|
|
:: laugardagur, febrúar 19, 2005 ::
Smá Viddjó
Frá HK-Valur
:
:: Björn Ágúst 23:02 ::
...
#1 baby !
 Þetta var erfið fæðing en hafðist...
Þessi leikur fór frekar furðulega af stað. Hk var ekki að spila sinn bolta og Valsarar gerðu vel í því að byrja á því að ná hraða leiks niður á þeirra plan og halda því þannig út fyrsta hálfleikinn. Staðan var jöfn í hálfleik og Binnamenn voru ekki alveg að skilja hvaða lið þetta var sem var að spila. Þetta var allavega ekki alveg samam liðið og spilaði við Gróttu/KR, það fór ekki á milli mála. Vörnin var agaleg og sóknin var því miður ekki spennandi heldur. Raggi kom inn í liðið þar sem Jón Heiðar snéri sig á æfingu í gær og Raggi var töluverðann tíma að komast inn í leik liðsins. Hann var að missa auðvelda bolta og ekki alveg í takt við hina leikmenn HK. Þetta kom samt hjá honum á endanum og hann náði að klára leikinn ágætlega.
Seinni hálfleikur byrjaði eins, HK ekki að spila almennilegann bolta og allt í einu vorum við 5 mörkum undir. Binnamenn voru ekki á því að við værum að fara að tapa þessum leik þannig að við tókum okkur á og settum allt í botn. Leikmenn HK tóku þá við sér og jöfnuðu leikinn og komu sér svo yfir. Það var ekkert stoppað og ef ég man rétt, þá endaði þetta með 3 marka sigur. Frábært ! 1. sætið enn okkar og við erum ekkert að fara að sleppa því !
Næst á dagskrá er höllin og það verður sko fjör !
Virkilega gaman að sjá Binna á bekknum aftur og vonandi fáum við að sjá elskuna okkar aftur á vellinum ASAP.
Vil einnig senda Jón Heiðari (Nonna Hetju) allra bestu kveðjur frá Binnamönnum, farðu vel með þig kallinn !
Myndir frá HK-Valur
Myndir frá leik Gróttu/KR - HK
:
:: Gringo 18:23 ::
...

Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 15:09 ::
...
:: föstudagur, febrúar 18, 2005 ::
Húmor fyrir helgina....
Þessi hundur er mesti spYlari sem að ég hef séð !
Líklegast harðasti stripparinn í bransanum !
Alltaf gaman af Porn Bloopers
Skemmtilegt face plant !
Carnival 2005..... væri leiðinlegt að vera þarna ?
Afmæli hjá O.G.Waldo í kvöld... HK-Valur á morgun... gæti orðið góð helgi !
:
:: Gringo 20:13 ::
...
Hver er þessi Óli ?
Mér hefur nú aldrei verið vel við lið ÍR en samt sem áður eru nokkrir góðir þarna inn á milli. Kalli (A.K.A. Folinn , Kyntröllið, Tröllið, Hinn Ógurlegi, o.fl.) er einmitt í láni hjá ÍR. Binnamenn klikkuðu aðeins þegar HK fór ílla með ÍR annað skiptið í röð í síðasta leik þar sem við tókum ekki eftir því þegar Folinn kom inná. Sorry Kalli minn, við hefðum auðvitað klappað fyrir þér en það klikkaði í þetta sinn.
Þið sem ekki vitið það nú þegar, þá er ég að vinna með Óla Gísla, markmanni ÍR. Þessi drengur er mikill öðlingsmaður en núna er það bara þannig að hann er að fara að keppa við okkur um dolluna góðu þannig... Óli minn... GAME ON ! Í dag byrjaði stríðið formlega þar sem ég festi grein úr Morgunblaðinu á tölvuskjáinn hans þar sem er verið að fjalla um rúst HK á ÍR fyrir nokkrum dögum :)
Þetta er það sem hann skrifar á sinni blogg síðu:
Þetta er mjög slæmt mál skal ég segja ykkur. Ég er að vinna með 3-4 gaurum sem eru allir meðlimir í hinum alræmda félagi sem kallast Binnamenn og berja trommur, fá sér öl, blása í lúðra, fá sér öl, syngja söngva og fá sér öl þegar þeirra lið, sem ég er alveg búinn að steingleyma hvað heitir, er að spila. Ég rétt skrapp frá vinnustöðinni minn núna rétt áðan og þegar ég kom til baka var búið að setja heilsíðufrétt úr Mogganum á borðið hjá mér sem minnti mig á það að við töpuðum fyrir þeirra liði, alveg stolið úr mér nafnið, á miðvikudag. Ég tók þessa grein og reif hana í öreindir og lýsti yfir stríði án þess að hugsa þetta nokkuð. Þar sem ég stend við mín orð líkt og Pétur Jóhann Sigfússon (grallari) þá verð ég að halda þessu til streitu þangað til að bikarleikurinn er búinn.
Þannig að núna er ég búinn að setja tengla allra (hvað heitir liðið aftur) í sérflokk sem heitir slátur og verða þeir þar fram yfir bikarhelgina. Svo er ég að vinna á sunnudag og þá eru þessir hryðjuverkamenn í fríi (allir að biðja til Mekku) og þá mun ég gera árás á þeirra vinnustöðvar þannig að á mánudagsmorgun verður lífið þeirra IN HELL. Staðreyndirnar tala svo sínu máli þegar bikarinn fer á loft.
Þetta verða að teljast nokkuð stór orð frá manni sem er ekki nema 150cm á hæð en það er spurning hvort að hann nái að standa undir þeim... he he
Síðan hans Óla er .: Hlekkur Vikunar :. og kallast þar "stríðsyfirlýsing". Endilega kíkið á síðuna hans og skiljið eftir ykkur HK comment en ég vil ekki sjá e-ð dónalegt eða barnalegt. Óli er mikill íþróttamaður og færi aldrei að drulla yfir Binnamenn og það er alveg á hreinu að Binnamenn drulla ekki yfir hann. Gangi þér vel Óli minn, þú ert nú ágætlega vanur að taka HK bolta úr netinu hjá þér ;)
GAME ON !
:
:: Gringo 15:40 ::
...
:: fimmtudagur, febrúar 17, 2005 ::
Kebab í 25 ár !
jú jú... þetta er merkur dagur.
Fyrir um 25 árum tók læknir við litlu skítugu barni, lagði það á borð þar sem hjúkkur komu og byrjuðu að þrífa barnið. Eftir smá tíma sagði ein hjúkkan hálf vandræðaleg "fyrirgefðu, læknir. Það er ekkert hægt að þrífa þennann, hann er bara svona". Móðurástin getur verið blind þannig að móðir hans Ómars, elskan hún Anna, gat ekki annað en tekið þetta grey að sér. "Þetta kanski skolast af með tímanum" sagði Anna þegar hún tók við litla skítuga stráknum sínum. "hann er bara sérstakur".
Ómar hefur allt sitt líf verið þektur fyrir að vera nokkuð mjúkur maður, hann á það til að væla af sér hringvöðvann reglulega en með smá skömmum og stundum léttum kinnhest, þá smellur hann aftur í gírinn. Við félagarnir höfum oft velt því fyrir okkur hvort að það sé möguleiki á því að hann sé með innvortis vagínu því að estrógenið á það til að flæða stjórnlaust frá þessum dreng. Mig langar persónulega ekkert mikið að komast að því hvort að Ómar sé með vagínu í stað botnlanga eða e-ð slíkt en spurning hvort að einhver vísindamaður vilji nota hann í ransóknir?
Á tímabili vissum við ekki alveg hvað við áttum að gera við hann Ómar, hann var búinn að vera (of) lengi í sambandi, kominn í buxur sem myndu passa Keikó og ég er ekki frá því að ummálið í kringum belginn á honum hafði náð ákveðnu hámarki í kringum þann tíma sem að hann var að klára MK.

HA HA HA HA HA !!! Ég elska þessa mynd !
Eftir þetta tímabil ákvað Ómi það að það væri ekkert að gefa að vera litli krúttlegi feiti gaurinn og tók af sér þessi auka 45kg af fitu og vatni, verslaði sér Celicu, fór í ljós og verslað sér flott föt. Þetta er í raun fæðing Ómars eins og flestir þekkja hann í dag. Hann er lúmskur spYlari drengurinn og hefur náð að koma okkur á óvart nokkuð oft.

