|
|
:: laugardagur, febrúar 12, 2005 ::
 Hita hvad?
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 23:21 ::
...
Bíkarúrslit.... HK vs. ÍR
Það stefnir allt í hreina geðveiki... það er alveg ljóst. Þetta stefnir í einn rosalegasta bikarleik í mörg ár. Ég tel þetta vera 2 sterkustu lið landsins í dag og því vel við hæfi að þau séu að fara að mætast í úrslitum S.S. Bikarsins.
Leikur ÍR og ÍBV var í gangi hér heima í dag og hann byrjaði nokkuð vel. Töluverð harka var í byrjun og stefndi þetta í alvöru bikarleik. Smá saman náðu ÍR-ingar stjórn á leiknum og endaði það svo með því að leikurinn var alveg þeirra. Þá gerðist nokkuð sem verður að teljast nokkuð spes. Það sem ég sá, þá sparkaði Roland boltanum í burtu og fékk rautt spjald. Ég er svo búinn að lesa það á netinu að Roland hafi einnig verið að hrækja hingað og þangað og ef það er rétt, þá vil ég ekki sjá hann í landsliðinu aftur ! Eins og ég tók fram, þá er ég ekki búinn að staðfesta þetta þannig að ég er ekki viss. Samt sem áður, þá var hegðun ÍBV furðuleg í dag, bæði leikmanna og áhorfenda. Það verður lítið af því skafið að dómgæslan í þeim leik var skrautleg og ÍR fékk góða heimadómgæslu en það afsakar ekki hegðun ÍBV og svona stórt tap. Þegar slatti var eftir af leik ÍR og ÍBV tóku áhorfendur sig til og fóru af leikvelli eftir að hafa sparkað niður auglýsingaskilti og skutlað drasli inn á völlinn. Þessi hegðun er ekki afsakanleg og ÍBV algjörlega til skammar finnst mér.
Aðal málið í dag hjá okkur er auðvitað það að HK er á leið í höllina. Nokkuð öruggur sigur á Gróttu/KR í dag hjá okkur. Það fór ekkert á milli mála að strákarnir okkar voru mjög ákveðnir þegar þeir komu inn á völlinn. Menn voru að gefa sig 100% í þetta, það sást alveg. Binnamenn mættu einnig með góða stemmingu og gerðu sér lítið fyrir og gerðu þennann bragga að heimavelli okkar ! Víst að drátturinn skilaði okkur ekki heimavelli, þá var það undir okkur komið að gera þetta að okkar heimavelli og það tókst mjög vel í dag. Ég ætla nú ekki að fara að renna í gegnum smáatriði í leik HK liðsins en nokkur atriði verður maður að nefna. Óli Víðir var gríðarlega góður í dag og leikur hans var svipaður og þegar hann fór hamförum í Höllinni, glæsilegt og ekkert annað ! Bjöggi var líka alveg frábær í dag og ég er bara ekki frá því að þetta var besti leikurinn hans á þessari leiktíð. Hann tók einhver 3 víti held ég og gaman að sjá að hann er að finna sig aftur.
Núna er bara að ná sér niður og byrja á því að vinna í næsta leik sem er einmitt á móti ÍR á útivelli á miðvikudaginn. Það verður hörku leikur og ég skora á alla í að mæta á þann leik og hvetja 2 stig beint aftur í Digró. 11 marka sigur okkar í fyrra var sætur og ekki væri leiðinlegt að endurtaka það... hehe
Núna er bara að fagna í kvöld :)
Ég vil enda þetta á því að þakka leikmönnum HK fyrir frábærann leik og einnig þeim stuðningsmönnum sem gerðu sér ferð út á nes til að hvetja liðið áfram !
ÁFRAM HK og DOLLAN Í DIGRÓ !
p.s. Binni... mér þykir vænt um þig
:: Gringo 18:16 ::
...
Langar til að fá svör við heitu málefni..!!!
Það hefur fátt verið meira til umræðu uppá síðkastið heldur en yfirvofandi afmælis geðveiki J.Halldórssonar, Punk-G og hugsanlega Ómar Ali-baba.. Hef ég að undanförnu verið að bera undir Ómar Ali-baba hvort ekki væri ráð að halda þetta með okkur köppunum og með því móti geta boðið vinum og vandamönnum að dreypa á veigum guðanna í góðu yfirlæti. Hefur Ómar vikist undan svörum með það fyrir sér að yfirvofandi íbúðarkaup myndu hefta budduna svo mikið hann sæji sér ekki fært að fjármagna slíka uppákomu. Nú spyr ég háttvirtan sendiherra Al-Jazira, Ómar "the man-whore" Smith. Are you IN or are you OUT, ertu maður eða mús, ertu kona eða karl, ertu arabi eða sand-negri?
Svar óskast hið snarasta í comments Ómar minn.
Mig langar að ítreka að öllum 5 aurum er boðið. og mun ég posta formlegu boði hér á aurnum.
bless í bili.
"Stay classy Kópavogur"
Johnny
:: Johnny 15:07 ::
...
:: fimmtudagur, febrúar 10, 2005 ::
GO USA !!
Fallegur maður... og gáfaður

