Maður vaknaði frekar myglaður á laugardaginn og það var ákveðið að skella sér í land og fara á Dalvík í sund og í ÁTVR til þess að bæta á forðann svo að maður væri nú allveg 110% ekki að lenda í því að verða áfengislaus. Fórum í sund á Dalvík og sprelluðum mikið þar. Hittum þar Ella úr HK, Grjóna markmann og Lalla. Þeir voru í djammferð á Akureyri í góðum fíling. Þessi vanalegi sundpakki okkar var auðvitað púllaður á Dalvík. Hlandað var í sturtuna eins og alltaf er gert (Raggi úðari) , boltaleikur og svo kom upp skemmtilegt vandamál hjá Ómari og seinna meir Grjóna líka. Ómi kom yfir í sundlaugina til að komast í kaldari vatn af því að e-ð var að gerast í kjallaranum hjá honum. Hann var s.s. að tjalda með félaganum niðri. Við sprungum úr hlátir þar sem Ómi gat ekkert farið fyrr en tjaldið hafið fallið niður hjá honum. Svo þegar við ætluðum að skella okkur í sturtu gat Grjóni ekki staðið upp sökum þess að hann átti við sama vandamál að stríða. Það er því nokkuð ljóst að stúlkurnar sem voru með okkur í sundi (Sísí, Hrafnhildur, Þórdís og Kristín) voru e-ð að kveikja í mönnum... hehe
Eftir sund fórum við og fengum okkur sveitt rottu á Olís á Dalvík og svo fórum við á Lækjarbakka í smá chill með gamla settinu mínu. Mamma og Pabbi voru algjört æði þessa helgina (eins og oftast) og við fengum alltaf nóg að éta og gotterí þegar við komum til þeirra. Við reyndum nú að svara greiðanum og hjálpuðum pabba aðeins í þeim framkvæmdum sem hann var í í kringum bústaðinn. Vorum að moka með honum og reyna að gera e-ð gagn. Það var ákveðið að skella sér í göngutúr um landið okkar þarna en þegar við vorum komin töluvert á leið upp í móa gáfust flestir upp en ég, Sísí og Hrafnhildur héldum áfram (erum svo mikil náttúrubörn) og enduðum á því að labba alveg góða vegalengd um allt svæðið. Kríurnar létu okkur mest megnis í friði þar sem ungarnir eiginlega allir farnir að geta bjargað sér. Sáum samt alveg nokkra unga í þessum skemmtilega göngutúr. Ég hef örugglega labbað þetta svæði allt fram og tilbaka alveg endalaust oft en ég fæ bara aldrei nóg af því. Þetta er besti staður í heimi finnst mér. Love it !
Við komum svo aftur niður á Bakka eftir þennann göngutúr þar sem allir voru búnir að koma sér vel fyrir og sumir farnir að hella í sig. Pabbi var þá það góður að bjóðast til að skutla okkur aftur yfir í Hrísey á nýja bátnum okkar og það var nokkuð skemmtileg ferð. Það var smá undiralda og báturinn vaggaði smá á leiðini og maður gat alveg horft á andlitið á Sísí og séð hvað var í gangi...hehe Greyið stelpan er smá sjóhrædd og þessi veltingur var ekki alveg að fara vel í hana ;)
Þegar við komum aftur út í eyju var ekki annað hægt en að byrja á því að skella í sig meira b00ze og hita upp fyrir kveldið. Svo kíktum við á útitónleikana sem voru í gangi og horfðum á m.a. Ladda og The Mighty Gareth og fleirra. Eftir að það var búið fórum við og náðum í smá meira b00ze og svo var kíkt á brekkusöng og brennu. Ég er nú ekki alveg viss hvaða menn þetta voru sem voru fengnir til þess að sjá um brennuna en ég held að þeir verði nú ekki notaðir aftur. Þetta voru bara einhverjir bölvaðir brennuvargar og sturtuðu alveg endalausu magni af bensíni á brennuna sem varð til þess að þetta var eins og að sytja í helvíti. Fólk var farið að troða sér ofar í brekkuna vegna þess að maður var hreinlega að grillast fyrir framan þetta bál. Maður var kominn á það stig að vera bara á bolnum í hitanum og fílaði sig bara nokkuð vel. Það var mikið sungið þarna og þegar brekkusöngurinn var búinn var kíkt á smá rölt, fjörupartý again og svo auðvitað nikkuballið aftur. Það klikkaði ekki frekar en kvöldið áður og