|
|
:: laugardagur, desember 18, 2004 ::
Eric Prydz strikes again !
Hann er kominn með nýtt lag og nýtt myndband. Þetta er nú óttalegt popp þetta lag en myndbandið er alveg að gera ágæta hluti. Hann veit hvað virkar núna og má alveg halda áfram að gera svona myndbönd eins og hann getur ;)
Smellið hér til að skoða viddóið
:: Gringo 17:02 ::
...
Góð gjöf
Ef þú átt konu... þá held ég að ég sé búinn að finna gjöfina fyrir þig. Spurning um að sleppa því samt að setja hana undir jólatré og láta hana bara hafa hana þegar komið er í næði ;)
smellið hér til að skoða
:: Gringo 16:55 ::
...
Nett auglýsing
Þetta er nokkuð góð auglýsing....
Smellið hér til að skoða
:: Gringo 16:30 ::
...
Öruggur sigur !
Strákarnir fóru létt með þetta og spiluðu hreint frábærann leik ! Markvarslan var frábær, sóknarleikurinn góður fyrir utan smá kafla í seinni hálfleik og vörnin líka. Gaman að sjá Villa aftur og hann var nú ekki langt frá því að setja boltann í netið í seinni hálfleik. Það er alveg ljóst að Villi gerir ekkert nema að bæta hópinn til munar. Hann er stór, sterkur og bætir vörnina okkar mikið. Svo má auðvitað ekki gleyma því að það fylgir honum mikill andlegur styrkur. Villi, Haukur og Nonni í vörn.... það er fallegur hópur ! Binni snéri sig víst e-ð frekar ílla í upphitun og var því ekki með íleiknum. Ég var rétt í þessu að tala við hann og það er ljóst að strákarnir eru í jólaskapi í dag. Komnir í frí og kláruðu þetta með stæl !
Þrátt fyrir tapið í dag fara Þórsarar áfram. Fram fór ílla með 5 marka forskotið sem þeir voru með í hálfleik og enduðu á því að tapa fyrir FH og komast því ekki áfram. Um leið og þessar fréttir bárust norður fögnuðu Þórsarar mikið og gaman að sjá liðin fagna saman í sjónvarpinu. Það er ekki oft sem að maður sér svona lagað. Það varð víst allt gjörsamlega vitlaust í Fram heimilinu í dag. Nokkuð ljóst að Árni er að þjálfa FH þar sem ég frétti að 2 FH ingar fengu raut og FH var á tímabili með 2 menn inná. Gaman að sjá hvernig brottvísanir og grófur leikur virðist alltaf fylgja Árna. Ég sem HK-ingur er sáttur með að vera laus við hann. Við höfum aldrei spilað skemmtilegri handbolta.
Það voru bara 2 Binnamenn sem komust á leikinn fyrir norðan en þeir stóðu sig eins og hetjur ! Mig langar nú samt að skjóta aðeins á RÚV með þessa útsendingu. HK rústaði leiknum, eru efstir í riðlinum en samt var ekki tekið viðtal við neinn HK-ing eftir leik. Það var rætt við 2 Þórsara í staðinn. Hvaða rugl er það !?!?! Það hefði nú verið gaman að sjá viðtal við Hauk eða einhvern leikmann HK í stað þess að hlusta á e-ð væl í þjálfara Þórs um karakter og bla bla bla. Þetta er s.s. RÚV alveg í hnotskurn og kanski ætti maður ekki að vera að væla, við komum þó í sjónvarpinu en það var nú held ég bara af því að ÍR spilaði sinn leik í gær :)
Núna er það bara að fagna í kvöld, maður verður nú líklegast rólegur og kanski keyrir maður bara í kvöld þar sem Binni litli er fatlaður og getur lítið gert. Sem formaður, þá verð ég nú að hugsa um Binnann minn ;)
:: Gringo 14:55 ::
...
Þór 10 - 14 HK fyrri hálfleikur
Góður fyrri hálfleikur og markvarslan að hjálpa okkur mikið. Hörður Flóki með 9 skot og Bjöggi með 3 víti í röð !! Fréttir dagsins eru samt án vafa þær að Villi er að spila með HK !! Gaman að sjá Villa á vellinum aftur og þetta eru ekkert nema frábærar fréttir fyrir HK !
Núna fer seinni hálfleikur að byrja og vonandi endar þetta með sigri og við efstir !
Farinn að horfa á seinni hálfleik
:: Gringo 14:27 ::
...
