:: www.5aur.net ::

Hér koma hinir fræknu 5aurar og Binnamenn frá sér allskyns rugli og steypu



[::..Hlekkur Vikunar..::]
:: Borat
[::..5aur..::]
:: Myndasafn 5aursins
:: Spjallborð
:: 5aurabúðin
:: Hvar er Ómi?
:: Hot or Not Scoreboard
[::..Binnamenn..::]
:: Næstu HK leikir
:: Myndasafn Binnamanna
:: HK
:: Sport.is
:: DHL-Deildin
:: Handbolti.net
:: HSÍ
:: Stuðhænurnar
:: Suberstar
:: Logi Geirs
:: Óli Stefáns
[::..Linkar..::]
:: Hugi
:: PartyZone
:: B2
:: Humor.is
[::..Bloggarar..::]
:: Halli Mutterbomser
:: Don Gunnar
:: Jónki
:: Óli Gísla
:: Erla María
:: Úlli
:: Fannar Fnasi
:: Baldvin
:: Dúna
:: Arnþór
:: Majae
:: Klauvi
:: Steini "Verzló"
:: Solla
:: Bába Kani
:: Fermeterinn
:: Nonninn
:: Gunni
:: Valli
:: Fjóla
:: oskarsdottir.com
:: Hildur Baby og co.
[::..Blogg Hópar..::]
:: Kæruleysi
:: Belladonnur
:: Hjallarnir.is
:: Saumaklúbburinn
:: Legends
:: Hey Mama´s
:: The Ladies
:: Skurrarnir
:: Pullurnar
:: Skvettuskvísur
:: Tígrarnir
:: Mellur.is
:: Skech Girls

:: laugardagur, nóvember 13, 2004 ::


Róleg helgi... klikkar alltaf !



Fyrir helgi lét maður setningar eins og "ætli maður verði ekki bara rólegur um helgina", "búið að vera svo mikið að gera, þarf á hvíld að halda" og bla bla bla... Í gær kíktu nokkrir myndarlegir drengir hingað til mín í smá bjór og gleði. Við vorum hérna ég, Binni, Egill, Steini, Arnþór, Gunni, og Grjóni í góðum fíling að fá ökkur í glas og planið var að kíkja aðeins á Kötu og Bábu sem voru heima hjá Kötu með Idol partý en þar sem það var svp hrottalega gaman hjá okkur hér heima, þá fórum við ekkert í hitt teitið fyrr en milli 24 og 01. Það var víst ekkert rosalega gaman þar en við redduðum því með því að kíkja við og byrja stemminguna með kassagítarnum. Gunni spYlari var heitur og Steini sá alveg um að radda spYlið hjá Gunna... hehe Um kl. 3 (I think) kom löggan svo en hún var víst á því að henni hafði verið boðið en svo var nú ekki þannig að hún fór aftur. Magnað hvað þeir halda að þeir séu vinsælir ;) Það var víst 3/4 af fólkinu í blokkini búið að hringja á beikonið þannig að við vitum það að Steini er ekki að fara í Idol á næsta ári... hehe

Dagurinn í dag er búinn að vera latur og leiðinlegur. Ég drullaðist á lappir til að horfa á Tottahann spila við Arsenal... Hlammaði mér í sófann á naríonum en varð svo frekar kallt þannig að ég ákvað að klæða mig, fór inn í herbergi til að koma mér í buxur... var svo helvíti þreyttur að ég hlammaði mér í rúmmið. Allt í einu heyrði ég e-ð píp og sá að ég var að fá SMS... í því stóð "Djöfull var þetta geðveikur leikur !!" og var frá Dodda... ég var ekki alveg að ná þessu og hoppaði fram og jú jú... leikurinn var BÚINN !!!! Ég hafði s.s. sofnað um leið og ég lennti á rúmminu og svaf yfir allann helvítis leikinn. Ekki nóg með það að ég hafi misst af derby leik heldur fór hann líka 4-5 fyrir mínum mönnum... GOD DAMN 9 MÖRK !!!!

