|
|
:: fimmtudagur, ágúst 19, 2004 ::
 Passar bara OF vel !
Hahaha !
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 23:31 ::
...
Gamla góða bash.org
Einn 5aur sem ég fann á bash.org
Ok, so this guy's playing golf with a priest. And he's really bad, so every time after one bad putt after another, he's like "FUCK I MISSED THE FUCKING HOLE" <[PervertedMonk]> k <[PervertedMonk]> ... Next hole... swing... putt... "FUCK I MISSED" And the priest becomes a little unnerved <[PervertedMonk]> obviously So he says "You really shouldn't keep saying that, or the Lord may well strike you down" Next hole: Swing... putt... "FUCK I MISSED!" And then there's a rumbling in the clouds, and a lightning bolt strikes the priest dead And a voice overhead... "FUCK I MISSED"
:: Björn Ágúst 15:42 ::
...
Ísland - Ítalía 2 - 0

Ég bara varð að skella þessu hérna inn ! Ég og Binni vorum á leiknum eins og sést á þessum myndum sem ég sendi inn úr gemsanum mínum og þetta var vægast sagt GEÐVEIKT ! Að vera komnir yfir 2-0 eftir um 20min er bara e-ð sem maður var ekki og í raun er ekkert að fatta. Það var bara ekki að sjá að það hafi verið einn einasti veiki hlekkur í liðinu þett kvöld. Allir leikmenn tóku sig saman og spiluðu sem ein heild. Magnað helvíti alveg ! Það eina sem vantaði fannst mér var aðeins meiri stemming á vellinum, ég er að sjá það að KSÍ getur varla gert annað en sett sig í samband við Binnamenn fyrir næsta leik svo að við getum mætt þarna og reynt að stjórna þessu fólki sem mætir á leiki til þess að sýna liðinu almennilegann stuðning en ekki bara taka "Ísland ! Ísland" á 10 min. fresti. Það þarf almennilega menn til að gera þetta almennilega og ég sé ekki að það sé til betri mannskapur í það en Binnamenn ... hehe
:: Gringo 12:09 ::
...
5aur
Bjössi var að senda mér einn alveg vel góðann 5aur... varð að smella honum hér inn :)
A psychiatrist was conducting a group therapy session with four young mothers and their small children.
"You all have obsessions," he observed. To the first mother, he said, "You are obsessed with eating. You've even named your daughter Candy."
He turned to the second Mom. "Your obsession is money. Again, it manifests itself in your child's name, Penny."
He turned to the third Mom. "Your obsession is alcohol. Again, it manifests itself in your child's name, Brandy."
At this point, the fourth mother got up, took her little boy by the hand and whispered, "Come on, Dick, let's go."
:: Gringo 11:15 ::
...
:: miðvikudagur, ágúst 18, 2004 ::

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 22:19 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 21:55 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 21:54 ::
...
JÆJA, þá er kallinn kominn með jeppa í hendurnar, var að kaupa þennan..

