|
|
:: föstudagur, október 15, 2004 ::
Stigin 2 komin í Digró
Það verður nú ekki sagt að þetta hafi verið léttur sigur hjá okkar mönnum. Kvöldið byrjaði á því að við máttum ekki fara með neinar trommur eða neina lúðra inn í þetta fjós þeirra og við vorum nú ekkert alveg sáttir við það en Binnamenn geta alveg tekið þetta "acapela" eins og allir aðrir snillingar. Eina ástæðan sem að mér dettur í hug fyrir því að banna trommur og annað slíkt er nú bara sú að þessir blessuðu Frammarar eiga einhverja 25 stuðningsmenn og þar af eru held ég 12 undir sem fá ekki afslátt inn á leiki þar sem þeir hafa ekki náð 65 ára aldri. Þrátt fyrir það að við höfum verið fámennir, trommulausir og lúðralausir þá gerðum við okkur lítið fyrir og áttum þetta fjós sem og önnur hús sem við förum í.
Leikurinn fór hálf furðulega af stað og ég skal alveg játa það að það er nú bara ekkert jafn gaman að horfa á leik í hálfur hljóði... það eru til þannig íþróttir og kanski að Frammarar ættu nú bara að fara að snúa sér að því að spila Golf þar sem þögnin ræður öllu. Liðið byrjaði ágætlega en svo fór nú e-ð að halla undan fæti, menn voru töluvert í því að missa boltann í sókn sem var í rauna aðallega hnoð og troðningur. Vörnin var góð á köflum en þess á milli fengu menn að ganga í gegnum hana eins og opna hurð. Haukur kom inn í vörnina og hann á töluvert hros skilið fyrir það að hleypa smá lífi í strákana. Hann kom grimmur inn og gerði það sem hann gat til þess að rífa menn upp og skapa stemmara í liðinu. Eftir það fór þetta aðeins að ganga og við náðum að jafn eftir að hafa verið 1-3 mörkum undir í smá tíma. Við fórum svo inn í hléi einu marki yfir og maður fékk svona smá tilfinningu fyrir því að núna væri liðið að smella í gang og menn færu að spila almennilegann bolta.
Strákarnir settu góðann kraft í seinni hálfleikinn og það sást aðeins í þennann létta skemmtilega bolta sem að liðið er búið að spila núna það sem af er af þessu tímabili. Það dugði að vísu aðeins í eina eða tvær sóknir og þá kom aftur þetta kæruleysi og klúður sem maður sá allt of mikið af í fyrri hálfleiknum. Strákarnir voru nú samt ekki á því að fara að gefast upp og þrátt fyrir klaufaskap og töluvert klúður þá fær liðið hrós frá mér fyrir það að gefast ekki upp og halda stöðugt áfram að berjast og reyna. Þessi barátt endaði á því að skila okkur sigri og með honum koma 2 stig í hús. 2 góð stig !
Þessi leikur var lítið annað en barátta og það vildi svo heppilega til að okkar menn voru til í að berjast ögn meira en leikmenn Fram og því er ég núna að fagna sigri, þegar maður horfir yfir heildina þá var þetta góður sigur í kvöld strákar ! Binnamenn eru alltaf stoltir af sínum mönnum !
Áfram HK og góða helgi.
Binnamenn... fegurðin blekkir !

:: Gringo 21:04 ::
...
Við erum fallegir. fastir og fagmannlegir.. já við erum einfaldlega Binnamenn !!
Skorum hér með á alla til að mæta með oss í Safamýrina á föstudaginn klukkan 19:15 og horfa á HK keppa við Framara... Þetta er útileikur og því er gríðarlega mikilvægt að ná sem bestu mætingunni og helst ná að vera áttundi maðurinn á vellinum með Klikkuðum Stuðning. Verð líka að koma einu á Fram-færi... núna er Rauði turninn kominn í lið sem hæfir hári sínu :) .. aka Héðinn Gilzzon .. og Valdi Þórz að spila á móti sínum "gömlu" félugum.. HK-Binnamenn-og allir hinir...adios
:: Ómar 19:15 ::
...