Er búinn að vera í fílu í dag útaf þessu en svo núna áðan var PartyZone að byrja í útvarpinu og holy DAMN hvað þetta er rosalegur þáttur !! Þetta er s.s. all time topp 40 og þetta er þvílíka snilldin! Ég bara gat ekki annað en fengið mér bjór... og annann og ... tja. Er núna að fara upp í Rás 2 að ná í miða handa mér og Binna á Árshátíð Plötusnúðanna sem verður í kvöld. Þetta er boðsmiðakvöld og stefnir allt í þvílíka tónlistarveislu... 5aurinn er kominn með sitt eigið slagorð yfir PartyZone og það er... PartyZone er ekki þáttur, þetta er lífsstíll ;)

Skemmtið ykkur vel í kvöld og Steini... Sannaðu það !




:: Gringo 21:02 ::
...

Smá helgarsprell



Hérna er enn ein Bud auglýsingin... þeir eru alveg magnaðir í þessum auglýsingum !!



:: Gringo 19:14 ::
...

stig er stig en samt...


Þetta var frekar furðulegur leikur í gær. Þetta byrjaði á því að Binnamenn máttu ekki fara með neytt í þetta blessaða hús... engar trommur lúðra né nokkuð sem gat skapað hávaða. Húsvörðurinn var harður á því að ekkert sem gæti gefið frá sér nægann hávaða til að vekja ungabarn mátti fara inn þannig að það var í raun bara heppni að Guðjón "pabbinn" Júl fékk að fara inn. Leikurinn fór svo af stað og ég er ekki frá því að leikmenn HK hafa haldið að þeir voru að spila í bókasafni. Heyrðist ekki múkk í fólkinu en Binnamenn tóku þettta bara raddað og gerðu sitt besta og ég vil hrósa stuðningsfólki HK sem gerði sér ferð í sveitina og hjálpaði okkur við að hvetja liðið áfram með klappi og hrópum.

Fyrri hálfleikur var alveg hræðilegur, það var næstum eins og að menn hefðu verið að detta í það daginn áður. Allir voru á hálfum hraða og ég er ekki frá því að leikmenn HK horfðu meira á gólfið en upp fyrstu 30 min í þessum leik. Maður var ekki alveg að ná því hreinlega hvað var í gangi þarna fyrstu 30 min, menn voru ekkert að gera og lítið sást í baráttu eða sigurvilja. Mig grunar að Héðinn hafi nú lesið yfir mönnum í hálfleik og það var annað lið sem kom á völlinn í seinni hálfleik. Við náðum að jafna og komast yfir og allt í einu sá maður HK liðið spila þann bolta sem þeir eiga að gera. Með smá heimadómgæslu og hreinum klaufaskap í okkur þá misstum við þetta niður í jafntefli en stig er stig og það þíðir ekkert að væla endalaust. Við erum í öðru sæti og stefnum hærra. Núna er það bara að klára Hauka2 í bikarnum og svo stórleikur í Digró. HK-KA og þá vill maður sjá fullt hús og þið getið alveg bókað það að Binnamenn mæta með fjörið í herklæðum og alles !



:: Gringo 18:36 ::
...
:: föstudagur, nóvember 12, 2004 ::

Ahhh.. summer camp..

..brings back memories :Þ


:: Ztebbsterinn 19:25 ::
...

Redding... :)


Ómar í Köben... Bjössi að setja upp Skjálfta í Digró og bilað að gera hjá manni = enginn tími til að gera almennilegt viddó.

Þessu var skutlað saman þannig að þetta verður bara að duga í bili... við lofum að gera almennilegt fyrir næsta leik !



Ég vil sjá stemmara í kvöld !

:: Gringo 16:53 ::
...

Stefnir allt í gott kvöld í kvöld !



Þið sem eruð ekki viss hvað þið ætlið að gera í kvöld, þá er ég með alveg gríðarlega gott plan handa ykkur.

