|
|
:: laugardagur, júní 12, 2004 ::
Rosalegur fótboltadagur !!
Þessi dagur hefur verið gríðarlegur !! Vaknaði við það að geitungur væri sveimandi yfir hausnum á mér !! Það er eitt það versta að vakna við, bara ógeðslegt !! Gat ekkert sofnað aftur og var alveg 45 min í mætingu í vinnu. Jæja, þá var bara að chilla og var það alveg í lagi, vegna þess að HK - ÍA var í dag ! Það er óhætt að segja að þessi leikur hafi verið skemtilegri en báðir leikirnir á EM til samans !!! Bara til að gera langa sögu stutta, þá unnum við Skagamenn(sem eru í fjölmiðlabanni, puhh !). Þetta var tryllt, er ekki frá því að maður hafi verið að rifna úr stolti ! Lifi HK, að eilífu, AMEN ! Að mínu mati var Árni Thor maður leiksins, þvílíkur kóngur ! Og bara varnarvinnan á liðinu, hún var rosaleg. Rabbabara rúna á eftir leik var helv góð líka :) En "allavega", til hamingju strákar og HK. Þetta er sögulegur dagur !
p.s Þetta mark var ROSALEGT !!!! B-O-B-A !
:: Brynjar 21:16 ::
...
:: föstudagur, júní 11, 2004 ::
Günther and the Sunshine Girls
Ryksugan á fullu, étur alla drul......nei, sko aldeilis ekki !! Það er sko GÜNTHER and the Sunshine Girls sem "virkar" ! Þar sem línur eins og " óóóhhhh....ú touch my tralala....hmmm....my ding ding dong", sem allir kannast við eru í spilun(hjá mér aðallega) !!! Ef þið komið í heimkynni mín þá sjáiði og heyrið að Günther á hug minn allann. Vill bara benda ykkur á þennan snilldar tónlistarmann ! Ekki, og ég segi EKKI láta þennan mann framhjá ykkur fara !
www.gunthernet.com

Günther and the Sunshine Girls í góðum fíling
:: Brynjar 18:28 ::
...
Maður eða mús...
Fröken XXXX er heldur betur búin að vera vinsæl hérna hjá okkur og margir búnir að skora á hana til að senda okkur aðra mynd af sér og það er allt í skoðun síðast þegar ég vissi. Það er búið að vera að pressa mikið á mig til að fá mig til að kjafta hver þetta er en ég get sagt að það fer ekkert lengra.
Núna allt í einu er komin allt önnur pressa á mig og ekki sú pressa sem ég bjóst við. Magga vinkona er núna búin að koma með áskorun á mig á blogginu sínu. Ég er nú ekki þektur fyrir það að gugna þegar skorað er á mig og ég er að spá í því að breyta ekkert út af vananum í þetta sinn. Ég fer nú samt ekki að sýna þessa mynd án þess að Magga nái því markmiði sem hún hefur sett. Trúi því nú varla að ég sé búinn að taka þessari áskorun en ekki fer maður að gugna, það er alveg ljóst.... Greinilegt að það eru ekki bara karlmenn sem skoða 5aurinn...
Þetta er nú ekki sú heimskulegasta áskorun sem ég hef tekið en kemst nú örugglega nálægt því samt... crap...

:: Gringo 17:14 ::
...
:: fimmtudagur, júní 10, 2004 ::
sól sól og aftur sól !
Hvað er hægt að gera í þessu veðri ??? ÖSSS !!
Ég drullaði mér snemma á lappir í dag og dró Grjóna með mér í sund þar sem var chillað feitt og unnið vel í taninu. Núna er maður að mæta í vinnuna og mig langar ekkert of mikið að sytja inni í dag, það er alveg á hreinu. Fékk SMS frá Jósa (Mr. Kallrnir.is) í morgunn þar sem hann var á leið til Köben, helvítið af honum. Skemmtið ykkur bara vel kallar og skiliði kveðju til Stínu frá mér... hehe
Ég átti smá umræðu um veðrið við eina vinkonu mína í gær og hún endaði þá umræðu með því að senda mér mynd hvað hún gerði um daginn. Sólin var víst ekki nóg handa henni þannig að hún skellti sér í tan session og var svo myndarleg að senda mér MMS mynd af því. Auðvitað fer þetta beint á aurinn en ég mun ekki taka það fram hver þetta er. Ekki einu sinni reyna það strákar, ég varð að lofa því svo að þetta mætti fara hingað inn. Njótið bara vel og lengi... hehe
 "lítið hægt að gera í þessu... "
Vonandi fáum við bara meira svona... er það ekki fröken XXXXXXXX ??