Andri frægur ?
Svo virðist vera að Andri kallinn hafi rækilega slegið í gegn með þessu smokkasprelli sínu. Ég var að skoða stats af gringo.is þar sem þetta blessaða myndband er og það eru "ekki nema" rúmlega 25,000 manns sem hafa náð í þetta myndband á 3 dögum !!! Þetta fór s.s. inn á einhverskonar "linkasíður" í Þýskalandi, Hollandi og Belgíu... það er meir að segja einn sandalamaður frá Bahrain búinn að skoða þetta. Alveg magnað helvíti !
Í kvöld eru margir að fara að kíkja á Prodigy en ég er því miður ekki einn af þeim. Ég hef nú séð þá áður og því veit ég að þetta verður alveg geggjað kvöld. Þvílíka flashback-ið sem fólk á eftir að fá þegar Poison og fleirri smellir fá að óma aftur... usss
Núna á eftir er það Fram - HK sem skiptir öllu máli. Okkar menn eru að fara að spila í þessu bragga sem sumir vilja kalla íþróttahús og ég vil fá 2 stig heim í Digró... það er bara ekkert flóknara en það ! Ég veit það vel að strákarnir geta það vel en það verður bara að koma í ljós á eftir hvort að allt gangi upp og stigin 2 verða okkar. Binnamenn verða e-ð fálíðaðir í kvöld þar sem margir eru að fara á tónleikana en við gerum auðvitað alltaf okkar besta til þess að hvetja okkar lið til sigurs.
SMS kerfið var e-ð að bögga okkur þannig að Binnamanna SMS-ið gat ekki farið fyrr en núna áðan en ég vonast til að sjá sem flesta í kvöld...
Áfram HK og góða helgi gott fólk ;)
:: Gringo 17:52 ::
...
:: fimmtudagur, október 14, 2004 ::
OWNED !!
Allir hafa nú örugglega lennt í því að vera bösted við að gera e-ð sem ekki má og oftar en ekki er það helvíti vandræðalegt.... Einn góður vinur minn var t.d. böstaður við að rúnka sér í sturtu af mömmu sinni fyrir ekki svo löngu, það er slæmt ! Oftast þegar maður lendir í því að vera gripinn reynir maður að koma með einhverja súra lygasögu til þess að redda sér... Hvað ætli þessi gaur hafi nú sagt eftir þetta böst ?
Smellið hér til að sjá viddóið
:: Gringo 19:05 ::
...
Fight !
Miðað við viðbrögð og komment, þá er það það alveg nokkuð ljóst að lesendu 5aursins hafa mjög gaman af því að sjá slagsmál... Maður getur nú ekki annað en svarað þeirri eftirspurn er það nokkuð ?
Fann hérna 2 viddó sem ættu að kæta fólk.....
Bitch fight
Gettó fight
:: Gringo 19:01 ::
...
:: þriðjudagur, október 12, 2004 ::
--=Andri Stussy að sniffa smokk !!=--
Þessi drengur er svo gjörsamlega að fara á kostum í þessu myndbandi. Það er held ég bara ekkert sem að honum dettur ekki í hug að gera... og framkvæmir svo !!
Sumir sem skoða 5aurinn kannast kanski við hann síðan að hann sat fyrir sem módel í bikiní útí í kulda og skítaveðri.
Smellið hér til að skoða viddóið
:: Gringo 21:48 ::
...
Eru menn ekki að spá í að fjölmenna og skemmta sér duglega með Stjórn og liði ?
:: Gringo 15:19 ::
...
:: mánudagur, október 11, 2004 ::

Eins og fólk tók eftir hér um daginn skrifaði Ómar smá sögu hér á bloggið þar sem hann var að hakka MSN-ið hjá Peggó. Peggó sagðist ætla að hefna sín og það gerði hann núna í gær. Ég sagði Peggó að hann fengi að skrifa sína sögu á 5aurinn og hér kemur hún.... Stóra spurningin er samt sem áður.... hvað gerir Ómi núna ???