Til að byrja með er auðvitað FH - HK í kvöld kl. 20:00. Við höfum farið frekar ílla með FH tvisvar í ár og e-ð frétti ég að Arnar er ekki alveg sáttur með "Baby Shaq" nafnið sem Binnamenn hafa geið honum. Þetta er er nú ekkert persónulegt Arnar minn, við gerum bara allt sem við getum til þess að HK vinni og ef það fer í taugarnar á fólki, þá verður það bara að vera þannig. Bjössi ætlar að reyna að henda saman einu viddó núna á eftir en sökum þess að það er hreinlega bilað að gera hjá okkur, þá hefur það ekki komist í verk ennþá og þykir okkur það frekar leiðinlegt. Það ætti samt að koma inn eitt viddó á eftir þannig að þetta reddast allt. Það sem skiptir máli núna er að fjölmenna í krikann og sjá til þess að HK komist í 1. sætið !

Eftir að þú ert búinn á leiknum er um að gera að skella sér heim, opna bjór og horfa á fólk sem heldur að það geti sungið í Idol. Það er alveg magnað hvað fólk trúr því að það geti sungið og drullar svo á sig ... hehe Eftir að þú ert búin(n) að horfa á Idol og slafra í þig nokkrum sveittum, þá er sko heldur betur nóg að gerast í bænum í kvöld. Það vill svo heppilega til að Stjáni bró og Helgi í PartyZone eru með geggjað kvöld í kvöld á Nasa. Árshátíð Plötusnúðanna 2004 !!

Mæli með því að allir skelli sér á þetta í kvöld !!




FH - HK í kvöld... ALLIR AÐ MÆTA !!



:: Gringo 13:58 ::
...
:: fimmtudagur, nóvember 11, 2004 ::

Tshirt helll bolirnir komnir í hús !!


Vildi bara taka það fram að í það eru komin jól.... 12 bolir frá www.tshirthell.com komnir í hús !!! JEIII !!!


Minni líka á FH - HK á morgunn, við ætlum okkur í 1. sætið aftur !

:: Gringo 11:59 ::
...

Allt á Bunker Netcafé til sölu!



Fyrstur kemur fyrstur fær.

14 tölvur: Pentium 4, 2.4Ghz, 19? skjár, Radeon 9600 Pro 128, 80GB
80GB harður diskur, 512 DDR (333) minni, lyklaborð+mús
Verð: 70.000kr


6 Tölvur: Pentium 4, 2.6Ghz, 19? skjár, Radeon 9600 Pro 128, 80GB
120GB harður diskur, 512 DDR (333) minni, lyklaborð+mús
Verð: 73.000kr



Annars er verð á tölvubúnaðnum eftirfarandi:

Turn : 60.000kr
19? skjár: 10.000kr
Logitec MX500 mús: 2000kr
Lyklaborð: Gefins


Nú við erum með 25 stk af leðurstólum sem við þurfum að losna við. Hérna á myndinni sjáið þið um hvaða stóla er verið að ræða. Stk af þessum stól er á 5000kr.




Ath: allar vélar verða formataðar þegar þær verða afhentar. Windows XP fylgir vélunum en verður viðkomandi að setja það upp sjalfur nema ég verði í góðu skapi og græji það fyrir viðkomandiJ. Þessa skal einnig ath. Þessar hlutir hafa verið í notkunn. Við erum að loka staðnum og því erum við að selja dótið okkar. Þetta er allt hræ ódýrt og við erum ekki að selja neitt drasl.
Ef áhugi ykkar á einhverju hér að ofan kveiknar.. hafið sambandi við Valla í síma 6966135 ef ég er ekki á staðnum.


:: Gringo 11:11 ::
...
:: miðvikudagur, nóvember 10, 2004 ::

Kusi alveg brjálaður !!


Þessi kusi ersko ekki sáttur... það er alveg ljóst. Ætli þessi kona sé grænmetisæta í dag ? hehe



Smellið hér til að skða viddóið



:: Gringo 18:49 ::
...
:: mánudagur, nóvember 08, 2004 ::