..þetta er lítt olltinn Mestmegniz 300GD Turbo Intercooler, gefið mér nokkrar vikur (og smá pening) og þá kem ég "rúllandi" á honum í bæinn ;D..annarz er allt það bezta að frétta af vestfjörðum, sólinn skítur hér eins og annarztaðar á landinu, hesta stal hann vísta beybí..
:: Ztebbsterinn 18:53 ::
...
Sóðalegt
Ef þú hefur einhverntímann spáð í því hversu sóðalegt það gæti mögulega orðið að lenda flugvél á hesti... þá er ég með fína síðu handa þér... endilega kíktu á hana með því að smella hér :)
:: Gringo 13:07 ::
...
Tekinn !!
Það er eitt að láta plata sig ílla en þetta er svo mikið... mikið... MIKIÐ verra... HA HA HA
Gaurinn heldur að hann sé að fá að káfa á einhverri Playboy gellu en svo kemur það í ljós að þetta er bara feitur og sveittur karlmaður !
BWA HA HA HA HA !!
:: Gringo 11:36 ::
...
5aur dagsins
Mæli með því að fólk lesi þessa frétt.... Þegar ég las þetta fyrst sprakk ég nú bara úr hlátri yfir því að einhver var að kveikja í sprellanum á félaga sínum en svo fór ég aðeins að spá í einu... Hversu andskoti loðinn var maðurinn eiginlega á sprellanum og þar í kring. Brann á 5% af líkamanum við þetta... 5 % !!! Djöfulsins afró var hann með í kjallaranum !! Held að þessi maður þurfi að læra á rakvél svo að hann sjái í félagann... SHIT !
:: Gringo 11:04 ::
...
Dagurinn byrjar velÞessi dagur er að byrja mjög vel... að vísu svaf ég yfir mig í morgunn og varð að sleppa því að fara á æfingu fyrir vinnu eins og ég hafði planað en rétt í þessu var Ísland að vinna Slóveníu með 5 mörkum þannig að gleðin er við völd hjá mér núna... SEEEOOOO !!!  Í kvöld er það svo knattspyrnulandsliðið sem þarf að sýna að þeir kunna enn að spila bolta. Það er nú nokkuð síðan að maður hefur séð þessa drengi spila einhvern bolta af viti, þessi 3 manna vörn með engum góðum varnarmannig og fleirra sem er í gangi er ekki beint það sem maður vill sjá og núna er bara að vona að þeir spili bolta í kvöld sem er gaman af. Miðað við okkar síðasta leik (rúst á móti Englandi) er maður ekkert allt of bjartsýnn á þetta þannig að landsliðið þarf heldur betur að drulla upp á bak til þess að toppa það sem þeir gerðu í Englandi og það er eins gott að þeir geri það ekki ! Ég er nú ekki alveg að skilja hvað kallarnir.is eru að tala um að þarna komi konungar tansins í boltanum til landsins. Það er nokkuð ljóst að þeir sem segja svona voru ekki að horfa á EM í sumar. Ef að menn sáu t.d. Danmörk - Ítalía þá fór það ekki mikið á milli mála hvort liðið var með betra base tan og það voru sko frændur okkar... Danir ! Þeir komu manni mest á óvart á því móti með að mæta alveg kaf tanaðir í drasl og lítið hægt að gera í því að vinna Ítali á því sviði. Það hefði átt að splæsa góðu tan session á Íslensku drengina fyrir leikinn svo að þeir gætu allavega staðið í þeim hvað það varðar. Landsliðið okkar er að vísu komið í ágætis búninga núna... eru lausir við þetta ógeð sem þeir spiluðu í og Handboltinn kominn í mjög flotta Nike búninga, það gæti bara gerst að maður geti labbað um í landsliðstreyju Íslands án þess að fólk haldi að maður sé fatalega þroskaheftur...
Ef að þú ert ekki búin(n) að kaupa þér miða á leikinn í kvöld, þá geturu varla verið annað en e-ð bældur... nema auðvitað að þú hafir löglega afsökun. Það kostar ekki nema 1000 kr í stæði og það er einfaldlega ekki rass miðað við stemminguna sem þarna verður. Ómar var víst e-ð að væla í Bjössa að það kosti 2500 kall á leikinn en það er bara rugl Ómar minn.. þetta er þúsari sem er minna en t.d. á leik í VISA bikarkeppni karla. Það verður vonandi slegið aðsóknarmet í kvöld og ég og Binni verðum þarna á svæðinu... í stúku... fyrir miðju... hvað annað !
:: Gringo 10:07 ::
...
:: þriðjudagur, ágúst 17, 2004 ::
"HA HA HA HA HA... ljótt en fyndið samt !"
:: Gringo 16:29 ::
...
:: mánudagur, ágúst 16, 2004 ::
Dóri búinn að nefna snáða... Það er allt að gerast hjá Dóra kallinum og núna rétt í þessu var ég að fá þær fréttir að það er búið að nefna litla "frænda"minn. Nafnið sem varð fyrir valinu er (Birgir) Elvar Christensen... að vísu setti ég Birgir þarna inn í sviga þar sem ég er enn að rökræða við Dóra að bæta því þarna við þar sem það er gríðarlega fallegt nafn... hann mun líklegast sjá ljósið á endanum en þangað til verðum við víst að kalla litla Elvar ;) hehe
Hérna er mynd af nýjasta lim 5aursins
"myndarlegur snáði... það er nokkuð ljóst !"
Þetta barn er auðvitað líka alveg bráðgáfað og rétt í þessu var hann að ljúka sínu fyrsta námskeiði í heimasíðugerð.... þið getið séð hvað hann lærði þar með því að kíkja á síðuna hans sem má sjá með því að smella hér en slóðin á hana er www.barnaland.is/barn/21379/
:: Gringo 15:40 ::
...
Helgin....