:: Gringo 19:32 ::
...
LOKSIN! Loksins fékk eitthvað fyrirtæki þá brainstorming hugmynd að búa til vefsíðu í kringum þjóðarsport íslendinga: Loksins!
"Furðulegt" samt að eina stelpan sem er skráð þarna(sem er undir þrítugu) er skráð undir nafninu Kallmaður ....
Annars hef ég heyrt um margt vitlaust á netinu hvað tengist live-webcams; pandacam, london-gatnamót, loch ness og svo frameftir götum, en þetta hlýtur að toppa alltsaman, takið eftir disclaimernum: "Instances of violence or sexually inappropriate behavior by detainees during the booking process may occur."
:: Bastarðurinn 18:19 ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 09, 2005 ::
Game on !
Þetta var stress leikur en hafðist og 2 stig í hús ! Liðið byrjaði ágætlega og var fljótlega komið með 2-3 mörk á Víkinga. Allur bragur var á því að þessi leikur væri að stefna í það að verða ekkert of spennandi þangað til að það kom í ljós, að leikmenn HK hefðu gleymt því alveg hvernig það er að spila vörn. Einfalt hlaup hjá hornamanni inn á línu skildi leikmenn HK eftir í óvissu og rugling. Oftar en ekki endaði það með auðveldu marki. Markmennirnir okkar voru ekki að ná að byrja aftur á sama level og þeir kláruðu fyrir áramót. Í raun voru það bara einstaka tuðrur sem voru að enda í þeim en ekki í netinu. Þetta eru 2 atriði sem þarf augljóslega að laga og það fyrir laugardaginn ! Seint í leiknum small allt í einu e-ð og HK vörnin skilaði sér aftur í hús. Markvarslan kom þar strax á eftir og það endaði í 2 stigum til okkar. Leikurinn endaði held ég 31-28 og ég er ekki frá því að allt annað lið hafi hreinlega komið inn þarna undir lokin og klárað þetta fyrir okkur.
Virkilega gaman að sjá strákana aftur undir lok leiks og stemmingin kom duglega með frá fólkinu í stúkuni. Það skiptir öllu að klára leikinn og strákarnir gerðu það... snilld !
2 hlutir sem ég verð að nefna hérna.....
1. Leikurinn á laugardaginn verður rosalegur. Þetta er loka skrefið okkar til að komast aftur í höllina og við ÆTLUM þangað ! Miðasalan er hafin í Digró og ég skora á ALLA að koma sér út og kaupa sér miða! Upphitun fyrir stóra fólkið er hér heima hjá mér líklegast og það verður hitað vell upp og farið með söng, gleði og hamingju alla leið út á nes og hvatt HK alla leið aftur í Laugardalshöll !
2. Miðvikudaginn 2. mars verður leikur við ÍBV í útlöndum. Binnamenn eru að spá mikið í því núna að skella sér með liðinu út og hvetja þá til sigurs þar. ÍBV var rétt í þessu að vinna Hauka með 4 mörkum á Ásvöllum þannig að það sjá það allir, að HK strákarnir þurfa okkur með út til þess að sjá til þess að með fluginu heim, koma 2 stig.
Skilst að leigð verður flugvél undir okkur og því kostar flugið líklegast í kringum 6-7 kall. Flogið verður út örugglega um 4-5 og svo aftur heim til Íslands beint eftir leik. Vill taka það fram að ekki þarf að hafa með sér vegabréf til Eyja, önnur persónuskilríki duga.
Til þess að þetta gangi upp þarf að smala saman í góðann hóp... endilega pælið aðeins í þessu og látið mig svo vita. Við erum að fara og því stefnir allt í mjög skemmtilega ferð :) Þurfum að fá lokasvör fyrir leik á laugardaginn.
Ef það vantar e-ð info... bara hafa samband.
:: Gringo 21:14 ::
...
Leikur í kvöld !!
Það er komið að því ! B-O-B-A !!
Í kvöld kl. 19:15 fer fram fyrsti leikur HK á þessu tímabili. Það verða Víkingar sem ætla að gera sig líklega til að fara úr Digró með stig í kvöld en Binnamenn ætla að gera það sem þeir geta til að koma í veg fyrir það. Samkvæmt Mogganum eru þeir Haukur, Binni og Elli meiddir eins og er og búast má við því að þeir verða ekki með í kvöld. Það er stór leikur núna á laugardaginn á móti Gróttu/KR og sæmilega þétt dagskrá á næstuni þannig að við þurfum alla þá menn sem við höfum. Þetta er fyrsta árið sem að ég man eftir þar sem HK er talið vera með mestu breiddina og það er alveg nýtt fyrir mér og örugglega flestum HKingum. Við höfum í gegnum árin verið með okkar kjarna og svo einhverja "stjörnu". Núna erum við með LIÐ ! Við erum með hóp af strákum sem allir virðast vera mjög áhugasamir og viljinn er til staðar. Frábærann þjálfara sem er að koma með nýja hluti til landsins og virkilega gaman að sjá hvað hann er að gera úr þessu liði.
Í ár er fyrsta árið þar sem HK er að spila virkilega myndarlegann og skemmtilegann handbolta. Með þessu er ég ekki að halda því fram að það hafi ekki verið gaman að horfa á HK öll þessi ár, langt því frá. Síðustu ár hefur félagið verið þekt fyrir baráttu, hörku og leikgleði. Oftast verið "minna liðið" eða svokallaðir "underdogs" en núna allt í einu er dæmið öðruvísi. Við erum að spila fjótandi, hreyfanlega og skemmtilega vörn í bland við fjölbreyttann og skemmtilegann sóknarbolta. Liðið okkar er mjög ungt og strákarnir mjög metnaðarfullir og ákveðnir að ná góðum árangri í ár. Þetta lið og sá andi sem í því er á skilið almennilegann stuðning. Við (Binnamenn) erum að gera okkar besta í að gefa þessu liði þann stuðning sem við teljum að það þurfi og eigi skilið og vonumst við til þess að sjá sem flesta stuðningsmenn og konur í Digró í kvöld.
Leikurinn hefst kl. 19:15 í Digró Tekið af heimasíðu HK:
SS bikarinn í handbolta Forsala aðgöngumiða á undanúrslitaleik HK og Gróttu/KR í SS bikarnum í handbolta er hafin í Digranesi. Miðinn kostar kr. 500.- fyrir 16 ára og yngri og kr. 1.000.- fyrir eldri en 16 ára. Miðar verða einnig seldir á heimaleik HK og Víkings á miðvikudagskvöldið 9. febrúar. HK fær allan ágóðann af sölu á fyrstu 150 miðunum á bikarleikinn. Sætaferðir verða á bikarleikinn, nánar auglýst síðar....
www.hk.is
:: Gringo 08:45 ::
...
:: þriðjudagur, febrúar 08, 2005 ::
mkey...
Hvernig ætli ástandið sé á þessu heimili ef að hjónin næðu sér í agalega magapest ?