"Alvöru" piparsveinn




Það að vera góður piparsveinn er ekki auðvelt. Það er allt of mikið fólk sem heldur því fram að ef maður er piparsveinn, þá þíðir það að maður gerir ekkert annað en að horfa á fótbolta, klóra sér í pungnum og drekka bjór.... hmmm... sounds like a good life ! Ef að piparsveinalífið væri nú bara svona einfalt ! Það eru nú ekki allir góðir piparsveinar... í raun þekki ég ekki marga piparsveina sem geta kallað sig góða piparsveina. Einn vinur minn er mjög góður piparsveinn, hann kann vel á bransann og spYlar eins og sannur spYlari. Til þess að aðrir geta nú reynt að læra það hvernig á að vera piparsveinn hef ég ákveðið að skella hér inn smá visku í boði hans. Þar sem hann bað nú um það að nafnið hans kæmi hvergi fram, þá mun ég standa við það. Það er líka svo gaman að lesa e-ð svona þegar þú veist ekkert hver skrifaði það :) Eins og þið sjáið þá er sá sem skrifaði þetta í námi í KHÍ en þar er nú nóg af fallegu fólki.


Þetta er algjör snilld og skemmtileg lesning fyrir hvern sem er, sérstaklega unga karlmenn.

Enjoy !

Piparsveinninn
1. Hluti

Sælir ungu menn,


Skólinn nýbyrjaður og mikið af nýjum, vænlegum stelpum. Það er því við hæfi að fara yfir nokkur atriði sem þið þurfið að hafa í huga þegar þið hafið fundið stelpu, nú eða þær stelpur sem þið hafið áhuga á. Reynsla okkar er misjöfn að ýmsu leyti en það eru engu að síður nokkur atriði sem koma upp í hvert skipti sem við látum til skarar skríða.
Í fyrsta lagi snýst þetta jafn mikið um magn og gæði. Það þýðir ekki að binda alla von við einhverja eina stelpu sem svo jafnvel dregur ykkur á asnaeyrunum allt árið. Ef hún harðneitar að umgangast ykkur þá gefur það ákveðna vísbendingu um að erfitt geti reynst að fá hana til að fara á mörg stefnumót, sama hvað þið reynið. Í þeim tilvikum er þolinmæði ekki dyggð. Því er betra að vera alltaf með að minnsta kosti þrjár sem koma til greina. Því fleiri því betra. Þetta getur þó reynst snúið því þær mega að sjálfsögðu ekki vita hver af annarri. Þið getið því gleymt því að reyna við heilan vinkvennahóp. Þær tala saman og svoleiðis er fljótt að fréttast. Við erum hins vegar það heppnir að nokkrar brautir eru í skólanum og umgengni á milli bekkja og sérstaklega árganga er ekkert sérstaklega mikil. Finnið því til dæmis eina á grunnskólabraut, aðra á þroskaþjálfabraut og þá þriðju á leikskólabraut. Ef þið treystið ykkur til þess þá er hægt að vera með eina á hverju ári á hverri braut. Það er undir ykkur komið.

Varist gemsa eins og hægt er. Það er engan veginn hægt að treysta því að skilaboðum sé eytt eftir heiðarlega tilraun til þess að sannfæra einhverja unga stúlku um að þið séuð hinir bestu menn. Ef þið hins vegar viljið nota skilaboð við þessar tilraunir þá mæli ég hiklaust með því að nota nokkur númer. Það kostar sama og ekkert að fá sér 5-6 frelsisnúmer. Notið eitt á hverja stelpu. Þetta krefst þess hins vegar að þið haldið utan um hvaða númer tilheyrir hverri stelpu. Þannig getið þið alltaf hent númerinu ef einhver fer að sýna sms með misheppnuðum kommentum frá ykkur. Harðneitið því síðan að eiga númerið og þetta fellur um sjálft sig.

