|
|
:: laugardagur, desember 04, 2004 ::
Stærðin skiptir ekki máli
Sama hversu vandamálið er stórt.... þá er alltaf hægt að finna lausn, þarft kanski bara að tækla það aðeins öðruvísi en þú bjóst við í fyrstu ;)
Smellið hér til að skoða viddóið
:: Gringo 20:33 ::
...
:: föstudagur, desember 03, 2004 ::
Chick... chickedy chicken !
Ég er nú alveg með það á tæru að margir eru ósáttir og hálf sárir eftir tapið gegn KA. Hvað er þá betra en að hefna sín á saklausum kjúklingum ? Það er leikur á föstudaginn kl. 20:00 við UMFA í Mosó og það kemur ekki annað til greina en að koma í bæinn aftur með 2 stig. Efsta liðið í riðlinum er með 14 stig (KA) en liðið sem er í 5. sæti sem skilar því ekki í úrvalsdeild eftir áramót er með 10 stig (Þór). Við erum með 11 stig og erum í 3. sæti þannig að þið sjáið að þessi stig eru gríðarlega mikilvæg. d
Fjölmennum í Mosó og hjálpum HK að tryggja sér sæti í Úrvaldsdeild eftir áramót !
Binnamenn eru búnir að setja saman viddó, smellið hér til sð koða það
:: Gringo 20:04 ::
...
Útvarp 5aur !
Bjössi var að leika sér áðan og núna erum við komnir með Shoutcast server þar sem við getum spilað það sem við viljum og aðrir hlustað... þetta er allt innanlands niðurhal auðvitað.
Það er komið upp test núna og það verður í gangi um helgina, snilldar tónlist auðvitað í gangi !
Smellið hér til að hlusta á útvarp 5aur !
:: Gringo 17:20 ::
...
:: fimmtudagur, desember 02, 2004 ::
Steini gamli kíkti á djammið um síðustu helgi og fór svo heim að sofa.

:: Ztebbsterinn 22:16 ::
...
Góðan og Glóðaðan dag góðir hálsar.
Mig langaði nú bara að óska honum Grjóna innilega til hamingju með að vera fyrsti 5 aurinn og binnamaðurinn til að "pakka sjálfum sér saman".
Jú.. þegar ég segi að "pakka" sér saman .. þá er ég að tala um að Sigurjón Arason sat í Hægindum sínum í vinnunni í morgun í svona stól sem þú getur brotið saman ... nema hvað .. að stólinn ákvað í miðju Chilli að pakka sér bara saman og hætta Þessu rugli... og med de sammen þá pakkaðist greyið Rauðhærði maðurinn bara saman í stólnum með þeim afleiðingum að kallinn stendur ekki í löppina... æ æ... en samt... mjög fyndið atvik... Og þar með fauk módel ferillinn hans Sigurjóns Arasonar út um gluggann þar sem að Birgir tók við sem hármódel fyrir hana Sísí okkar .....
Grjóni ... við elskum þig samt alveg.... eða ... allavega einhverjir hérna
Takk fyrir mig í bili ...
:: Ómar 20:06 ::
...
:: miðvikudagur, desember 01, 2004 ::
DAGINN !
Það er nú ansi langt síðan ég hef skrifað e-ð hér inn. Er það af ýmsum ástæðum sem ég nefni ekki hér(aðallega leti). Vildi bara þakka fyrir laugardaginn. 1. Fullt af fínum gjöfum ! 2. Góð bolla. 3. Fullt af fínu fullu fólki(þið þarna edrú......þið eruð ömurleg) ! 4. góðar myndir í myndasafninu 5. Héðinn
Þetta var sem sagt topp 5 fyrir laugardagskvöldið.....ekki slæmt þetta. En svona öllu gríni sleppt, þá vil ég þakka rosalega vel fyrir mig. Takk fólk....takk fyrir að vera til.
http://myndir.5aur.net/album72 <-- Myndirnar úr ammælinu.
kveðja,
Brynjar #6
:: Brynjar 16:53 ::
...
Heppinn ?
Það væri nú megafúlt að lenda í þessu...
:: Björn Ágúst 13:51 ::
...
:: mánudagur, nóvember 29, 2004 ::
Piparsveinninn
2. Hluti
Hérna kemur 2. Hluti um það hvernig á að vera alvöru piparsveinn. Þið sem lásuð ekki pistil #1 getið kíkt hingað þar sem ég mun safna þessari snilld allri saman.