:: fimmtudagur, desember 16, 2004 ::
Fróðlegt viðtal
Kalli kallinn er víst í því núna að sjá um jólatrésölu hjá Blómaval. Það er nú ekkert fyndið við það en það kom hressilega gott viðtal við hann í gær í fréttablaðinu sem að einn maður úr HK hópnum kom með hingað til okkar á www.5aur.net. Þetta viðtal er mjög fróðlegt og ég vil þakka Kalla fyrir þessa gríðarlegu speki sem hann kom með um "flata og klunnalega fætur".... Greinilegt að kallinn er sjóaður í þessum bransa ;)
 HA HA HA HA HA
Ekki hélstu að þú kæmist upp með þetta Kalli minn án þess að við myndum frétta þetta ? ;)
:: Gringo 13:48 ::
...
:: miðvikudagur, desember 15, 2004 ::
Drátturinn búinn
Hinn myndarlegi Haukur "El Capitan" var að bjalla í mig og tjá mér það að við séum að fara að skella okkur út á Nes eftir áramót og slá þar út Gróttu/KR til að komast í Höllina. Minnir nú að Þar sé ekki vel tekið í trommur og læti en þá reddum við því með því að fjölmenna gríðarlega í þennann bragga þeirra. Við ÆTLUM í höllina, það er bara ekkert flóknara en það !
Svona eru 4 liða úrslitin:
ÍR - ÍBV
Grótta/KR - HK
Ætli þetta verði HK - ÍR í úrslitum ? það væri ROSALEGUR leikur !
:: Gringo 13:43 ::
...
Þvíiiilík sóun :(

:: Björn Ágúst 11:06 ::
...
:: Björn Ágúst 09:51 ::
...
Fékk þetta brillíant diddeó sent til mín áðan, bara varð að plögga því á aurinn..
~<<< Málsháttur dagsinz >>>~
Nó probbz, innanlands hal ;)
:: Ztebbsterinn 05:05 ::
...
:: þriðjudagur, desember 14, 2004 ::
Seint blogga sumir um leikinn... en blogga þó !
Ég var nú kominn á það að sleppa kanski bara að blogga um leikinn þar sem það nokkuð langt síðan að hann var en fólk er greinilega ekki á því að sleppa manni. Það er búið að vera að væla og skæla í manni alla vikuna um að koma með smá umfjöllun þannig að hér kemur hún.
Það reynist okkur erfitt að fjölmenna á leiki núna undanfarið og það er nú af því að hluti af okkur er í prófum og einnig eru nokkrir sem eru á fullu að vinna núna í þessari geðveiki sem fylgir þessum árstíma. Við náðum samt að smala saman fallegum hópi og mættum í Digró. Þegar þangað var komið fattaðist það að trommurnar voru allar í bílnum hjá Steina sem var ekki mættur. HK liðið varð því að byrja leikin án stuðnings okkar og þykir okkur það mjög leiðinlegt... sorry strákar !
Um leið og trommurnar komu í hús small HK liðið í gang. Drengirnir voru alveg á fullu í því að stela boltum af Fram liðinu sem var langt frá sínu besta. Ingólfur kallinn var ekki með þeim í þessum leik sökum hamfara sem áttu sér stað í leik þeirra við Þór og ég vil halda því fram að hann sé orðinn stór hluti af þessu liði hjá þeim. Það er kraftur í honum og hann er mjög sterkur sóknarlega. Fram átti lítið í þennann leik og því var þetta frekar öruggur sigur hjá okkar mönnum í lokin. Vörnin var að smella og sóknarleikurinn skemmtilegur sem og leikurinn var í heild sinni. Binni kallinn stóð sig eins og hetja og setti kippu í netið enda kallaður Binni kippa núna en það nafn kemur einnig af því að hann er með 6 pack eins og sannur karlmaður (karlmenn eru annaðhvort með kipu eða belg, allt þar á milli er lélegt). Þegar maður spáir aðeins í því voru það 3 menn sem stóðu upp úr eftir leikinn.
Binni - 6 mörk þrátt fyrir það að fara útaf í seinni hálfleik. Kraftur í honum og gaman að sjá hann vera að spYla þann bolta sem að ég veit að hann getur !
Nonni - Nonninn fór hamförum í vörn og sókn. Svona á kallinn að spYla ! Þessi drengur er gríðarlega skemmtilegur leikmaður og það var ekkert nema gaman að sjá hann á laugardaginn.
Hörður Flóki - Markvarslan hjá okkur er nú ekki búin að vera neytt til þess að hrópa húrra yfir undanfarið en Flóki var rosalegur í þessum leik. Hann var að taka vítin alveg eins og smurt brauð. Brilliant !