Ef ykkur langar í meira... skrifið það þá í comments hér fyrir neðan bloggið !
p.s. gaman að heyra að Binni er búinn að skrifa undir samning við HK... fólk getur því búist við því að sjá Binnamenn aftur næsta ár í fullu fjöri ;)
:: Gringo 13:58 ::
...
Halló....halló....halló....halló !
Ég hef ákveðið að skrifa hvað ég gerði seinustu helgi, bara til að breyta aðeins til hérna á aurnum. Föstudagur: Strákarnir(Gaui, Guðni F og fl.) að fara í Húsafell og mig langar með en er búinn að lofa mig í vinnupartý ! Þannig að ég fer með þeim í Sporthúsið mjög seint og kem út rúmlega níu, þá liggur leiðin í Garðabæinn í vinnupartý þar sem sumir misstu sig og aðrir ekki(endaði með því að fara í körfu í nýpressaðri skyrtu við einn af yfirmönnum mínum. Vann að sjálfsögðu !). Við ungu strákarnir vorum svo plataðir á Players og ég get sagt ykkur það að ég var þar inni í 10min og 3 sek ! Var farinn þaðan út og leðin lá í bæinn. Það er samt ótrúlegt hvað Players getur verið "stappaður" af gömlu, ljótu og leiðinlegu fólki ! Kannski vegna þess að Stuðmenn voru að spila. Fær fólk ekkert leið á Stuðmönnum ?? Jæja, leiðin lá í bæinn með Kalla og Hirti(vinnufélagar) og ætluðum við á Hressó en hitti ég mann í hurðinni á Pravda og hann hleypti okkur þar inn. Fórum á barinn og litum aðeins í kringum okkur og viti menn, það var alveg sama hvað var í spilun(hvort það var rólegt lag eða ekki), fólk var bara í því að missa sig !! Af hverju ætli það sé ?? Fórum svo þaðan út og ætluðum á Hressó en Biggi var bara búinn að loka og var að skutla einhverjum litlum stelpum heim ! USSS, þú átt að skammast þín ! ;) Við fórum þá bara á Hverfisbarinn og birtan þar inni er alveg ómótstæðileg. Frábært að fara á svona skemmtistað þar sem sólin tekur á móti manni, er það ekki !?? Við Hjörtur týdum Kalla þar inni þannig að leiðin lá í Bitabílinn. Fékk ég mér "rottu" og mikið rosalega var hún góð. Hún næstum því slær út Kópavogsnesti, næstum því ! Ég var svo heppinn að hitta Sigrúnu(big titties) og Örnu þar og var með far heim, úff hvað það var gott að þurfa ekki að taka leigubíl ! Chillið fyrir utan Bitabílinn endaði svo með því að einhver gaur sagði að Sigrún væri með lítil brjóst(sem mér fannst frekar fyndið) og þá trompaðist Arna og tók kókið sitt hellti yfir vitlausan gaur, hellti yfir Hjört vinnufélaga minn(þarna var ég að springa úr hlátri !). Greyið Arna var alveg eins og auli, fyrigefðu, fyrirgefðu, ætlaði ekki.... Lá svo leiðin bara heim á leið.