Föstudagurinn átti bara að vera voðalega rólegur og stefnan sett á það að hangsa bara heima og sötra bjór... ég og Raggi vorum e-ð að fá okkur öl í góðum fíling þegar Harry bjallaði og náði að sannfæra okkur um það að kíkja aðeins með sér í bæinn. Ég ætlaði nú ekki að gera neytt þar sem ég var að fara að spila á golfmóti snemma daginn eftir en þegar ég og Raggi förum e-ð svona... þá endar það ALLTAF þannig að við erum orðnir fullir áður en við vitum af því. Þetta kvöld var ekki undantekning á þeirri reglu. Fórum á röltið í bænum og það var auðvitað fengið sér í glas þar sem var stoppað. Oftast varð það Miðnes sem varð fyrir valinu enda er það alveg snilldar drykkur. Þetta endaði s.s. á því að maður var bara orðinn nokkuð fullur og ég var mjög langt frá því að vera hress þegar ég vaknaði daginn eftir til að fara að spila golf :S Var alveg gjörsamlega myglaður í drasl og hel þunnur... drullaðist á lappir, klæddi mig í skotapilsið sem Davíð lánaði mér (sést á mynd hér fyrir ofan) og kom mér af stað niður í Síðumúla. Ég var ekki búinn að vera þar lengi þegar ég sá ekki annað en að byrja bara að skola niður þeim fría bjór sem var í boði til að losna við þessa timburmenn frá föstudeginum. Fátt betra þegar maður er skítþunnur en að hella bara í sig nokkrum vel kældum bjórum ... hehe
Veðrið var alveg geðveikt á meðan við vorum í golfi, sólin alveg að grilla mann og oftar en ekki þurfti maður að setja löppina upp í loftið til að lofta um slátrið sem var alveg að grillast undir ullarpislinu góða. Þetta mót var alveg frábært í alla staði... stemmingin frábær, völlurinn fínn, grillmaturinn góður, hellingur af free beer og allt að gerast.
Síðustu holurnar voru aðeins erfiðari en þær fyrstu sökum þess að maður var búinn að tæma allann þann bjór sem maður hlóð í golftöskuna áður en maður byrjaði að spila. Það voru samt nokkrir sem drukku aðeins meira en aðrir og ég er líklegast að fá einhverjar myndir núna seinna í dag og þar á meðal eru myndir af Stebba Pulsu að taka drive á naríum og einnig var hann víst að reyna að misnota Steina Verzló e-ð á einu greeninu. Vonast til að fá myndir af því núna seinna í dag.
Eftir golfmótið kíkti ég aðeins í bæinn á strákana en ég var ekki alveg á því að vera hlaupandi um 101 Reykjavík á skotapilsi og ber undir... Maður fékk ekki stundlegann frið í þessu helvíti... Binni skutlaði mér á lækjartorg og þegar ég labbaði yfir torgið kom e-ð fólk að mér og byrjaði að tala við mig á ensku... ég svaraði bara "ég er íslendingur, drullið ykkur í burtu!" og fór og það var snilld að sjá svipinn á pakkinu.. hehe
Eftir að hafa kíkt á Pravda á strákana og aðeins á Hressó var ákveðið að kíkja bara heim, var orðinn þreyttur á því að vera klipinn í rassgatið og reynt að kíkja undir pilsið þannig að ég Grjóni skutlaði mér bara heim. Ég var gjörsamlega búinn á því eftir golfið og mjög mikla drykkju en ekki var ég að fara að fá neinn frið eftir að ég kom heim. Ég var bara nýlega sofnaður þegar ég vakna við það að það er verið að berja á svalirnar hjá mér. Ég var alveg 100 á því að þarna væri Raggi eða einhver á ferð en svo var nú ekki. Þetta var einhver hauga-kaf-ölvaður kall sem reyndi að tala e-ð við mig um að fá að komast inn í blokkina eða e-ð en ég var s.s. ekkert á því að fara að hlusta á hann þannig að ég sagði honum bara að drullast í burtu og lokaði hurðini beint í grímuna á honum. Hann gafst nú ekki upp og labbaði held ég á alla glugga í blokkini í þeirri von að einhverfæri að hleypa honum inn en það endaði bara á því að löggan kom og náði í hann... ég var ekki að nenna að hlusta á þetta gimp þannig að ég lét lögguna eiga hann... hehe Stupid gamla fífl, held að þetta sé gaur sem á heima fyiri ofan mig og ég er mikið að spá í að drulla í póstkassann hjá honum í kvöld fyrir það að halda fyrir manni vöku.
Dagurinn í gær var hrottalega þunnur og ég stóða varla upp úr sófanum allann daginn...hehe
í dag er mánudagur (ekki mínir dagar...) ég er held ég enn þunnur og ógeðslega þreyttur þannig að do not fuck with me today !
:: Gringo 11:26 ::
...
Hreinsun Var að skoða símann minn áðan og sá að hann var orðinn fullur af myndum þannig að ég varð að taka til í honum. Hérna eru nokkrar blandaðar myndir sem eru sumar nokkuð góðar... hehe
Byrjum á Bjössa A.K.A. Bob sem safnaði í fallega mottu og mullet um daginn. 5aurinn stóð nú fyrir keppni er kallaðist Mottan 2004 sem sló heldur betur í gegn og við kunnum alltaf að meta fallega mottu !

"Bjössi með mottu" 
"mullet og motta... gerir ekkert í þessu kombói!"
Næst koma nokkrar myndir sem voru teknar á KópStoCk um versló....

"Daweed... the full monty" 
"Ómi að skila grillmatnum" 
"roadkill sem ég og Binni náðum á leiðini" 
"Binni sáttur með veiðina... hehe"
Enda þetta með nokkrum myndum sem ég tók þegar við fórum í Golf drengirnir

"Binni með fallegann pípara við að skipta um dekk" 
"dekkið .... bölvað helvíti !" 
"gaman að reyna að skjóta úr polli" 
"Lokapúttið á mótinu... myndarlegur klæðnaður á Daweed"
:: Gringo 10:57 ::
...
|
|