Það voru auðvitað fleirri bjartir punktar í þessum leik okkar en þetta er það sem mig langaði að nefna sérstaklega. Það sást vel að strákarnir voru að hafa gamana af því að spila þennann leik og núna er bara að skella sér norður og sjá til þess að við vinnum þennann helvítis leik. Veit að Binnamenn eru að gera allt til að standa með okkar mönnum en ég er ekki viss að menn séu að fara að fjölmenna. Þetta er agaleg tímasetning. 18. Des... allir að vinna og eiga ekki krónu og svo er leikurinn kl. 14 held ég þannig að ekki gerir það mönnum e-ð auðveldara fyrir.
Það var nú vel létt í mönnum í seinni hálfleik þar sem það sást að stigin 2 voru okkar. Fórum að hafa gaman af þessu og gerðum meir að segja okkar í því að hvetja leikmen Fram áfram... eða... leikmann ;) Nonni Sprengja eða Buba eins og hann var kallaður á meðan leik stóð hjá Fram fær oftast okkar stuðning. Hann er án alls vafa með fljótari miðjumönnum landsins. Drengurinn kom inn og fór hamförum ! Setti tuðruna í markið og.... og.... tja... ekkert. Hann skemmti okkur mikið þannig að við þökkuðum honum bara fyrir með klappi og hvatningu. Umræðan eftir leik var nú samt meira á þeim nótum að dómari leiksins var frekar frjálslegur hvað varðar vöxt. Það er nokkuð ljóst að kallinn er búinn að vera duglegur í því að taka 1 on 1 við ísskápinn undanfarið. Það versta við þetta allt er það að hann á jólatörnina eftir... spurning um að kíkja með okkur í Sporthúsið kallinn minn og koma sér í form og fara kanski úr þessum XXL hjólabuxum sem þú varst í niður í fallegar stærðir eins og L eða M ;)
Minni alla á það að á morgunn verður dregið í SS Bikarnum... ég vil HEIMALEIK !!
:: Gringo 20:09 ::
...
Magnað shit
Ég fékk nokkrar myndir sendar í pósti í morgun og þær voru svo mikil snilld að ég setti þær saman í lítið video með tónlist undir. Hér er afraksturinn ... Smellið á myndina til að sjá videoið.
:: Björn Ágúst 13:13 ::
...
:: sunnudagur, desember 12, 2004 ::
1 Tveir og Elda
Það er komið að því, 2. Þáttur af þessum skemmtilega fræðsluleik okkar er búinn. Síðasti þáttur var greinilega nokkuð vinsæll þar sem fólk er búið að vera að tala mikið um þetta og mjög margir hafa beðið um það að komast að. Í kvöld var það Pétur Ben sem hringdi í okkur akkúrat þegar strákarnir voru að fara út í búð. Þannig að í kvöld voru það ég, Binni, Grjóni, Ómar og Pétur sem voru að fara að taka áhættu með bragðlauka sína.
Binni og Grjóni fóru út í búð á meðan ég tók eldhúsið í gegn þannig að hægt væri að elda almennilega í því. Neró litli (A.K.A Kisi) ákvað að skella sér með þeim þar sem hann var ekkert búinn að fara út úr húsi í dag. Þeir brunuðu þrír í Nóatún þar sem versla átti veisluefnið. Binni tók með sér myndavél og náði því að festa það á filmu + viddó hversu ótrúlega viltur Grjóni var þegar hann var að versla. Hann vissi bara ekki skít hvað hann ætti að kaupa en ráfaði bara um eins og blindur maður á strippstað ...
 "Ég veit ekkert hvað ég á að kaupa !"
Hann náðu nú að drazla einhverju saman í körfu og koma því heim... eða, nei, hann náði því að vísu ekki. Þegar Grjóni var að taka allt draslið úr pokanum og sýna mér hvað það var sem að hann verslaði fyrir okkur þá kom það í ljós að ekkert hakk var í pokanum. Það versta við það að hann var alveg búinn að sjá til þess að hakkið væri í raun það eina sem gæti flokkast sem einhver grunnur af þessu drazli sem hann verlsaði. Allavega, ekkert hakk og Binni og Grjóni á fullu í því að rökræða hvað ætti nú eiginlega að elda. Að lokum var það ákveðið að Grjóni færi aftur út í búð og verslaði hakk svo að við gætum nú farið að elda. Binni greyið var frammi að naga sófasettið og gefandi hundinum mínum mjög furðulegt auga. Grjóni lagði af stað út í búð en hringdi svo allt í einu í mig strax. Hann var þá kominn út í bíl og sá að hakk pokinn var þar. Það eina sem vantaði var ALLT kjötið sem í honum var ! Við erum mikið búnir að spá í því hvernig þessi litli hundur sem ég á náði að éta um 1/2 kíló af hráu kjöti á þessum mjög stutta tíma. Þetta er í raun alveg magnað og hann náði að gera það þannig að enginn fattaði það. Svo kom hann heim og það fyrsta sem að ég gerði þegar hann kom inn var að efa honum að éta !! Við erum búnir að vera að spá aðeins í þessu og þetta er örugglega svipað og ég færi bara að éta heila skúringarfötu af hakki sem forrétt fyrir kvöldmat ! Óhugnalegt hvað þetta handklæði getur étið! Hann er að vísu ekki búinn að gera neytt nema sofa núna í þessa 2-3 klst síðan að hann kom heim. Grunar að hann sé nokkuð saddur kallinn. Svona er bara búskapur okkar, hann náði að plata okkur þannig að við getum ekkert sagt... he won.
