|
|
:: laugardagur, október 02, 2004 ::
Nammi... ?
Hver hefur ekki séð svona nammi hálsmen ? Allir íslendingar hafa séð og smakkað þannig, annars hefuru hreinlega verið allt annarstaðar í mörg ár. Þetta er e-ð mjög svipað en samt kanski ekki... hver vill eiga svona ?
Smellið hér til að sjá
:: Gringo 21:00 ::
...
Rythm Is A Dancer
Laugardagskvöld, allt að gerast og ég er að fara að vinna... COCK ! Í dag var mikið að gerast í fótboltaheiminum, NEI, ég er ekki að tala um þennann ógeðslega óspennó úrslitaleik milli KA og Keflavík ég er að tala um Cup Engihjalli ! Ég nenni nú ekki að fara í þetta nánar en þið getið frætt ykkur meira um þetta með því að fara á síðu Hjallana þar sem snillingurinn J. Fab A.K.A. Jói Faxi fer hamförum í bloggi. Þarna voru í dag allir helstu fótboltasnillingar sem að kópavogur hefur alið af sér fyrir utan auðvitað okkur 5aura. Það eru allir að vinna, meiddir eða e-ð annað þannig að því miður var 5aurinn ekki með í þetta sinn. Svona er þetta bara en ég var að frétta það að Kallarnir gerðu sér lítið fyrir og tóku þetta bara. Maður getur nú ekki annað en hrósað þeim fyrir sigurinn og í tilefni þess að þeir unnu áðan sytjum við hér, Ég, Binni og Grjóni að sötra bjór, spila PS2 og hlustandi á rosalegan play-lista. Núna er E-Snapp Rythm Is A Dancer að hljóma og næst á listanum er Haddaway - What is love.....
*innskot* Grjóni var að vinna Binna í Pro Evolution Soccer 3 *inskoti lokið*
ÖSSS.... núna voru Outhere Brothers að byrja með I Like To Move It .... Eitt sem að ég er að spá í núna... á þeim tíma sem að lög eins og þessi voru virkilega að slá í gegn, hvernig í fjandanum gat nokkur maður verið á miðju dansgólfi og verið "harði gaurinn" á staðnum ? Ég er bara alveg á því að það er ekki hægt að vera nagli og hlusta á svona... þetta er eins metró og það getur orðið fyrir utan 80´s permó og silki.
Þetta var mitt innlegg í kvöld... núna kemur það sem Binni er að tala um:
Binni var rétt í þessu að spurja að því hvaðan í fjandanum það kom að "fá sér í tánna" ? Þetta er nú ágætis speki hjá Binna. Hvernig getur nokkur maður komið með setningu eins og þetta ? Hvernig byrjaði þetta eiginlega ? Binni vill einnig fá að koma því á framfæri að Davíð Röde er módel og ekkert annað. Fólk sem er ósammála því getur bara sett sig í samband við einkaritara Davíðs og Fan #1 Halldór Ásgrímsson.
Grjóni var ekki alveg sáttur með það að vera eini maðurinn sem fær ekki að koma með speki á 5aurinn í kvöld þannig að við skulum gefa honum smá pláss líka:
"öhhh..... Binni er ekkert svo góður í þessum leik og... (2 min pása....) og ég hef eiginlega ekkert meira að segja... "
Þeir sem til þekkja vita vel að þarna var Héðinn á ferð með sitt sprell.
Þar sem ég er að fara að vinna í kvöld, þá er ég ekki það heppinn að vera að fara að djamma en ég er samt sem áður auðvitað að fara að kíkja í Hákon Digra á eftir þar sem elíta Kópavogs mun vera ásamt nokkrum Blikum.
Skelli smá húmor hérna inn á eftir til að hressa upp á ykkur... sjóó
:: Gringo 20:37 ::
...
Ekkert stig.....
Þetta náði ekki að detta okkar megin á móti KA í þetta sinn. Strákarnir voru víst að spila ágætis bolta en mig grunar nú að vörnin hafi ekki alveg verið að smella þar sem við erum að fá á okkur mikið af mörkum. Ég veit það samt að strákarnir okkar lögðu sig alla fram í þennann leik og það vantaði bara smá heppni með okkur og þá hefðum við komið aftur í bæinn með 1 ef ekki bara 2 stig. Það er ekki hægt að fara fram á meira en að menn gefi 100% og það var gert þannig að Binnamenn eru sáttir með liðið þrátt fyrir tap.
Held að það séu fá lið sem geta státað sig af því að stuðningsmenn þeirra leggja það á sig að keyra alla leið á Akuryeri og til baka sama dag til þess að standa með sínum önnum. Þau sem fóru norður fá gríðarlegt hrós frá mér fyrir þetta... þið eruð snillingar.
