|
|
:: laugardagur, ágúst 07, 2004 ::
 Pottastemming á Lækjarbakka
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 22:00 ::
...
 Fiskidagurinn mikli á Dalvík
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 21:56 ::
...
:: föstudagur, ágúst 06, 2004 ::
Dóri er orðinn PABBI !! Jú jú... núna var ég bara að chilla hérna í rólegheitum með bjór í einni og Irish Coffee í hinni á Akureyri þegar ég fékk þær fréttir að Halldór Ingi er bara orðinn pabbi. ÖSSS !!! Hann átti dreng í kvöld 6. ágúst. Ég var að tala við hann og heyrði í gutta vera að skamma pabba sinn bakvið. Það er ekki búið að mæla hann né komast að því hversu feitur hann er en miðað við stærð pabba hans þá er þetta örugglega vel stór og myndarlegur drengur... heheTil hamingju með þetta elskurnar mínar... það er alltaf fögnuður þegar það fjölgar í 5aurnum :D
"nýbakaður pabbi" Þið hjónin fáið kveðjur frá öllum í minni fjölskyldu og ég er 100% viss um það að allir 5aurar nær og fjær senda allra bestu kveðjur til ykkar. TIL HAMINGJU !!
:: Gringo 22:37 ::
...
Strákarnir komnir heim...
Var rétt í þessu að tala við Ragga og hann er kominn aftur á klakann. Það gerðist nú ýmislegt víst í þessari ferð en aðallega var held ég drukkið all svakalega mest allann tímann. Ef marka má Ragga, þá voru þeir aðallega í því að drekka frá því að þeir vöknuðu þangað til að þeir sofnuðu... sem hljómar bara eins og frábær skemmtun ! Það er strax byrjað að spá í því að smala í hópferð á næsta ári en þá erum við nú að spá í að skella okkur með flugi. Þessi 17 klst. sigling er víst ekki það skemmtilegasta sem þú kemst í ef marka má Ragga. Það er að vísu drukkið mikið og hljómsveit sem spilar í dallinum en þetta er samt langur tími og löng keyrsla að dallinum frá 200 Kóp. Það mátti víst ekki muni mikið minna á því að þeir drengir kæmust í bæinn á húsbílnum hans Munda.... Vélin alveg að fara ... skiptingin með stæla og þeir brutu líka framdrif... hehe. Þeir komust samt alla leið þannig að það er ekki hægt að fara að grenja yfir þessu.
Raggi drapst í dallinum á leið heim og vaknar við það að einhver að vekja hann. Hann heldur að þetta sé Andri félagi og segjir honum að drulla sér í burtu í bland við einhver önnur alveg frekar ófögur orð en þá sér hann að þetta er einhver skúringakall sem er að þrífa ferjuna... Dallurinn er s.s. kominn í land og Raggi er eini maðurinn sem er eftir í honum. HA HA HA HA !! Raggi drullast á lappir og ætlar að koma sér í land en þar sem hann er jú síðasti maður... myglaðari en 2 ára jógúrtdolla og vel sjoppulegur var hann tekinn beint í tollinn. Þar var hann víst með munntóbak, töluvert meira magn af áfengi en hann mátti vera og e-ð meira sprell. Þetta kostaði hann e-ð um 10 kall.... hehe... heppinn !!
Ætlaði bara að varpa þessu hérna inn... fannst þetta vera nett fyndið.
Kveðja frá Akureyri....
:: Gringo 15:32 ::
...
Sjóó !!
Þá er maður búinn að lifa af dag #1 á Akureyri og þetta var bara mjög fínn dagur. Drattaðist á lappir til að vinna í húsgagnaverslun hér í bæ og hafði bara nokkuð gaman af því. Kellingin í mér missti sig alveg og ég endaði á því að endurskipuleggja heila hæð í búðini... hehe
Dagurinn var svo toppaður með því að skella í sig alveg frábærum grillmat og kíkja svo aðeins á æfingasvæðið á golfellinum að slá 2 fötur. Ég kíkti líka áðan á alveg ógeðslega leiðinlegann fótboltaleik... Þetta var s.s. KA og ÍBV sem voru að spila. Maggi KR var þarna og spilaði bara nokkuð góðann leik en því miður fyrir hann duttu ÍBV út í vítaspyrnukeppni. KA liðið spilar alveg frekar leiðinlegann bolta en ég er samt alveg að vona að við fáum að spila við þá í undanúrslitum og drullum okkur í úrslitaleikinn sem væri auðvitað bara geggjað !
Ég las frétt á netinu í dag sem var alveg ótrúleg.... einhver gaur í Þýskalandi er langt uppí stiga að saga í e-ð tré í garðinum hjá sér þegar hann hrasar e-ð og dettur niður með vélsögina í hendini. Ótrúlegt en satt slapp hann alveg óskaddaður eftir þetta en það vildi nú samt svo óheppilega til að téddlingin hans varð fyrir og hann "sagaði hana á háls"... hausinn fór ekki af henni en hún dó víst alveg samstundis... HA HA HA HA HA HA... SÖKK !!
Fuck it... farinn að sofa... vinna á morgunn !
:: Gringo 00:36 ::
...
:: fimmtudagur, ágúst 05, 2004 ::
 Geggjad vedur !
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 11:58 ::
...
 Sólsetur vid Hrísey
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 11:47 ::
...