Eggertsson vs Smith: The late revenge
Já, það fór ekki frammhjá mörgum grein sem var hérna á 5aur-num, þar sem mönnum var sagt hvernig færi fyrir þeim sem skyldu eftir msn-ið opið. Minntist Ómar á það að Pétur Ben hafi eitthvað fiktað í msn-inu hjá sér, áhvað hann því að hefna sín á mér J. Ég var næstum því búinn að gleyma því að nikkið hjá mér hafi verið í 40mínútur Halldór Eggertsson. Shit ég saug karlmann síðust helgi :S!!!! En svo fæ ég símtal frá þessu ágæta félaga mínum, vælandi um að hjálpa sér við að bera skáp með sér útí bílskúr. Það var nú lítið mál fyrir kallinn vann einu sinni við að bera IKEA innréttingar, mætti með harðadiskinn minn og niðurhalaði öllum þeim sora sem Ómar geymdi á tölvunni sinni, og þar af leiðandi sat karlinn við stýrið á msn-inu hjá karlgreyinu J . Hann var upptekinn frammeftir kvöldi við að setja saman skáp (horfði á pabba sinn gera það), þannig að kjöraðstæður fyrir þessa síðbúnu hefnd. Stillti msn-ið hjá honum á away til að fá sem fæst skilaboð og breytti nickinu í Ómar Prydz. Sýgur typpi, and Loving it!!! Það skemmtilega að þessar fáu mínútur sem ég sat við tölvuna, fékk karlinn nokkur skilaboð frá einhverjum snótum ?Ég vissi það ehehehhe? eyddi þeim að sjálfsögðu og lokaði msn-glugganum og stóðu þessi skilaboð þarna í ca 2-3tíma.
Þannig að Ómar sjúgðu sjálfan þig, þú átt aldrei eftir að geta náð framm svipuðum hefndum!!!!
Ég hefði nú verið mun grófari en þetta en þetta er ágæt byrjun hjá þér Peggó... endar þetta með stórum orðum þannig að það er alveg greinilega komin pressa á Ómar núna... vil fá myndir með næst þegar einhver hefnir sín ;)
:: Gringo 14:24 ::
...
Laugardagurinn ... ég ?
Mánudagur... MSN í drazli og allt að gerast. Helgin var nokkuð góð, var rólegur á föstudaginn þar sem ég var gjörsamlega búinn á því eftir mjög erfiða viku. Á laugardaginn var svo farið á "re-union" í Iðnó þar sem maður var að hitta allt gamla liðið sem maður var að vinna með hjá Tal á sínum tíma. Það var aldrei vandamál að drekka duglega í þeim hópi og það fór ekkert framhjá manni að það voru engar breytingar þar á ferð. Endaði alveg Peggaður og eldhress.... I think...
Fulli harði garuinn, fulli æsti gaurinn og fulli svali gaurinn voru allir notaðir á laugardaginn og ég tala nú ekki um stemmarann sem myndaðist þegar Call On Me var tekið á Hressó. Steini sá um það að taka hópdans eins og í myndbandinu góða og fór gjörsamlega hamförum á gólfinu !
Ég er enn þunnur og það er ömurlegt... það er mánudagur þannig að ********** !
Ég ætla ekkert að vera að fara nánar í laugardagskvöldið þar sem ég er bara ekki alveg viss hvað gerðist.... damn it
Enda þetta á setningu sem að félagi minn kom með á MSN núna áðan um helgina hans:
"fór heim með e-a beyglu og vaknaði svo við það að hún var að reyna að telja kærastanum sínum trú á því að hún hefði gist hjá vinkonu sinni"
HA HA HA HA HA !!!! SNILLD !!
:: Gringo 11:32 ::
...
:: sunnudagur, október 10, 2004 ::

..þarf að segja eitthvað meira
:: Ztebbsterinn 23:35 ::
...
|
|