Þar sem ég er þess fullviss að þetta á eftir að skila sér í því að nokkrar stelpur samþykkja að fara eitthvað með ykkur, þá eru nokkrir punktar sem hjálpa ykkur að ná því marki sem þið setjið ykkur. Það er mikilvægt að skipuleggja hvað það er sem þið ætlið ykkur með viðkomandi stelpu. Ef þetta er stelpa sem ykkur langar til að hitta nokkrum sinnum en hafið ekki hugsað að fara með í jólaboð til foreldranna þá skiptir mestu að hafa hraðar hendur. Eftir ákveðinn tíma, að jafnaði um mánuð, fer hana að gruna að þið hugsið meira um kynlíf en samband og fer að gera kröfur um að hitta vinahópinn og foreldrana. Eftir það getur reynst erfitt að sannfæra hana um að sinna ykkur eins og áður og mjög fljótlega flosnar upp úr þessu. Eins ágætt og þetta getur verið í nokkur skipti þá kemur að þeim tímapunkti þar sem við viljum sjálfir meira. Þegar þar að kemur er rétt að henda/leggja aukanúmerunum og einbeita sér að þeirri stelpu. Þetta skal þó aldrei gert fyrr en eftir að minnsta kosti eitt stefnumót. Nú fer að skipta máli hvers konar kvöldi þið stingið upp á við hana. Það þýðir ekki lengur að stinga upp á því í byrjun að þið farið ekkert út heldur komi hún í heimsókn til þín og þið finnið upp á einhverju skemmtilegu. Meira að segja einföldustu stelpur sjá í gegnum þetta.
Farið út að borða, á safn, í Bláa Lónið eða einhvern annan opinberan stað þar sem þið hafið tækifæri til að tala saman um daginn og veginn. Ef þið farið á safn og vitið ekkert um það sem er til sýningar þá borgar sig ekki að þylja upp eitthvað sem þú last í bók daginn áður. Það kemur alltaf í hnakkann á manni síðar og stelpur eru alltaf líklegri til að þekkja þetta en þið hvort eð er. Látið því eins og þið hafið gaman af því að skoða eitthvað framandi með henni.
Ef þið farið út að borða hafið þá með ykkur kort og peninga. Það er ekkert verra en að vera að fara að borga (þarf varla að taka fram að þið borgið alltaf því konur vilja alls ekkert jafnrétti á þessu sviði) fyrir matinn og þá kemur eitthvað vesen með kortið. Það eru fáar fljótlegri leiðir til að klúðra sambandi en að vera alltaf í vandræðum með peninga þegar þið ætlið að borga eitthvað. Ekki samt borga matinn með vöndli af peningum, það er eitthvað hálf dularfullt að vera með allt of mikið reiðufé á sér, heldur hafið þið þetta til vara ef eitthvaðemur upp með kortin. Þannig trúir stelpan ykkur þegar þið talið um kortavandræðin. Þið komuð jú með peninga til vara af því að þið ?vissuð? af þessu vandamáli.
Í annað eða þriðja skiptið sem þið ætlið að hittast er kominn tími til að elda fyrir hana. Þá heldur hún sjálfkrafa að þið séuð mjög sjálfstæðir fyrir utan að þetta svínvirkar á verðandi tengdamömmu. Nú vandast hins vegar málið því flestir okkar kunna ekki að elda annað en pylsur og pasta. Á því er hins vegar einföld lausn. Finnið ykkur bók með Jamie Oliver og kaupið hana. Ef einhverjir ykkar vita ekki hver hann er á lesið ykkur til um hann á netinu strax, það gengur ekki að þekkja Peter North, Rocco Siffredi og félaga en hafa aldrei heyrt um Jamie Oliver. Gaukur sem eldar þannig að meira að segja ég og þú getum eldað eftir uppskriftunum án mikilla vandræða. Bók eftir hann lítur líka ágætlega út í eldhúsinu hjá ykkur ef stelpa kemur í heimsókn. Farið hins vegar algerlega eftir uppskriftunum. Það boðar ekki gott að ætla að vera með eigin afbrigði af uppskriftum eftir aðra. Það er reyndar ekki vitlaust að horfa á nokkra þætti með honum. Þeir eru sýndir á nokkrum sjónvarpsstöðvum sem nást hérna. Þetta er hins vegar ekki eitthvað sem þið viðurkennið. Það er flott að eiga bók með honum en rokkstuðullinn lækkar allsnarlega ef þið verðið vísir að því að sitja og horfa einir á matreiðsluþætti í sjónvarpinu.
Eftir matarboðið ættuð þið að vera komnir vel á leið með þessa ágætu stúlku og kominn tími til að skipuleggja framhaldið á sambandinu. Það tökum við hins vegar fyrir síðar þegar þið eruð búnir að þrengja hópinn sem þið ætlið að velja úr.

Gangi ykkur vel.

Kveðja,
Piparsveinninn




:: Gringo 18:53 ::
...