Raggi fór á kostum þetta kvöldið líka. Núna var hann búinn að ákveða það að reyna við stelpuna sem var að vinna á barnum. Hann gjörsamlega festi sig við hana og böggaði hana endalaust. Hann svo endaði þetta með alveg brilliant setningu sem var einhvernveginn svona : "ég hætti ekki að reyna við þig fyrr en þú gefur mér e-ð að drekka", þetta virkaði líka svona rosalega að Raggi fékk bjór, 2 skot og símanúmerið hjá henni sem að hann er alveg örugglega búinn að tína núna. he he... líklegast með verri pikk-up línum en virkaði samt... Hann kanski kann þetta eftir allt ;)
Þegar fólkið komum svo aftur af ballinu (ég var að vísu ekki með í för) þá kom það að Sísí þar sem hún hafði ákveðið að leggjast "aðeins" í grasið og lúlla smá. Hún s.s. komst ekki alveg að tjaldinu og svaf því bara fyrir utan það þangað til að fólkið kom á svæðið og skutlaði henni inn. Einhver sagði að Sísí hafði bara verið á beit þar sem hún lá með grímuna í grasinu þegar hún fannst. Ragga og Binna fannst þetta svo mikil snild að þeir eru enn að jafna sig á þessu augnabliki. Ég held að ég hafi verið að skrölta heim í vagn um 7 um morguninn og reyndi að sofa e-ð en það var bara svo geggjað heitt og gott veður að það var ekki hægt að vera inni og kafna. Ég tók mér bara dýnu ásamt Ómari og við sváfum bara undir berum himni í þessu líka geggjaða veðri. Þetta varð auðvitað til þess að maður sólbrann duglega en það er allt búið að jafna sig núna og það eina sem er eftir er náttúrulegt norðlenskt tan ;)
Sunnudagur
Sunnudagurinn fór svo hreinlega bara allur í það að hanga í sólbaði og drekka bjór. Alveg geggjaður dagur í aleg frábæru veðri. Stefnan var svo tekin heim bara um kveldið og þvílíkur svefngalsi sem var í bílnum á leið heim. Við vorum 4 í bílnum en hefðum við lagt restar af viti okkar í púkk, hefði þetta samtals náð í heila sem ætti að vera svipaður af stærð og sá sem íslenska sauðkindin hefur. Við vorum alveg gjörsamlega heiladauðir og húmorinn í bílnum á leiðini heim var í takt við það....
Í heildina var þetta alveg geggjuð ferð, þvílíkt gaman með frábærum hópi. Þetta er ferð sem að ég væri til í að fara anyday aftur. Þið sem ekki fóruð misstuð af miklu.
Setningar ferðarinnar :
Held að það sé alveg á hreinu að Raggi á þær allar, þær eru 3 sem standa uppúr:
-
hey, maður talar ekki við fólk í ullarpeysum ! - sagt við vinkonu Kristínar sem að hann var að reyna við þegar hún var að tala við strák í ullarpeysu. Raggi var bara ekki alveg að fatta að hún var líka í ullarpeysu.
-
Ég hætti ekki að reyna við þig fyrr en þú gefur mér í glas ! - Raggi sagði þetta við stelpu sem var að afgreiða á barnum á nikkuballinu og fékk bjór og 2 skot fyrir.
-
Ekkert mase í kvöld, bara ríða.
- Raggi sagði þessa setningu við frekar myndarlega lögreglukonu sem var á vakt í Hrísey, hún böstaði hann seinna meir við það að míga í runna en Raggi náði að kjafta sig úr því og það endaði með því að hann komst að því að þetta var frænka sín.
Pegg ferðarinnar :
Raggi og Birna voru að berjast hart fyrir þessum merka titil á föstudaginn en Sísí kom svo og gjörsamlega jarðaði alla samkeppni með því að drepast fyrir framan tjaldið sitt með grímuna í grasinu. Glæsilegur árangur hjá þér Sísí mín. You make us all proud !!
Þetta er held ég svona það helsta sem gerðist í þessari ferð sem að ég man eftir eins og er. Ég er alveg örugglega að gleyma slatta miklu en þá er bara um að gera að skella því í komment hér fyrir neðan.
Núna er það bara að vinna í 3 daga og skella sér svo í veiðivötn um helgina í góðum fíling. Það er varla að það gefst tími til að láta renna af sér... úfff :S
p.s. Raggi drullaði loksins á laugardaginn ... hehe