Laugardagur: Þessi dagur var ekkert slæmur. Fór á Stælinn með Ómari, horfðum svo á Enska landsliðið taka það Íslenska í taðgatið ! Leit með Ómari á Skjáfta og var þa nokkuð fyndið. Fullt að tölvunördum að spila tölvuleiki og Bjössi að stjórna þeim öllum ! Harry kom og hitti okkur þar um stund á frekar flottum Lexus(ekki hans eigins), hann leyfði mér að sitja í smá hring og var þetta vel þess virði að fara með krullurnar á rúntinn ! Þessi bíldrusla er rosaleg ! Fórum við Ómar svo heim til Harrys og byrjuðum að drekka. Fékk nokkur skot af Absynt og maður var helv ferskur. Fórum svo í bæinn, fyrst á Hressó(hitti fullt af fólki þar) svo á Pravda og fann Óma þar !! Litli "beilari" ! Lentum í helv skrítnum atviki þar, vorum uppi að dansa og allt í einu brjótast út slagsmál og mér finnst eins og þeir hafi tekið Ómar og fer inn í hrúguna og ætla að ná í hann, er e-ð byrjaður að reyna og kemur þá Ómar aftan að mér og rífur í mig. Ómar hefur sem sagt verið svo fljótur að hoppa frá þessu að ég tók ekki einu sinni eftir því ! Góð viðbrögð Ómar ! Fórum svo út og ætlaum að fá okkur "rottu" á Bitabílnum og hittum þar sömu stelpur og ég hitti daginn áður nema að það var Idol stjarna með þeim(Tinna). Stríddi ég henni aðeins of mikið og varð hún solltið sár á endanum(öskraði e-ð).Þá Sagði ég: "fyrirgefðu, ég hélt með þér sko" ! Reyndi að bjarga mér útúr þessu. En allavega fórum við svo öll heim saman í leigara.
Jæja, þetta var föstudagur og laugardagur(seinasta helgi) hjá mér. Það er svo langt síðan einver skrifaði e-ð hér fyrir utan Bigga að ég bara varð ! kveðja, Brynjar #6
p.s Er búinn að skrifa undir samning við mitt félag, HK !
:: Brynjar 12:14 ::
...
:: miðvikudagur, júní 09, 2004 ::
 Omi getting his tan on!
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 19:04 ::
...
Helgin....
Þetta var alveg ágætis helgi held ég bara. Var að vinna á föstudaginn og stemmingin í bænum var frekar róleg. Að vísu kom einhver 200 manna hópur frá Eimskip sem gat verið erfiður en kvöldið ágætt í heild sinni. Eftir vinnu var svo bara haldið heim og pakkað fyrir óvissuferð sem að ég var að fara í daginn eftir með Vodafone. Vaknaði svo á Laugardaginn eftir um 5 tíma svefn og fór uppí Síðumúla þar sem átti að hittast fyrir ferðina. Það var búið að spá rigningu og leiðinlegu veðri en sem betur fer rættist ekkert úr því. Fengum alveg þessa þvílíku rjómablíðu að hálfur hefði verið hellingur. Ég nenni nú ekki að fara í smáatriðin úr þessari ferð en hópnum var s.s. skipt niður í lið og svo byrjaði keppnin. Fengum MJÖG fjölbreytt verkefni og þar má m.a. nefna prjónavinnu, gátu og önnur verkefni sem reyndu á huga og líkama. Við máttum ekki byrja að drekka fyrr en seinna um daginn og það var nú heldur betur góð ástæða fyrir því. Eftir pulsustopp í Húsafelli var farið upp á Langjökul í vélsleðaferð og þið sem þekkið mig vita vel að það er fátt skemmtilegra í mínum augum en að komast upp á jökul og leika mér, hvað þá ef það er sleði með í för ;)
 "hópurinn á leið á sleða"
 "veðrið og útsýnið geggjað!"
Eftir að við komum niður af jöklinum byrjaði bjórinn heldur betur að flæða og það tók ekki langann tíma áður en hópurinn var byrjaður að syngja hátt og ... tja... hátt. Við kíktum svo aftur í Húsafell og fórum í sund. Nokkrir hressir drengir tóku þá ákvörðun að bera sig í heita pottinum og öllum fannst það nokkuð fyndið... alveg þangað til að einhver pabbi kemur labbandi í áttina að pottinum með 3 börn. Hann tók góðan sveig í kringum pottinn þegar hann tók eftir því að í honum voru nokkrir karlmenn berir að neðan. Þetta fór ekkert allt of vel í sundlaugavörðinn þannig að strákarnir voru sendir í sturtu. Eftir sundið tók við þetta fína grill og svo tókum við upp gítarinn og það var heldur betur sungið hátt (eins og fólk getur hlustað í hér neðar í blogginu sem ég sendi frá Húsafelli).
