|
|
:: laugardagur, júní 05, 2004 ::
# Skilaboð sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 21:01 ::
...
:: fimmtudagur, júní 03, 2004 ::
Feita barn !!
Þetta er líklegast það allra feitasta barn sem að ég hef séð... juminn eini !!
smellið hér til að skoða viddóið
:: Gringo 17:53 ::
...
Fólkið í vinnuni hafði greinilega lítið að gera í dag... ef þetta er ekki 5aur... þá veit ég ekki hvað.

Alls voru 13 manns með þetta nick á MSN ... sprellað út í gegn!
:: Gringo 15:22 ::
...
Ég bara varð ....

... og önnur hér ...
:: Björn Ágúst 00:06 ::
...
:: miðvikudagur, júní 02, 2004 ::
Ólafur Ragnar er með hreðjar eftir allt !
Þá er það komið á hreint að maður á eftir að kjósa Ólaf Ragnar í næstu kosningum. Ég vil bara óska manninum til hamingju með það að hafa fundið á sér hreðjarnar, ég var nokkuð viss um að hann hafi skilað þeim inn þegar hann tók við þessu embætti.
Frétt tekin af mbl.is : Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tilkynnti á blaðamannafundi á Bessastöðum að hann hefði ákveðið að synja því að staðfesta fjölmiðlalögin, sem Alþingi samþykkti í síðustu viku og vísa þeim í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fari fram eins fljótt og unnt er. Ólafur Ragnar las upp yfirlýsingu þessa efnis á blaðamannafundinum og sagði að skort hefði samhljóminn sem þyrfti að vera milli þings og þjóðar í svo mikilvægu máli. Hann sagðist hafa í dag gert forsætisráðherra og utanríkisráðherra grein fyrir ákvörðun sinni og efni yfirlýsingarinnar.
 "hetja dagsins !!"
Það er ágætt að vita af því að Forseti okkar geri e-ð annað en að fara í kokteilboð og ferðast.
:: Gringo 16:28 ::
...
 1300cc Mitsubishi Colt
WHAT THE FUCK ?!?
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 00:12 ::
...
:: mánudagur, maí 31, 2004 ::

Það er komið að því.... úrslitin eru ráðin og hér koma þau:
-= Mottan 2004 =-
-= Mottan 2004 =-
Úlli endaði með því að taka titilinn í ár og það er ekki hægt að þræta fyrir það að hann á þetta alveg skilið. Frábær motta hjá drengnum og hann sannaði það að hann er að hluta til ættaður frá Þýskalandi. Það er alveg nokkuð ljóst að það sem sumum finnst flott finnst öðrum hræðilegt þar sem þeir sem voru í fyrsta og öðru sæti í keppnini um bestu mottuna komust einnig inn á topp 10 yfir verstu mottuna. Smekkur fólks er misjafn og það er bara hið besta mál. Alls voru það 589 atkvæði sem féllu í þessari kosningu og það er alveg magnað. Það sést á þessari síðu að það er hópur sem stakk af í þessu og botnbaráttan var hörð enda voru aðeins 5 atkvæði á milli 18. og 10. sætis að þessu sinni.
-= Sorglegasta Tilraunin 2004 =-
Raggi fór nokkuð létt með að sigra þessa keppni og það er þess virði að taka það fram að hann er sá maður er hlaut flest atkvæði í einum flokki, alls 104 atkvæði sem er alveg magnað! Það er alveg deginum ljósara að Raggi á titilinn -= Sorglegasta Tilraunin 2004 =- algjörlega skuldlaust. Hlaut aðeins 7 atkvæði fyrir -= Mottuna 2004 =- en aðeins Vöggur var þar fyrir neðan hann en Vöggur var samt sem áður heilum 97 atkvæðum á eftir Ragga í -= Sorglegustu Tilraunini 2004 =- þannig að Raggi gjörsamlega fór hamförum í ár. Til hamingju Raggi ! Alls voru 405 atkvæði í þessum flokki.
Að lokum er það smá samantekt á stigum í báðum keppnum, þetta er reiknað þannig að hvert atkvæði sem fellur á keppanda í -= Mottan 2004 =- kemur sem plús en hvert atkvæði sem fellur á keppanda í -= Sorglegasta Tilraunin 2004 =- kemur sem mínus.
-= Mottan 2004 Meistarinn =-
#1 Úlli 83 # 2 Stebbi "Cowboy" 70 # 3 Biggi "Gringo" 65 Árni Karl 47 Stebbi "Panda" 47 Valli 44 Halli 19 Hlini 6 Davíð 2 "Don" Gunnar 2 Eiki "Buff" 1 Ómar Smith -1 Vöggur -2 Gunni -8 Bjössi -10 Grjóni -20 Jói "Fabio" -64 Raggi -97
Þarna kemur þetta í ljós... Úlli tekur titilinn í ár og núna vita menn hvað þeir eiga að gera ef að þeir ætla sér að eiga einhverja von í að sigra á næsta ári. Menn eru hér búnir að setja ákveðna standarda hvort sem það er gæði líkt og efstu sætin eða skortur á þeim eins og Raggi sýnir með því að vera aðeins 3 atkvæðum frá því að vera í -100 sem verður erfitt að toppa á næsta ári.
Ég vil bara þakka öllum þeim sem tóku þátt í þessari frábæru keppni í ár, hvort sem það var með því að taka þátt, kjósa eða mæta á kvöldið sjálft á Shooters. Þetta hefur verið alveg gríðarlega skemmtilegt og ekkert annað.
Smellið hér til að sjá hvernig atkvæðin féllu á alla.
Myndir frá deginum sem -= Mottan 2004 =- var haldin.
:: Gringo 16:39 ::
...
3 day weekend... love it
Þá er maður kominn heim eftir góða fyrstu ferðahelgi. Fórum á Laugarás sem er rétt við Skálholt og það var frekar langt frá því að vera leiðinlegt að slappa af þar í geggjuðu fellihýsi í °16-°18 hita. Þarna var slatti af liði sem maður þekkti og svo komu hinir og þessir í heimsókn, frábær helgi og ekkert annað.
Þetta er óvenju góður mánudagur, ekkert hræðilegt hefur gerst í dag en það er kanski bara vegna þess að ég er lítið sem ekkert búinn að gera. Vakna, éta, chilla og jeyra heim er allt sem ég hef gert í dag... hehe. Núna er að taka saman úrslitin í keppnini Mottan 2004 og þau koma á netið eftir nokkrar min.... skil ykkur eftir með smá skemmtiefni rétt á meðan ;)
 "ha ha ha... love it !"
Einhver DJ í slapfest við army gaur... hevý bjartsýnn.. HAHA !!
Loksins komin not fyrir heimilisköttinn !
:: Gringo 16:02 ::
...
|
|