|
|
:: föstudagur, maí 14, 2004 ::

Mottan 2004 er í kvöld !!! jú jú... rauðhnakkar og aðrir mottuáhugamenn, í kvöld er ykkar kvöld til að blómstra !! Við erum með neðri hæðina á Shooters undir Mottuna 2004 og svo er próflokadjamm hjá MK á efri hæðini. Ég er ekki frá því að þetta stefni í stærsta kvöld í sögu Shooters... hehe
Til að hita menn aðeins upp sendi ég hér með nokkrar demó myndir af mönnum úr vinnuni .... Þetta eru aðeins þeir sem taka þátt úr vinnuni þannig að þetta er bara brot af þeim sem taka þátt !
 "Halli góður á því"
 "detailed and ready"
 "Hlini going all the way"
 "Eiki "buff" í fíling.. gullkeðjur og bringuhár.. usss"
 "Valli ber ættarnafnið Druzin... og gerir það VEL"
 "Snorri að taka nettann Hetfield pakka"
 "Steini var e-ð sár af því að honum vex víst lítið sem ekkert skegg á efri vör þannig að hann gerði sitt besta til að vera í "stíl" við okkur hina... nice try Steini"
 "Gunni Eyjamaður að sporta sínu besta"
 "Stebbi Pulsa á eftir að hreinsa hökuna en mottan er þétt og flott!"
 Bjössi er með þessa ... alveg satt ... *hóst*photoshop*hóst*
Eins og þið sjáið, þá stefnir þetta í magnað kvöld. Þetta er aðeins smá brot af því sem verður í gangi í kvöld... Hver vill missa af þessu ???
Shooters opnar kl. 21:00.... be there or be square !
:: Gringo 09:36 ::
...
Það er fyndið að prumpa ---{prump}---
:: Ztebbsterinn 08:17 ::
...
:: fimmtudagur, maí 13, 2004 ::
SMá staðreyndir sem ég fékk í pósti
Veðrið á Íslandi
Þetta er eins og veðrið gerist best á Íslandi, svo það er best að byrja hér.
+15°C Fólkið á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga. Íslendingar liggja í sólbaði.
+10°C Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang. Íslendingar planta blómum í garðana sína.
+5°C Bílar á Ítalíu neita að fara í gang. Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.
0°C Eimað vatn frýs. Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkra.
-5°C Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða. Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.
-10°C Bretar byrja að kynda húsin sín. Íslendingar byrja að nota langerma boli.
-20°C Götusalar byrja að flýja frá Mallorca. Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð!
-30°C Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar. Íslendingar hætta að þurrka þvott úti.
-40°C París byrjar að gefa eftir kuldanum. Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.
-50°C Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum. Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir alvöru vetrarveðri.
-60°C Mývatn frýs. Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við.
-70°C Jólasveinninn heldur í suðurátt. Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið sitt úti. Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.
-183°C Örverur í mat lifa ekki af. Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.
-273°C Öll atóm staðnæmast vegna kulda! Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.
-300°C Helvíti frýs! Ísland vinnur Eurovision!
:: Björn Ágúst 14:41 ::
...
:: þriðjudagur, maí 11, 2004 ::

Þá er allt komið á hreint með keppnina. Hún verður s.s. haldin á Shooters í Engihjalla þar sem við höfum staðin fyrir okkur og þetta stefnir í rosalegt kvöld held ég bara. Erum með góð tilboð á barnum handa öllum sem koma og svo fá auðvitað þeir sem taka þátt í keppnini drykk í boði Shooters! Einnig verður líklegast einhver spes kokteill eða skot í tilefni kvöldsins sem einnig verður á tilboði. Þema kvöldsins er auðvitað bara allt tengt mottu, það getur verið allt frá því að vera klæddur eins og skytturnar þrjár út í það að vera redneck í gegn. Það virðist vera mikil stemming fyrir þessu kvöldi og stefnir í alveg magnað kvöld !!
Allir eru velkomnir að taka þátt í gleðini og ég skora á alla sem lesa þetta að kíkja við og fá sér einn eða jafnvel tólf bjóra !!
Húsið opnar kl. 21:00
 "Be there or be square!"
Þeir sem taka þátt í keppnini verða svo myndaðir um kvöldið og svo er kosið hér eftir keppnina.
- Hver mun taka verðlaunin Mottan 2004 ?? - Hver verður með sorglegustu tilraunina ??
Allt að gerast... þetta er viðburður sem þú ættir ekki að missa af !
:: Gringo 16:31 ::
...
Meira kattaglens, en í þetta skiptið fyrir alla aldurshópa.. --{Klikkaðu hér}--
:: Ztebbsterinn 13:01 ::
...
:: mánudagur, maí 10, 2004 ::
Hvernig er planið ?
Ég var aðeins að spá núna í gær hvað maður ætlar að gera af sér í sumar. Núna er maður kominn á jeppa þannig að útileigurnar verða vonandi alveg vel margar en það er nú aldeilis ekki allt sem maður ætlar að gera af sér í sumar. Það eru nokkrir atburðir sem eru búnir að vera til umræðu núna undanfarið og ég ætla að taka þá aðeins saman hérna á eftir og fjalla um þá e-ð líka.
- Föstudagurinn 14. Maí - Mottan 2004 - Grill í Heiðmörk
...Grill í Heiðmörk...
Samkvæmt meðlimum Hjallana er verið Pétur Ben að plana það að halda aðeins uppá afmælið sitt í Heiðmörk á föstudaginn. Stefnan er sett á grill og leði og kanski best að lesa bara um það á síðu Hjallana.
...Mottan 2004...