Þetta er 5aur dagsins og hann er í boði Gunna spYlara.

Landafræði kynjanna

Landfræði konunnar:

Þegar konan er á aldrinum 18-21 árs er hún eins og Afríka eða Ástralía.
Hún hefur verið uppgvötuð að hálfu leyti, en er annars villt og skartar náttúrulegri fegurð.
-Á frjósömustu svæðunum er mikill gróðurvöxtur.

Þegar konan er á aldrinum 21-30 ára er hún eins og Bandaríkin eða Japan.
Hún hefur verið uppgötvuð að fullu, er mjög þróðuð og er opin fyrir öllum viðskiptum
-Og þá sérstaklega þeim sem snerta bíla eða peninga.

Á aldrinum 30-35 er konan eins og Indland eða Spánn.
-Hún er heit og afslöppuð og þykir mikið til eigin fegurðar koma.

Þegar konan er á aldrinum 35-40 ára er hún eins og Frakkland eða Argentína.
-Hún gæti hafa farið illa út úr styrjöldum, en er samt nokkuð hlýr og eftrisóknarverður heimskóknarkostur.

Á aldrinum 40-50 er konan eins og Júgóslavía eða Írak.
Hún tapaði stríðinu og fær ekki frið fyrir mistökum sem hún gerði á árum áður.
-Nauðsynlegt er að ráðast í viðamikla endur uppbyggingu.

Á aldrinum 50-60 ára er konan eins og Rússland eða Kanada.
-Hún er mikil um sig, þögul og landamærin eru nánast óvarin, en hið kalda loftslag heldur fólki fjarri.

Þegar konan er á aldrinum 60-70 ára er hún eins og England eða Mongólía.
-Hún skartar stórkostlegri og sigursælli fortíð en engri framtíð.

Eftir sjötugsaldurinn verður konan eins og Albanía eða Afganistan.
-Allir vita hvar hún er en enginn vill fara þangað.


Landfræði karlsmannsins:

Þegar karlmaðurinn er á aldrinum 15-70 ára er hann eins og Zimbabwe
-Honum er stjórnað af drjóla.


:: Gringo 18:46 ::
...