Þessi ferð fór samt í nett rugl. Siggi, Gaui, Grjóni og Steinar voru saman í jeppanum hans Sigga norður. Stefnan var að bruna suður aftur um kvöldið en eftir leik skelltu Steinar og Siggi sér á skrall þannig að Grjóni og Gaui voru fastir fyrir norðan og Guðjón átti að vera mættur í vinnu kl. 10 morguninn eftir... hehe ... heppinn :)
Ég var í nokkuð stöðugu símsambandi víð hópinn sem átti nokkuð erfitt þarna frir norðan. KA menn létu víst eins og börn í sandkassa þarna og stuðningsmenn HK fengu varla stundlegann frið til þess að hvetja sitt lið áfram. Ég á eftir að fá þetta almennilega staðfest en mér skilst að stelpurnar náðu því á viddó þar sem sársvektur KA maður er að rífast við strákana og reyna að taka af þeim trommurnar. Jarpurinn Grjóni var ekki alveg á því að sleppa taki á trommuni og það er bara gott hjá þér Grjóni. Binnamenn virða allar þær reglur sem að íþrótafélög setja upp en það þarf líka að vera á tæru að það er ekki bara hægt að breyta reglum eftir þörfum og það gildir auðvitað það sama með bæði lið. Ég veit allavega að sá hópur sem var fyrir norðan sér ekki annað núna en heimaleik okkar við KA... þið haldið að þetta haf verið stemming... bíðið bara þangað til að þið komið í Digró. Fólk fer að átta sig á því núna að Digró er einn öflugasti heimavöllur landsins og þangað ferðu ef þú vilt hvetja, syngja og skemmta þér í takt við það að horfa á skemmtilegt lið spila handbolta.
Ég ætla ekkert að vera að svekkja mig á þessu tapi, þetta var óheppni og við fáum tækifæri til þess að svara fyrir okkur seinna í vetur. Núna er bara að taka stefnuna á næsta leik.
Binnamenn þakka fyrir sig í bili.....
:: Gringo 13:36 ::
...
:: föstudagur, október 01, 2004 ::
..jæja, fyrir þá sem ekki fóru Norður (þar á meðal ég :/)... Þá er hér eitthvað til að sefa taugarnar... ...ja og kanski fyrir þá sem fóru Norður, þá er þetta líka fínt til að róa sig niður...
----->æ...en sætt<-----
:: Ztebbsterinn 22:27 ::
...
Viddó úr Digró
E-ð kannast ég nú við þetta gólf sem þarna er verið að spila á.... þetta er bara snilld ! Veit einhver hver þetta er ?
Smellið hér til að skoða viddóið
:: Gringo 18:14 ::
...
Binnamenn á leið norður !
Það er staðfest, Binnamenn eru núna rétt í þessu alveg að detta inn á Akureyri á leið á leik KA og HK. Því miður komst ég ekki með og er alveg HEL fúll með það. Langar svo norður að ég er alveg að farast !! Strákarnir stoppuðu við á Akranesi þar sem Ómar var að vinna í dag og reyndu að "ræna" honum með sér norður en það hafðist því miður ekki. Ég fékk símhringingu áðan frá þeim þar sem þeir voru á leið norður á jeppanum hans Sigga og einhverjum öðrum bílum líka. Jeppinn hans Sigga er kallaður HK-tröllið núna þar sem hann er með 2 HK fánastöngum að framan (er víst bara 1 núna þar sem Grjóni gleymdi sér og opnaði gluggan þannig að einn fáninn "hvarf") og HK merkið vel sjáanlegt í afturglugganum líka. Núna er bara að toppa allt og gera KA heimilið að okkar heimavelli líka.
Hvað annað lið í handboltanum á stuðningsmenn sem keyra þvert yfir landið til þess að horfa á einn leik, hvetja liðið sitt í botn og keyra svo heim aftur ?? HK... hvað annað !!
Var að skella á Grjóna og þeir eru farnir að sjá í Akureyri... MIG LANGAR AÐ VERA MEÐ ÞEIM !!!! GOD DAMN IT !!!!!
Jæja... lítið við því að gera annað en að vera fúll og vona að HK spili sinn bolta og vinni þennan fjandans leik.
Koma svo strákar... Bibbi Tíkall mun hljóma á Akureyri í kvöld !!
:: Gringo 17:55 ::
...
:: fimmtudagur, september 30, 2004 ::
KA vs HK Föstudaginn kl 19:15
Binnamenn ætla á Akureyri og ef einhverjir vilja fá far eða fljóta með, hafið þá samband við Sigga í síma: 860-1843 ÁFRAM HK
:: Björn Ágúst 21:03 ::
...
:: þriðjudagur, september 28, 2004 ::
HK - FH
SS Bikar karla
Í kvöld kl. 20:00
Binnamenn eru búnir að gera nýtt viddó !!
Smellið hér til að skoða Binnamenn ætla að hittast á Riddaranum (Engihjalla) kl. 18:00 Binnamenn ætla sér í höllina aftur... hvað með þig ?
:: Gringo 10:43 ::
...
|
|