*myndskreytt*
:: Gringo 13:19 ::
...

Langar að fá þetta vörumerki hingað
:: Bastarðurinn 01:08 ::
...
:: mánudagur, febrúar 07, 2005 ::
Vissir þú að .....
- Tímabilið í handboltanum byrjar á Miðvikudaginn - Undanúrslit í S.S. Bikar Karla fara fram næsta laugardag - Binnamenn eru byrjaðir að dusta rykið af trommum og lúðrum - Ný útgáfa af Binnamanna-bolum eru komnir í hús... mynd kemur hingað í kvöld - Binni er enn meiddur í öklanum - Binnamenn eru búnir að kaupa sér HUGE kúabjöllu sem verður gaman að sjá í Digró
Ætlar þú að mæta á miðvikudaginn ???
:: Gringo 23:42 ::
...
Sorglegt... grátlegt.... agalegt !

Þetta er annað svona sem maður sér á stuttum tíma... nóg til að fá hvern sem er til að fella tár !
:: Gringo 19:35 ::
...
Mr Smith ?

HA HA HA HA !
:: Gringo 19:32 ::
...
5aur dagsins
Þessi er í boði Bjössa....
Veistu af hverju Skotar eru alltaf í Skotapilsum ?
Rollurnar hlaupa alltaf þegar þær heyra í rennilás...
5aur
:: Gringo 13:22 ::
...
|
|