Mættur norður
Jú jú... þannig er það nú að Biggi er kominn norður á Akureyri og verður þar næstu vikuna allavega. Ég kom baranorður í gærkveldi og byrjaði á því að kíkja aðeins á lækjarbakka á stemminguna þar en þar var auðvitað allt fallegt og flott eins og það er alltaf. Ég fór snemma á lappir í dag og þvílík blíða hérna. kl rétt um 10 var hitinn kominn í 19 gráður og þetta er geggjað. Alveg logn og blár himinn... svona á þetta að vera ! Spá í að skella mér í sund á eftir og safna kanski smá tani ;) Ég verð líklegast hérna í allavega viku og þá jafnvel lengur þannig að e-ð gæti fólk farið að sakna þeirra viddóa sem að ég er vanur að henda hér inn en þar sem ég er á flakki á milli véla, þá er þetta aðeins erfiðara en ég skal gera mitt besta.
Gaman að sjá síðasta blogg hjá Binna um HK liðið. Ég er búinn að vera svolítið meira í kringum þetta núna þar sem ég bý með Binna (maður verður að taka hlutverk sitt sem formaður Binnamanna alvarlega) og ég get bara ekki annað en verið sammála honum með hvernig andi er í hópnum. Strákarnir allir kátir og maður finnur fyrir því að mönnum hlakkar til að byrja að spila og það er auðvitað ekkert nema frábært. Nýji þjálfarinn fer að taka við en Héðinn litli er víst búinn að standa sig vel með hópinn eins og ég vissi nú að hann myndi gera. Þið sem ekki vitið, þá var ég að vinna með honum Big Red hér áður.... maður tók hann nú í matartímanum og pakkaði honum saman aftur í tyggjóbréfið sem hann skreið úr.... right... Héðinn er snillingur og loksins hafa Binnamenn einhvern Héðinn til að syngja til... "Héðinn, Héðinn, sýndu á þér reðinn"...hehe
Gaman að vita að þetta gengur vel hjá þér litli minn og gaman að vita af því að þú lest 5aurinn líka. Ekki nóg með að þú sért stór kall, heldur er smekkur þinn að fara hamförum þessa dagana... Farinn að lesa aurinn og kominn í HK... ÖSSSS... framfarir... ekkert annað !
En tja.... ég er að spá í að koma mér í það að gera e-ð af viti svo að ég geti jafnvel farið í sund á eftir og svo er það vanalegu matarboðin og allur sá pakki næstu kvöld hjá ættingjum hér. Sísí og Hrafnhildur ætla svo að koma og kíkja á mig um helgina og vonandi verður veðrið svona, fiskidagurinn á Dalvík og Jet Ski á pollinum er það sem er búið að plana so far.
Það má auðvitað ekki gleyma því að HK vann 1-0 sigur á Val í gær í 8 liða úrslitum bikarsins þannig að það er alveg ljóst að Binnamenn eru að fara að dusta af trommum, lúðrum og öllu saman af því að við erum að fara á laugardalsvöllinn !! Jú jú... HK komið í 4 liða úrslit og allt að gerast. Ég komst ekki á leikinn í gær þar sem ég varð að fara norður en ég keyrði í 5 min með flautuna á eftir að HK skoraði og hræddi margar beljur, hesta og kindur með því ;)
Þetta verður í fyrsta sinn sem að Binnamenn fara með sín læti út úr húsi og djöfull skulum við gera þetta almennilega. Mér er alveg sama hvaða liði við lendum á móti... það er engin pressa á HK liðinu til að sigra í þessum leik frá mér heldur. Það eina sem að ég vil er að strákarnir gera sitt besta, skemmta sér og að við gjörsamlega rústum hinu liðinu í stúkuni sama hvernig helvítis leikurinn fer. Það verður svo geggjuð stemming hjá okkur að fólk á ekki eftir að trúa því. Ég vil sjá hverja einu og einustu hræðu sem mætti þegar HK komst í úrslit í handboltanum í rauðu og hvítu á Laugardalsvelli þegar kemur að því að spila þennann leik. HK strákarnir eru búnir að standa sig eins og hetjur og maður getur ekki annað en gert sitt allra besta til að sýna þeim stuðning og hvetja þá áfram. Sól og blíða.... cya !
:: Gringo 11:00 ::
...
:: miðvikudagur, ágúst 04, 2004 ::
Vinna og allt að gerast !
Get nú ekki sagt annað en að ég sé spenntur í dag ! Nýji þjálfarinn að byrja í dag og ekki að það sé búið að vera neitt leiðinlegt að æfa....nei...nei, þvert á móti ! Héðinn er bara búinn að sanna að hversu gaman það getur verið að æfa ! Þurfti ekki mikið til þess að gleðja mína litlu sál :) Get ekki sagt annað en að mér lítist vel á þennan vetur. Góður hópur sem er að fara að æfa saman undir handleiðslu sprenglærðs Litháa og hinum mikla reynslubolta Big red(Gilsson) ! "Maðurinn sem á erfitt með teygja sig eftir 5000 kalli" eins og Biggi sagði ;) Hópurinn farinn að líta vel út, þótt það vanti ennþá nokkra. En þessir sem eru að æfa núna eru bara svo hrikalega fallegir að það skiptir engu máli ! Verð ég bara að segja frá því að við erum komnir með Model og "kvikmyndastjörnu" með meiru í liðið okkar. Ef það segir ekki hversu fallegir við erum þá átt þú við vandamál að stríða ! En endilega munið eftir að styðja okkur strákana með því að kaupa bol af okkur á 1000 kall( sjá mynd neðar) ! Og vill ég líka minna á stórleik í kvöld hjá fótboltadeildinni okkar ! HK - Valur ! Allir að mæta og styðja Árna Thor, ekki spurning !
Áfram HK !!
p.s Endilega látið ykkar skoðun í ljós !!!!!
Kv,
Brynjar #6
:: Brynjar 13:24 ::
...
:: sunnudagur, ágúst 01, 2004 ::
 Stemming í Eyjum
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 19:30 ::
...
|
|