Það gerðist sá leiðinlegi atburður í fyrra að þessari fallegu dollu okkar var stolið af okkur. Hennar er sárt sakknað og Binnamenn gera allt til að fá hana aftur ! Það að komast í höllina toppar flest allt. Þetta er keppnin sem við ÆTLUM okkur að vinna og ekkert annað kemur til greina. Höllin, evrópukeppnin og allur pakkinn !
Það kemur hreinlega ekki tilgreina að við séum að fara að láta einhverja sveitakjúklinga stoppa okkur. Gerum Varmá að okkar heimavelli og sýnum það að við viljum komast aftur í Höllina.
Binnamenn eru komnir með Viddó fyrir leikinn og eins og þið heyrið ef þið hafið hljóð á þá er fúlasta alvara og harka í mönnum núna, við ætlum okkur alla leið og það er bara ekkert flóknara en það !
Ef þig langar að komast í höllina þá viljum við sjá þig á leiknum á morgunn að leggja þína hönd á þann plóg sem mun koma okkur í úrslitin !
Gerum okkur ferð í sveitina til þess að hvetja okkar menn áfram.
Smellið hér til að skoða viddóið
Hérna eru svo nokkrar myndir síðan við tókum Dolluna... einmitt af UMFA ;)