Here you go :
Sælir aftur ungu menn
Eftir síðustu grein bárust nokkrar spurningar. Þær voru aðallega um hvað væri eðlilegur fjöldi á önn og eðlilegur tími frá því að þið eruð einni þangað til það væri í lagi að finna nýja. Við þessu eru einföld svör, ef þið eruð búnir að ákveða að þið ætlið ekki að vera með henni lengur þá breytir tíminn engu. Að sama skapi eru engar fjöldatakmarkanir, því fleiri, því betra. Ef þið veljið þessa leið þá fylgir sá böggull skammrifi að þið verðið helst að láta þær segja ykkur upp, þannig verða þær ekki sárar og svekktar og skemma fyrir ykkur möguleg framtíðarkynni með einhverri stelpu sem þær kannast við. Klók leið til að fá þær til að segja ykkur upp er að segjast vera nýlega kominn úr sambandi og hvort það sé í lagi að þið farið mjög hægt í að láta sambandið þróast. Eftir að þið hringið bara einu sinni í viku í svona mánuð þá stinga þær örugglega upp á því að þið verðið frekar vinir á meðan þú ert að átta þig. Ef það tekst þá eruð þið á grænni grein þar sem þar með er möguleikanum haldið opnum að þið sofið hjá þeim seinna, hvort sem það verður eftir mánuð eða ár. Þannig byggið þið smám saman upp net þar sem þið getið haft samband við stelpur sem þið hafið sofið hjá áður og getið þar af leiðandi líklega leitað til aftur ef ekkert nýtt finnst. Svo við snúum okkur nú að þeim sem þið getið hugsað ykkur samband með þá eru jafnframt ákveðin atriði sem hafa þarf í huga. Eftir að samband er komið aðeins áleiðis og þú ert farinn að hitta foreldra hennar er mikilvægt að koma vel fram. Passa vel að vera viðkunnanlegur við mömmuna og kurteis við pabbann. Ef þú og hinn nýji tengdapabbi sitjið einhvern tímann tveir einir og eruð að spjalla saman eftir að ykkur er orðið þokkalega vel til vina eru samt sem áður nokkur atriði sem þarf að passa. Segðu aldrei kvennafarsssögur af sjálfum þér. Jafnvel þó karlinn segi sögur af því hversu kvensamur hann var á yngri árum þá máttu ekki undir neinum kringumstæðum falla í þá gryfju að segja svipaðar sögur af sjálfum þér. Það versta er þó hann fer að tala um kynlíf. Þar er hann að reyna að veiða þig í gildru. Það er dóttir hans sem þú ert að sofa hjá og það vill enginn pabbi heyra kynlífssögur af dóttur sinni. Þarna þarf smá lagni. Það þýðir ekki að þykjast ekkert vita um kynlíf, þið eruð orðnir það gamlir að þið eruð klárlega farnir að sofa hjá (vona það allavega, það er annars efni í allt annan dálk). Láttu eins og þér þyki þessar umræður óþægilegar, jafnvel þó þig dauðlangi að segja honum hvað þú varst að gera með dótturinni kvöldið áður. Best af öllu er að nota orðið elskast og tala almennt um kynlíf. Það notar þetta enginn heilvita náungi þegar hann talar við aðra menn. Um leið og hann heyrir þig nota orðið elskast þá hættir hann um leið við þessa umræðu og fer að tala við þig um eitthvað annað. Það er reyndar líklegt að honum finnist þú frekar skrýtinn en það er vel þess virði því hann talar klárlega aldrei við þig um kynlíf aftur. Ef þið eruð búnir að vera með stelpu skemur en í 2 mánuði og hún talar um að þið farið að elskast þá er klárlega kominn tími til að hætta með henni. Þið þurfið eðlilega ekki að segja henni upp á staðnum. Það er þá kominn tími til að leita á önnur mið en hins vegar sjálfsagt að sofa hjá þessari þar til önnur er fundin. Sú regla á reyndar við í öllum tilvikum. Það er óþarfi að hætta að sofa hjá einhverri þó þið séuð búnir að ákveða að finna einhverja eða einhverjar aðrar. Það getur verið strembið að skipuleggja það að vera með margar stelpur í gangi í einu. Mikilvægast er þar að gera þeim grein fyrir að þær eiga aldrei að koma óboðnar í heimsókn. Það er alveg sjálfsagt að þær komi í heimsókn á skrítnum tímum og reyndar æskilegt en þær verða að boða komu sína til að þið lendið ekki í því að fá tvær í heimsókn í einu. Stelpur hafa einhverra hluta vegna afskaplega lítinn húmor fyrir því að vera að sofa hjá einhverjum sem fær á sama tíma heimsókn frá annarri sem hefur það sama í huga. Komið þeim í skilning um að þær eigi að senda ykkur sms eða hringja til að boða komu sína. Þannig getið þið sagst vera uppteknir við að læra ef þið eruð þegar komnir með heimsókn. Ef þær eiga erfitt með að sætta sig við þetta og mæta óboðnar í heimsókn þá er best að opna hreinlega ekki fyrir þeim. Þær skilja það örugglega ef þær þurfa að standa úti í kuldanum, af því að þið komið ekki til dyra, einhverja nóttina þegar þeim hefur dottið í hug að mæta óboðnar í heimsókn. Eftir það senda þær alltaf skilaboð eða hringja þegar þær vilja koma í heimsókn. Best er ef ykkur tekst að finna stelpur sem eru nú þegar í sambandi, þær stinga gjarnan upp á skemmtilegum tímum til að koma í heimsókn. Skreppa heim úr skólanum í hádeginu er t.d. eitthvað sem eingöngu gengur ef stelpan á kærasta, stelpur á lausu eru því miður ekki líklegar til að fást með í slíkt. Það hljómar líka óneitanlega betur að fá heimsókn ef þið vitið fyrirfram að hún fer fljótlega eftir að þið eruð búin. Þá gefst nógur tími til að gera hvað sem er án þess að fá samviskubit yfir því að hún sé inni í herbergi á meðan þið t.d. farið fram og drekkið bjór og horfið á boltann. Vona að þetta auðveldi ykkur veiðarnar. Í næsta pistli verður síðan fjallað um framhjáhald, aðallega þá hvernig á að komast upp með það.
Bestu kveðjur, Piparsveinninn
Ég skora hér með á piparsveininn ógurlega að koma með pistil #3 hið snarasta... þetta er bara snilld !
Smellið hér til að skoða pistil 1 og 2
:: Gringo 23:49 ::
...
Smá pæling, er þetta ekki safnaðarhús fyrir forfallið reykingarfólk?

:: Ztebbsterinn 13:11 ::
...
|
|