Hérna er Ómar síðasta sumar að losa pláss í belgnum á sér eftir gott djamm.... falleg mynd !

"He loves the cock"
Ég nenni eiginlega ekki að skrifa meira um Ómar... Til hamingju með afmælið gerpið þitt og þú veist að okkur þykir vænt um þig þrátt fyrir allt...
p.s. já, þú mátt hefna þín þegar ég á afmæli :
:: Gringo 17:25 ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 16, 2005 ::
1. Sætið !
OLE OLE OLE OLE !!! Var að koma heim og brosi enn eins og mongó :) Það er fátt skemmtilegra en að ganga út út Berginu með 2 stig í vasanum. Það fór ekkert á milli mála í kvöld að HK strákarnir voru komnir í gettóið til að fara heim með 2 stig. Mættu grimmir til leiks og voru fljótir að koma sér yfir og bættu svo bara í þegar leið á leikinn. Vörnin byrjaði ekkert allt of vel en sóknin var að skila inn mörkum. Svo eftir smá small vörnin saman og Bjöggi hrökk í gang.
Ég ætla nú að taka smá tíma í það hérna að þakka Bjögga fyrir það að hafa tekið sig á og komið aftur eftir pásu nýr maður. Hann fékk töluverða gagnrýni drengurinn fyrir áramót fyrir móral og neikvæðni. Núna er hann að svara þessu eins og á að gera, taka sig á og bæta sig eins og hetja! Síðustu tveir leikir búnir að vera frábærir og í raun bara allt annar maður sem er að spYla núna.
Vörnin var að mestu mjög góð í kvöld. Miðjan náði nú að vera götótt af og til og líklegast útaf því að liðið var komið vel yfir og menn ekki alveg jafn ákveðnir. Ég er samt ekki frá því að vörnin hafi tekið 5-7 bolta í kvöld og oft virkilega gaman að sjá þegar Ingimundur gerði tilraun til að skora... en boltinn endaði í vörn HK.
Núna er bara að halda þessari stefnu áfram, menn eru að bæta sig í hverjum leik en samt hvergi nálægt því að toppa strax. Þetta er góð stefna og hún er alveg að beina í rétta átt núna. Næsti leikur er við Val í Digró á laugardaginn og maður er alveg að búast við frábærum stemmara !
Þangað til næst.... ÁFRAM HK !!
:
:: Gringo 21:10 ::
...
ÍR-HK

Við fórum nokkuð ílla með ÍR á síðasta tímabili, tókum þá með 11 mörkum og ekki væri það nú leiðinlegt að sjá það gerast aftur :)
Fjölmennum í gettóið í kvöld og sýnum ÍR-ingum hvernig alvöru stuðningsmenn hvetja sitt lið, eftir bikarleikinn við ÍBV, þá hefur Austurbergið gott af alvöru stemmara og alvöru leik !
Upphitun heima hjá mér ! .:
:: Gringo 15:22 ::
...
:: þriðjudagur, febrúar 15, 2005 ::
Newsbreakers!
Newsbreakers er hópur af vitleysingum sem að stunda það að cutta inn í miðja beina útsendingu hjá fréttastöðvum og trufla :) Væri gaman ef svona gerðist líka á íslandinu .. =)
:: Bastarðurinn 17:58 ::
...
:: mánudagur, febrúar 14, 2005 ::
Auglýsingar
Besti auglýsingatími ársins í USA er auðvitað á meðan Superbowl fer fram. Hér eru þær auglýsingar sem slógu í gegn þar í ár... snilld !!
Smellið hér til að skoða
:: Gringo 17:28 ::
...
:: sunnudagur, febrúar 13, 2005 ::
Súrir tenglar á þynnkudag Hvað fær fólk til að vilja klára þennan leik skil ég ekki en hægt er að ná í leikinn hérna www.stepmania.com En svo fann ég líka fyndnustu sögu í heimi .. cruel evil bastarður sem að fékk þá snilldar hugmynd að gefa vinkonu sinni 9000kalóría kvöldmat ?! 9000?!?!
En já, halda áfram að skemmta mér þunnur, og takk fyrir góða mætingu á leiknum í gær, var brilliant ;)
:: Bastarðurinn 14:58 ::
...
|
|