Þetta er allavega það sem Grjóni kom með heim :
 - Relish - Guacamole salsa - ostur - blandað gras í poka - Hvítlauks og Smjör Hrísgrjón - ferskur Chilli pipar(rauður) - 2 lt Mjólk - Royal búðingur (Jarðaberja og Karamellu) - Hvítlauks dressing - Kókosmjólk - Niðursoðnar ferskjur
 one small dog.... all that meat !
Það var nú e-ð til að vinna úr núna hér heima. Það er nefnilega nokkuð magnað að fjölbreytni og úrval eru orð sem gæti jafnvel farið að verða brúkuð í eldhúsinu okkar en það hefur nú ekki gerst áður. Mæli því með því að piparsveinar taki sig saman og geri þetta vikulega.
Ég endaði á því að gera 3 rétti úr þessu.
.:GrasGrjónaréttur með Hvítlauk:. .:Spagettí með Chilli og Guacamole:.


.:Karamellu og Jarðaberjabúðingur með Rjóma:.

Jú jú... þetta er það sem ég náði að útbúa í kvöld.... Hvað ætli gerist um næstu helgi og hver verður gesturinn ??
Hér koma nokkur orð frá þeim sem voru að klára að borða:
.: Sigurjón Arason:. þetta combo er einsog þau gerast best, guacamole og ferski chillínn í pastarettnum var virkilega exótískt og með betri sósum sem eg prófað á pastað. salatið virkaði gríðarlega með hrísgrjónunum og var hvítlaukssósan alveg að toppa það. svo var það búðingurinn....gömul uppskrift, einfalt en fyllir allsvakalega í eftir matinn.
Ég get vafalaust sagt það að hann fær 5 af 5 í einkunn fyrir að ná að matreiða eðalrétt úr svipað fátæklegum pakka:)
.: Pétur Ben:. Þetta var frumlegt og gott, ég vil þakka fyrir mig og meigi þið njóta velsæmis.
.:Ómar Smith:.
Pétur.. þetta voru sannarlega falleg orð sem þú lést hér falla .. En hvað matinn varðar þá var ég einstaklega hrifinn af þessari blöndu er minnir á Mexíkó.. með Chilli og Guacamole.. Það einkenndi matinn skemmtilega, og ekki spillti fyrir ljúffenga sallatið með hvítlauks hrísgrjónunum sem kitlaði bragðlaukana ákaflega mikið . Eftirrétturinn var búðingur að hætti Sao Poulo búa en það var sætt með góðum eftirkeim . Ég vill segja að þessa vikuna hafi Birgir farið framar vonum og var þetta betra en síðast.. það er klárt mál. Ég gef Birgi Topp Einkun fyrir litaval og frumlegheit, og þetta var stigi betra en síðasta vika .
.: Brynjar #6:. Jááá....sælletehhhzz !!!!! Jú, þá er annar sunnudagur á enda kominn og fengum við nokkrar uppákomur í kvöld. En annars að matnum. Bara helv góður, hefði örugglega borðað hvað sem er, þar sem ég var svo svangur ! Beið of lengi eftir þessu :) B.H. Stefánsson er bara nokkuð góður kokkur. Hann fær 5 af 5 mögulegum fyrir máltíðina í kvöld. Líður mjög vel núna þar sem ég er saddur og góður ! Sofna vel í kvöld !! Og eitt að lokum......Jááá.....SALUT !
- Þið getið skoðað brilliant viddó af þesu öllu saman með því að smella hér. - Þetta er 20mb en no worries, þetta er innanlands niðurhal.
:: Gringo 23:19 ::
...
|
|