[::..Leit..::]
Google
[::..Gamalt..::]
04/27/2003 - 05/03/2003
05/04/2003 - 05/10/2003
05/25/2003 - 05/31/2003
06/22/2003 - 06/28/2003
11/23/2003 - 11/29/2003
11/30/2003 - 12/06/2003
12/07/2003 - 12/13/2003
12/14/2003 - 12/20/2003
12/21/2003 - 12/27/2003
12/28/2003 - 01/03/2004
01/04/2004 - 01/10/2004
01/11/2004 - 01/17/2004
01/18/2004 - 01/24/2004
01/25/2004 - 01/31/2004
02/01/2004 - 02/07/2004
02/08/2004 - 02/14/2004
02/15/2004 - 02/21/2004
02/22/2004 - 02/28/2004
02/29/2004 - 03/06/2004
03/07/2004 - 03/13/2004
03/14/2004 - 03/20/2004
03/21/2004 - 03/27/2004
03/28/2004 - 04/03/2004
04/04/2004 - 04/10/2004
04/11/2004 - 04/17/2004
04/18/2004 - 04/24/2004
04/25/2004 - 05/01/2004
05/02/2004 - 05/08/2004
05/09/2004 - 05/15/2004
05/16/2004 - 05/22/2004
05/23/2004 - 05/29/2004
05/30/2004 - 06/05/2004
06/06/2004 - 06/12/2004
06/13/2004 - 06/19/2004
06/20/2004 - 06/26/2004
06/27/2004 - 07/03/2004
07/04/2004 - 07/10/2004
07/11/2004 - 07/17/2004
07/18/2004 - 07/24/2004
07/25/2004 - 07/31/2004
08/01/2004 - 08/07/2004
08/08/2004 - 08/14/2004
08/15/2004 - 08/21/2004
08/22/2004 - 08/28/2004
08/29/2004 - 09/04/2004
09/05/2004 - 09/11/2004
09/12/2004 - 09/18/2004
09/19/2004 - 09/25/2004
09/26/2004 - 10/02/2004
10/03/2004 - 10/09/2004
10/10/2004 - 10/16/2004
10/17/2004 - 10/23/2004
10/24/2004 - 10/30/2004
10/31/2004 - 11/06/2004
11/07/2004 - 11/13/2004
11/14/2004 - 11/20/2004
11/21/2004 - 11/27/2004
11/28/2004 - 12/04/2004
12/05/2004 - 12/11/2004
12/12/2004 - 12/18/2004
12/19/2004 - 12/25/2004
12/26/2004 - 01/01/2005
01/02/2005 - 01/08/2005
01/09/2005 - 01/15/2005
01/16/2005 - 01/22/2005
01/23/2005 - 01/29/2005
01/30/2005 - 02/05/2005
02/06/2005 - 02/12/2005
02/13/2005 - 02/19/2005
02/20/2005 - 02/26/2005
02/27/2005 - 03/05/2005
03/06/2005 - 03/12/2005
03/13/2005 - 03/19/2005
03/20/2005 - 03/26/2005
03/27/2005 - 04/02/2005
04/03/2005 - 04/09/2005
04/10/2005 - 04/16/2005
04/17/2005 - 04/23/2005
04/24/2005 - 04/30/2005
05/01/2005 - 05/07/2005
05/08/2005 - 05/14/2005
05/15/2005 - 05/21/2005
05/22/2005 - 05/28/2005
05/29/2005 - 06/04/2005
06/05/2005 - 06/11/2005
06/12/2005 - 06/18/2005
06/19/2005 - 06/25/2005
06/26/2005 - 07/02/2005
07/03/2005 - 07/09/2005
07/10/2005 - 07/16/2005
07/17/2005 - 07/23/2005
07/24/2005 - 07/30/2005
07/31/2005 - 08/06/2005
08/07/2005 - 08/13/2005
08/14/2005 - 08/20/2005
08/21/2005 - 08/27/2005
08/28/2005 - 09/03/2005
09/04/2005 - 09/10/2005
09/11/2005 - 09/17/2005
09/18/2005 - 09/24/2005
09/25/2005 - 10/01/2005
10/02/2005 - 10/08/2005
10/09/2005 - 10/15/2005
10/16/2005 - 10/22/2005
10/23/2005 - 10/29/2005
10/30/2005 - 11/05/2005
11/06/2005 - 11/12/2005
11/13/2005 - 11/19/2005
11/20/2005 - 11/26/2005
11/27/2005 - 12/03/2005
12/04/2005 - 12/10/2005
12/11/2005 - 12/17/2005
12/18/2005 - 12/24/2005
12/25/2005 - 12/31/2005
01/01/2006 - 01/07/2006
01/08/2006 - 01/14/2006
01/15/2006 - 01/21/2006
01/22/2006 - 01/28/2006
01/29/2006 - 02/04/2006
02/05/2006 - 02/11/2006
02/12/2006 - 02/18/2006
02/19/2006 - 02/25/2006
02/26/2006 - 03/04/2006
03/05/2006 - 03/11/2006
03/12/2006 - 03/18/2006
03/19/2006 - 03/25/2006
03/26/2006 - 04/01/2006
04/02/2006 - 04/08/2006
04/09/2006 - 04/15/2006
04/16/2006 - 04/22/2006
04/23/2006 - 04/29/2006
04/30/2006 - 05/06/2006
05/07/2006 - 05/13/2006
05/14/2006 - 05/20/2006
05/21/2006 - 05/27/2006
05/28/2006 - 06/03/2006
06/04/2006 - 06/10/2006
06/11/2006 - 06/17/2006
06/18/2006 - 06/24/2006
06/25/2006 - 07/01/2006
07/02/2006 - 07/08/2006
07/09/2006 - 07/15/2006
07/16/2006 - 07/22/2006
07/23/2006 - 07/29/2006
07/30/2006 - 08/05/2006
08/06/2006 - 08/12/2006
08/13/2006 - 08/19/2006
08/20/2006 - 08/26/2006
08/27/2006 - 09/02/2006




This page is powered by Blogger. Isn't yours?

Get Firefox!