|
|
:: föstudagur, ágúst 13, 2004 ::
 Daweed and his homeboy Jesus
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 22:53 ::
...
:: fimmtudagur, ágúst 12, 2004 ::
Hvar værum við án The Pegg ??
Sá merki atburður átti sér stað seinustu helgi að Peggó fór og keypti sér föt !! Gerist þetta ekki á hverjum degi og var hann alveg gríðarlega fallegur í nýju rifnu gallabuxunum. Fórum við strákarnir í partý hjá köllunum.is þar sem ákveðnir aðilar misstu sig vægast sagt ! En það sem ég vildi segja var að Peggið í nýju fötunum fékk ekki frið, það mátti halda að Peggið væri Spiderman ! Stelpurnar límdust við hann og jafnvel strákarnir líka !!!! En stelpur.......þessi happafengur er ennþá á lausu !!

"Peggið með nýju fötin sem eru virði milljóna !"
:: Brynjar 15:57 ::
...
:: miðvikudagur, ágúst 11, 2004 ::

Gummi (spYlarI) og lappi ad sóla sig
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 15:45 ::
...
veður... össss !
Geggjað veður í gangi um mest allt land... og allir að vinna... úfff. Það er nú nokkuð gaman að fá aðtjá ykkur það að ég er í sumarfríi og er því að spá í að skella mér í sund í dag eða ... uppí bústað... eða... í golf.. sólbað... á sjó jafnvel... nei.... frekar... bara slappa af og leggjast út í garð :)
HA HA HA HA HA HA HA
Ómar og þið hin sem eruð að vinna og grenja, kiss my ass !! p.s. ef að einhverjum langar á tónleikana með 50 Cent í kveld.. þá á ég 2 miða þannig að ... call me (698-9899) eða skellið einhverju hér í comment.
:: Gringo 11:22 ::
...
:: þriðjudagur, ágúst 10, 2004 ::
David Bellion og The Village geta sleikt á mér rassgatið !!!!!
Ætla ég að gerast almennilegur og vara fólk við The Village ! Þessi ógeðslega lélega mynd er til háborinnar skammar !! Sat þarna inni og það var skemmtilegra að bora í nefið á Peggó ! Fyrir hlé er maður alveg farinn að drepast úr leiðindum og eftir hlé er maður bara orðinn brjálaður, pirraður, geðveikur og bara nefndu það, ég var það ! Mæli með því að þú/þið farið á sitthvorum bílnum. Ég og Raggi fórum með Peggó og við komumst ekkert burt. Peggið var ekkert á því að fara af þessarri ömurlegu mynd, "bíddu....bíddu það er eitthvað að fara að gerast" sagði Peggó á 2 minútna fresti !! Og við Raggi alveg að trompast. Þegar við vorum að labba úr bíóinu sá maður að fólk var ekkert ánægt......bara hálf hlægjandi og að segja hversu ömurleg getur ein mynd verið ! Ég ætla að senda Sam-bíóunum mail og biðja um að fá endurgreitt ! Helv DRASL !
Man Utd - Arsenal 1-3
Okei......ég get alveg sætt mig við að tapa fyrir Arsenal í þessum leik. Þeir voru betri og þetta er Samfélagsskjöldurinn !! Allt í góðu. EN, það sem fór með mig í þessum leik var DAVID BELLION !!!!! Hvað er málið ?? Sjáið fyrir ykkur Úlla fótbrotinn. Hann er betri en D. Bellion ! Hér með gef ég skotleyfi á manninn. Þessi maður tæklar sína eigin samherja og ræður ekki við útlimina á sjálfum sér ! Fyrst að Sunderland vildi ekkert með hann hafa, hvað er þá Ferguson að pæla að nota þetta gerpi ! ??? Gerðist ég svo djarfur að senda A. Ferguson mail og var að fá svar. Kallinn(Fergie) var e-ð að tala um að hann kæmi af veðhlaupahestaættum og þá sé ekki að spyrja, þessi maður á að spila ! Þvílíkt og annað eins rugl !!! Þessi maður, D. Bellion. Á ekki að sjást aftur í Manchester borg og getur bara drullast aftur heim í Fransbrauða landið sitt !!
David Bellion kæmist ekki einu sinni í liðið á Álftanesi !
p.s Biggi á það til að ýkja
:: Brynjar 12:38 ::
...
Kokteilsósukapital Íslands
Það er búið að vera að skjóta töluvert á mig núna undanfarið að ég skuli ekki vera að pósta hingað inn sprell viddóum eins og ég geri vanalega. Þannig eru mál að ef að þið eruð ekki búin að fatta það, þá er ég á Akureyri og flakka þar á milli véla og hef því alveg vel litla aðstöðu til þess að smella hér inn örðu en plain texta. Ég skal samt reyna að koma með e-ð til að róa ykkur niður....
Ég ákvað að kíkja upp á æfingarsvæðið hér fyrir norðan til að sjá hvort að ég gæti e-ð í golfi og fékk það alveg staðfest að svo er ekki. Endaði með því að ég náði því merka afreki að brjóta hausinn af kylfu #8 þannig að hann skaust einhverja rétt tæpa 50 metra sem að verður að teljast nokkuð gott held ég bara ... hehe
Ég var rétt í þessu að bæta inn 2 linkum á síðuna og svo setti ég inn eina könnun handa Ragga félaga hér vinstra megin. Endilega svarið henni svo að við getum komist að því "once and 4 all" hvort að það sé töff að vera rauðhærður. Munið að vera heiðarleg og vanda vel það svar sem þið gefið... ykkar atkvæði skiptir máli !
Einhverjar fregnir eru að berast á 5aurinn að Big Red... A.K.A. Géðinn Hilsson... A.K.A. Jarpurinn en sumir þekkja hann sem Héðinn Gilsson hafi verið að taka fram gömlu góðu skónna og sýndi hann víst ógurlega takta á æfingu. Hann er víst ekki að fara að spila heldur var hann aðeins að sýna Villa og Hauk hvernig þetta var gert í gamla daga. Vonandi lærðu strákarnir e-ð af honum og eiga eftir að brillera í vetur undir hanns leiðsögn. Þegar ég ræddi þetta við Binna í dag sagði hann "Héðinn lét mig e-ð hlaupa aðeins meira á æfingu í dag en hann veit greinilega ekki að ég er hanginn eins og múlasni og get hlaupið dag og nótt ef útí það er farið... hann má reyna allt sem hann getur". Eftir þessi stóru orð er spurning hvort að Binna verður refsað á næstu æfingu eða ekki... ef að það á að flengja hann eins og var gert í 70 min um daginn, þá á Bjössi mjög góða viddó kameru og hún getur verið komin á svæðið á 2 min... bara bjalla í mann í 698-9899... hehe
Good luck Binni minn ;)
:: Gringo 00:07 ::
...
:: mánudagur, ágúst 09, 2004 ::
Er Héðinn byrjaður aftur !! ??????
Heyrst hefur að Héðinn Gilsson sé búinn að taka fram skóna að nýju og muni spila með HK á næsta tímabili !! Miklar gleðifréttir að þessi nýi leikmaður og "gleðipinni" muni spila bolta á næsta tímabili....... Læt nokkrar myndir sem náðust af kappanum á æfingu fylgja með.........