Það voru nokkrir 5aurar í góðu glensi í Húsafelli og ég hitti þá aðeins en því miður hafði ég ekki tíma til að kíkja almennilega á þá. Eftir að hafa skemmt sér konunglega í Húsafelli lagði rútan svo af stað aftur í lágmenninguna. Ég var átti flug kl. 07:30 um morguninn daginn eftir og ég var ákveðinn að mæta í það þannig að ég kíkti bara í smá gleðskap eftir að ég kom í bæinn. Það var hann Harry sem var með smá sprell og ég mætti þangað alveg VEL hress. Harry tók sig svo til og jarðaði mig með því að gefa mér slugs af Absinto flöskuni sinni. Þetta Absinto helvíti varð til þess að ég varð einum of hress og eitt leiddi af öðru og Biggi kallinn missti af fluginu norður morguninn eftir... hehe. Ég hafði mig nú samt á lappir og á flugvöllinn en þar var vélin akkúrat að fara þegar ég kom... CRAP !!! Mig grunar samt að þetta hefði verið ömurlegast flugferð í heimi hefði ég náð henni en ég fór bara heim aftur og drapst þar... vinalegt.
Sunnudagurinn var ekki hress... það er alveg nokkuð ljóst. Harry og Binni komu og drógu mig á American Style þar sem ég rétt náði að troða í mig 1/2 hamborgara, ÖSSS hvað maður var tjónaður. Ég var samt ekki á því að láta daginn fara í ekki rass þannig að ég og Binni fórum í Nóatún og versluðum grillmat og mamma-Biggi tók sig til og eldaði ofaní Binna litla. Sátum svo bara á pallinum með gashitarann í gangi og sötruðum bjór. Fólk kom og kíkti á okkur og svo var það bara DVD chill seinna um kveldið.
Mánudagurinn var frídagur hjá mér þar sem ég átti víst að vera á Akureyri (Harry... damn you!!) þannig að það var letidagur DAUÐANS. Nennti ekki að gera skít þannig að það var akkúrat það sem ég gerði þann dag... hehe
Það sem er einna helst í fréttum núna er það að Chuck Norris (jeppinn minn) er kominn með 05 skoðun... ÖSSS... magnaður fjandi !!
Enda þetta á smá húmor eins og oftast.... sjóóó
Man ekki hvort að ég var búinn að pósta þessu víddói hérna inn en þetta er bara einum of gott... ;)sjá hér
Rafmagnsgirðing getur verið ótrúlega skemmtileg ;) sjá hér
 Hversu góður er þessi ?"
p.s. Davíð, Grjóni og Tottarinn eru víst að fara að missa Nesjavelli... gangi ykkur vel drengir að finna nýjann chill stað ;)
:: Gringo 16:40 ::
...
:: þriðjudagur, júní 08, 2004 ::
Þriðjudagur... en samt eiginlega mánudagur hjá mér....
Ég nenni eiginlega ekki að koma með sögu helgarinnar strax þar sem ég er alveg ofboðslega latur í dag e-ð.... læt duga að negla hér inn nokkrum viddóum í bili....
Hversu hellað er að vera á leið í vinnuna og þetta ógeð er undir bílnum þínum ??
Einn kani alveg gjörsamlega að missa sig... sjá hér
Flokkast þetta ekki undir misnotkun á manni ef að hann getur ekki einu sinni staðið upp og varið sig ? BAD DOG !! sjá hér
Mjög vinalegt drive by... (varúð... smá smekkleysa í gangi) sjá hér
Hversu mörg Tequila væru komin í belginn á manni til að maður væri í þessari aðstöðu ? sjá hér
Þetta er mjög skemmtilegt sport hjá henni en hún mætti nú alveg spenna beltin... play it safe skiluru ? sjá hér
Tékkið á því hvar hausinn á konuni er rétt áður en aldan kemur... HA HA HA HA !! sjá hér
Þessir kanar eru alltaf jafn gáfulegir í sínum aðgerðum.... EVIL ! hér
:: Gringo 20:52 ::
...
Magga vinkona sendi mér þetta viddó... þvílík snilld !!
Smellið hér
LOL
:: Gringo 17:38 ::
...
|
|