okkar kvittuðu hér á síðuna um daginn og þá tók ég eftir því að þær eru komnar með blogg og læti. Þær kalla sig Saumaklúbbinn og þarna er á ferð alveg vel góður hópur af myndarlegum stúlkum ;) Sjálfur er ég að spá í að rölta niður og skella mér í sturtu... kanski að maður ætti að koma fjölskylduni á óvart og taka einn Bjössa bera í gegnum húsið... hmmm... hehe

:: Gringo 11:57 ::
...
:: fimmtudagur, apríl 15, 2004 ::
Myndir úr Páskaferðini á Akureyri 2004
Ég vill hér með þakka öllum sem mættu á Akureyri að fylgjast með strákunum keppa í Fitness um páskana fyrir skemmtilega og vel heppnaða ferð.
Hér eru svo myndirnar
:: Björn Ágúst 23:46 ::
...
:: miðvikudagur, apríl 14, 2004 ::
Halli flippar #2
 "Halli í góðum fíling"
Fólk er alveg búið að bögga mig töluvert í dag vegna þess að í dag er víst miðvikudagur og það er sá dagur sem flipp viddó af Halla #2 fer á netið. Þið sem þekkið ekki forsöguna þá er hún hérna neðar á blogginu, í stuttu máli sagt, þá gleymdi ég myndavélini minni á Bunker þar sem Halli var einn að vinna alla nóttina. Það verður ekki annað sagt að Halla leiddist alveg ógurlega um nóttina.
Lítill svefn + bjór + ekkert að gera = gott sprell !
Þetta viddó sem núna fer á netið er að mínu mati alveg frábær eftirherma af hrottalega leiðinlegu myndini The Blair Witch Project. Halli fer mikið betur með þetta en leikararnir gerðu í upprunanlegu myndini.
-----> -= Halli Flippar #2 =- <-----
Hérna er svo fyrsta myndbandið....
-----> Halli gerir tónlistarviddó <------
Þetta verður að duga ykkur þangað til á næsta miðvikudag ;) enjoy !
:: Gringo 14:35 ::
...
:: þriðjudagur, apríl 13, 2004 ::
mánudagsandi á þriðjudegi....
Ég er í alveg hel vondum mánudagsfíling og nenni ekki að skrifa neitt... urrr
Smelli bara inn nokkrum góðum myndum og viddó-spreli til að hressa upp á daginn.
 "þessi krakki er bara of svalur !"
 "ha ha ha ha ha"
 "páskarnir eru greinilega búnir"
-= smá páskaviddó.. hress kanína =-
-= getur ekki verið annað en vont ! =-
Farinn að skoða jeppa... stefnan er að vera búinn að versla einn fyrir sumardaginn fyrsta... Þórsmörk, here I come !
:: Gringo 17:10 ::
...
:: sunnudagur, apríl 11, 2004 ::
Sveittur matur ófáanlegur á páskadag !!
Það er auðvitað ekkert annað en ömurlegt að vera þunnur og ALLT er lokað ! Við enduðum fullir strákarnir í gær eftir party á Nesjavöllum (Smokesville) og sátum við drykkju fram á nótt. Tókum þá ákvörðun að sleppa því að fara í bæinn þar sem hann var bara opinn til um 3 og við vorum ekki að nenna því að gera okkur ferð fyrir svona stutt stopp. Teitið var ágætt og myndavélin mín fór á e-ð flakk með Jónka og fleirrum og úr því komu alveg vel súrar myndir.. skelli þeim inn hérna á eftir. Annars var það alveg skemmtilega ömurlegt að vera þunnur í dag og við keyrðum á Ruby, Fridays, KFC og alles en allt lokað. Svo sáum við allt í einu ljósið og duttum inn á McDonalds og átum þar á okkur gat ;) McDonalds fær alveg feitann plús fyrir þetta.
Núna er ég svo búinn að vera alveg skítþunnur í allann dag. Ég er ekki alveg að skilja það af hverju ég er svona þunnur, ég er bara eiginlega í drasli eftir "smá" drykkju, 2 daga í röð. Maður er greinilega orðinn soft, það er alveg ljóst. Ég var e-ð að spá í að skella mér á trallið með strákonum sem voru að koma að norðan áðan en ég held að ég taki þessu bara rólega í kvöld. Kanski að maður verði bara á bíl.... nehhh hehe
Smá brot af stemminguni í gær:



Hérna er svo smá viddó sem að Davíð tók upp þegar Jói Fab tók sig til og var með gríðarlega flotta (kaldhæðni) flugedlasýningu í blómabeðinu í garðinum ;)
Svo er það spurning dagsins... Hver á þennann rass ?

Ég vil byrja á því að hafa það alveg á hreinu að ég var ekki með myndavélina þegar þessi mynd var tekin. Sjálfur hélt ég fyrst að þetta væri rassinn á Óma en ef svo er... þá sé ég ekki betur en að Ómar hafi verið í bleikum naríum þetta kvöld og það er bara e-ð sem ég á erfitt með að sætta mig við. Ég vil endilega fá þetta á hreint þannig að ef þú kannast við þennann rass... endilega kommentaðu.
jæja... farinn að reyna að hressa mig við og gera e-ð af viti (líklegt) .....
:: Gringo 18:19 ::
...
|
|