Jú jú.... kvöldið sem allir menn með mottur hafa beðið eftir lengi er að renna upp. Við ætlum að hittast allir saman á Shooters í Kópavogi (Engihjallanum... a.k.a. Da Gettó) á föstudagskvöldinu. Gleðin byrjar um 21-22 en nánari dagskrá Mottunar 2004 kemur á morgunn eða seinna í kveld. Tilboð verða á drykkjum handa fólkinu og allir eru auðvitað velkomnir að mæta, því fleirri = því betra bara ;)
- Helgin 2. til 4. Júlí - Kópstock 2004 - Metallica tónleikar
...Kópstock 2004...
Þetta verður alveg án alls vafa ein allra svakalegasta útihátið ársins. Erum að spá í að sameina allt í eitt og jafnvel hafa Uppskeruhátíð Binnamanna á sama stað og tíma og Kópstock. Útileiga, grill og geðveik stemming er það sem stefnan er sett á. Sjálfum finnst mér mjög sniðugt að sameina þetta í eitt HUGE festival þar sem þetta er mikið til sama fólkið í þessum hópum sem þarna verða. Þeir hópar sem hafa s.s. boðað komu sína á Kópstock 2004 eru: - 5aur - Binnamenn - Kallarnir - Hjallarnir
Skilst að í fyrra hafi komið milli 100-200 manns á þetta festival og ég get alveg lofað fólki því að það verður sko stærra í ár, það er alveg á tæru !
...Metallica Tónleikar...
Það er furðulegt af þeim sem eru að halda þessa tónleik að velja fyrstu helgina í Júli. Þetta er ein stærsta ferðahelgi ársins og svo er auðvitað Kópstock í gangi sömu helgi og menn eins og James Hetfield ættu að vita það að fólk kemur ekki alveg heilt á geði af svona hátíð. Þetta er auðvitað svolítið erfitt að vera með 2 af stærstu viðburðum árins á sömu helgi en það gengur alveg upp. Það verður bara djúsað alla helgina og svo farið beint á tónleika með Metallica... Hversu góð helgi er það ???? Eitt sem ég skil ekki alveg samt, Metallica ætti auðvitað að vera bara að spila á Kópstock 2004, greinilegt að metnaðurinn er ekki alveg sá sami hjá þessum köllum og hann var þannig að þeir láta það duga að glamra í Egilshöll.
- Helgin 16. 18. Júlí - Fullveldishátíðin í Hrísey
...Fullveldishátíðin í Hrísey...
hehe... núna eru örugglega nokkrir sem skilja hvorki upp né niður í því af hverju þetta er á dagskrá okkar 5aura. Þannig er mál að eftir hringferðina okkar í kringum landið í fyrra var ákveðið að við ætluðum að fjölmenna á þessa hátíð. Ég hef kíkt á þessa hátíð síðustu 2 ár þar sem bústaðurinn minn er þarna beint á móti. Þetta er þvílík snilld og rosalegt djamm. Það verður seint tekið af fólkinu fyrir norðan að það kunni að skemmta sér. Þarna er s.s. festival í gangi alla helgina, með hljómsveit, flugeldasýningu, brennu og öllum þeim pakka. Síðast þegar ég var þarna voru Paparnir að spila og þeir hættu ekki fyrr en um 5-6 um nóttina ef mig minnir rétt. Það fer ferja út í Eyju oft á dag og það er aðeins um 5 min. ganga frá þeim stað þar sem ferjan kemur á land í sumarbústaðinn sem fjölskyldan mín á þannig að þar er hægt að geyma bíla og dót. Þetta er alveg 100% 5aura djamm stemming þarna og ekki skemmir það fyrir að við vorum að fá samþykkt tilboð sem fjölskyldan var að gera í bát þannig að Biggi getur tekið hópinn á sjóinn ;) úff hvað mig hlakkar til !
Þetta er svona smá samantekt í mjög grófum dráttum, held að það stefni í mjög gott sumar ;)
Annars er það helst í fréttum að ég og Binni erum að fara að búa saman... hehe... Formaðurinn og Binninn sjálfur saman undir þaki. Við ætluðum að flytja í íbúðina mína 1. Ágúst en núna er komið nýtt plan á það. Stebbi bróðir minn og hans myndarlega fjölskylda eru að fara að "flytja" í sumarbústaðinn sinn í 3 mánuði (Júli, Ágúst og September)og ég og Binni ætlum að leigja íbúðina þeirra í þessa 3 mánuði og flytja svo í mína íbúð eftir það. Þarna erum við s.s. að fá 80 fm. íbúð með öllu í 3 mánuði til að hita upp fyrir sambúðina í Fögrukinn ;)

:: Gringo 18:31 ::
...
|
|