:: Brynjar 12:24 ::
...
 Middalur... Hahaha !
5aur dagsins
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 00:02 ::
...
:: sunnudagur, ágúst 08, 2004 ::
Fiskidagurinn á Dalvík
Eins og þið sjáið á myndini sem ég sendi hér fyri neðan, þá kíkti ég á fiskidaginn á Dalvík í gær. Þetta var alveg brilliant dagur. Ég byrjaði daginn á því að fara og versla allt sem mig vantaði til að grilla handa Sísí og Hrafnhildi sem ætluðu að koma og gista hjá mér á Lækjarbakka í eina nótt. Þær stúlkurnar eru að fara hringinn í kringum landið og eins og þau sem fóru með mér hringinn í fyrra vita... þá er enginn hringur fullkominn án þess að kíkja í pottinn á Lækjarbakka... hehe
Ég verslaði Lamba Rib-Eye steik og dúllerí með henni og svo var bara brunað á Dalvík (a.k.a. Dallas). Það var næstum bíl við bíl alla 25km sem eru frá Akureyri til Dalvíkur og ég komst ekki hraðar en svona um 80km/klst. Það var biluð umferð og kanski ekki skrítið þar sem maður er búinn að heyra að þarna voru um 25-30 þúsund mans ! Það er auðvitað ekkert annað en rosalegt. Þarna var s.s. endalaust af fríum fisk að éta, frítt tjaldsvæði og allt að gerast. veðrið var alveg frábært og það er held ég bara lítið sem ekkert hægt að setja út á þennann dag hjá þeim. Það voru þá svipað magn af fólki sem vildi fríann fisk og fóru á gay pride... hehe töff
Eftir að hafa rölt þarna um svæðið og heilsað fólkinu sem þarna var sá ég ekki annað í málinu en að stökkva yfir í Chuckarann og ná í Hacky Sack og bjór.... Kíktum í hacky Sack og það var meir að segja verið að taka okkur upp á myndband þarna... lol... Ég er s.s. núna komin í kynningarmyndband fyrir Hríseyjarhátíðina og líka Fiskidaginn Mikla á dalvík... frekar súrt.
Eftir góðann dag þarna var stefnan tekin á Lækjarbakka í pottinn, grill og allann pakkann svo var aftur farið á Dalvík á nett djamm. Bærinn gjörsamlega fullur af liði í góðum fíling og einnig ball með Pöpum í gangi. Magnað alveg að sjá varginn á djamminu. Stelpurnar allar í sínu fínasta pússi og strákarnir í nýjum Diesel buxum og spól graðir. Hló mikið þetta kvöld en það endaði svo bara aftur á Lækjarbakka í chilli milli 5 og 6 minnir mig.
Núna er maður kominn aftur á Akureyri og á leið á Greifann að hitta stelpurnar. Stefnan er svo sett á Golf líklegast í kvöld... fátt betra að gera hérna.
Það er auðvitað aleg möst að taka það fram að Enski Boltinn er farinn að rúlla og mínir menn gerðu sér lítið fyrir og tóku Manure 3-1 áðan.... össs gaman að sjá þessa kjúlla spila svona vel. Það var einn Spanjóli þarna að spila í dag sem er god damn 1987 módel... hvað ætlaru að gera í því !?!?! Hann er það ungur að ef að hann væri stelpa, þá myndi Ómar meir að segja hugsa sig um áður en að hann myndi ríða henni... eða... þori ekki að lofa því samt... hehe
Well... ætla að skella mér á Greifann og svo vonandi að leika mér e-ð að spila golf... Til hamingju enn og aftur til Dóra og ég sendi kveðjur til allra frá höfuðborg norðursins... þar sem strípur, tan og sportbíll gefur miklu meira en persónuleiki og töfrar...
:: Gringo 18:43 ::
...
|
|