|
|
:: föstudagur, febrúar 25, 2005 ::
Stutt í leik ! Hver er þessi Óli ?
Núna þegar ég er að skrifa þetta eru um 26 klst í einn stærsta leik ársins. Það er alveg á hreinu að spennan er að magnast duglega, töluverð umræða er í gangi núna og alltaf fjölgar þeim sem ætla að koma á leikinn. Ég vil nota tækifærið og taka það fram að öllum HK-ingum er boðið að kíkja á Classic Rock á morgunn, þetta er fyrir alla og því er það... því fleirri, því betra !
Annars ætlaði ég nú bara að skella hér inn mynd af svari mínu til Óla. Eins og fólk tók kanski eftir, þá er ég að vinna með Óla, markmanni ÍR. Hann gerði sér lítið fyrir og merkti borðið mitt duglega á sunnudaginn með einhverju ÍR óbjóði. Ég hef ekkert svarað því heldur látið hann stressa sig á því út vikuna að ég væri að fara gera e-ð við hann. Í dag varð ég svo að svara aðeins fyrir mig og þegar Óli fór í mat... byrjaði ég á því að merkja borðið hans duglega með HK og Kópavogsfánum. Það verður nú að koma fram að sjaldan hefur borðið hans Óla verið jafn fallegt og spurning hvort að Óli taki það bara ekki upp að vera með það merkt HK, rauði og hvíti liturinn fer honum bara nokkuð vel.
 Borðið hjá Óla... fallegt
Þetta var nú ekki alveg nóg þannig að ég hinkraði eftir því að Óli færi frá borðinu sínu án þess að læsa tölvuni... það kom að því og úr því varð það að Óli var með nickið "ÁFRAM HK !!!" á MSN.
Gríðarlegar framfarir hjá þér Óli minn á einum degi... keep it up !
Kópavogsbúar... Fjölmennum í Höllina og sjáum til þess að dollan komi heim með okkur í Digró !
:
:: Gringo 13:43 ::
...
:: miðvikudagur, febrúar 23, 2005 ::
Upphitun
Eftir strangar umræður við nokkra staði og miklar rökræður hefur það verið ákveðið að við ætlum að hittast á Classick Rock sem er í Ármúla 5. Það þekkja ekki allir þennann stað enda er það ekki skrítið, þetta er ekki gamall staður en hann er mjög flottur og passar alveg ótrúlega vel við það sem við erum að fara að gera á laugardaginn. Hérna eru nokkur atriði sem eru þess virði að telja upp:
- mjög stutt í höllina (skrúðganga niður í höll) - stór staður (tekur um 400 mans) - nýr staður og mjög flottur (sjá myndir) - næg bílastæði (losnar við ösinga í kringum höllina fyrir og eftir leik) - Pool - Dart - Hamborgarar (stórir og góðir) - Tilboð á barnum
Hvað annað þarf maður ?




Eins og þið sjáið þá gæti þetta varla verið betra fyrir okkur, stefnan er sett á það að hittast þarna í kringum 14:00, fá sér góðann borgara, bjór, spila pool og koma sér í rétta gírinn fyrir leik. Svo er skrúðganga með fánum, trommum og stemmingu í Laugardalinn líklegast rétt um 30-40 min fyrir leik.
Það eru auðvitað allir velkomnir þangað, þetta er alls ekkert bara fyrir Binnamenn eða þá allra hörðustu. Þetta er fyrir alla HK-inga sem vilja gera þennann dag eftirminnilegann og skemmtilegann.
Sjáum til þess að Höllin verði fallega rauð og hvít á laugardaginn !
Skora á alla að láta sjá sig !
:: Gringo 23:58 ::
...
Kveðjur....
Það eru nokkrir harðir stuðningsmenn HK sem ekki komast á leikinn en hafa beðið mig um að senda liði og stuðningsmönnum allra bestu kveðjur.
Þar má helst telja 2 menn sem eru algjörar hetjur í mínum augum, Mundi "Frændi" í Danmörku og svo Steinar "Verzló" sem er akkúrat núna að pakka niður fyrir ferðina til Skotlands eftir... tja... 11 klst held ég bara. Mundi talaði við mig í dag og bað mig að senda sérstakar kveðjur til Binna og svo auðvitað til allra HK-inga. Steinar var aftur á móti rétt í þessu að senda mér þessa mynd og texta til að hafa með henni:
 Texti frá Steina: "bitur Binnamaður... En stoltur! good luck á laugardag"
Það er nokkuð ljóst að Steinar verður fallega klæddur í Glasgow! Ég vil þakka Munda og Steina fyrir skemmtilegar kveðjur... leiðinlegt að þið verðið ekki með okkur á laugardaginn !
:
:: Gringo 21:01 ::
...
3 dagar í leik !
Aðeins 3 dagar í leik og allt að verða vitlaust. Raggi hótaði að segja upp þar sem hann er að vinna ef að hann væri ekki að fara að fá frí til að komast á leikinn. Hann er því að borga sjálfur flug alla leið frá Austfjörðum til að komast á leikinn, ég var að fresta ferð til Skotlands og fleirri menn eru að leggja á sig mikla vinnu til að missa ekki af þessum leik.
Varðandi upphitun þá kemur auglýsing hingað á aurinn í kvöld... ég er að klára að vinna í þessu eins og er en ég get allavega sagt ykkur að við erum með stað rétt við Höllina þannig að þar geta menn hitað upp og svo verður bara gengið á leikinn.
Meira info á eftir !
:
:: Gringo 15:42 ::
...
:: þriðjudagur, febrúar 22, 2005 ::
4 Dagar í leik !
Það kemst fátt að hjá manni annað en þessi blessaði leikur sem verður á laugardaginn. Allt plan er komið á full blast og ég er ekki frá því að við séum nokkuð vinsælir. Í stað þess að við séum að reyna að finna stað til að drekka á, þá eru rekstrarstjórar og eigindur skemmtistaða að hafa samband við okkur og bjóða okkur tilboð o.fl. Þetta er ekki allt komið á hreint en það er verið að vinna í þessu og ég mun skella inn alveg helling af info um leið og þetta er klárt.
Þetta verður alvöru dagur frá A til Ö, það er alveg á hreinu. Við höfum farið í höllina áður og núna er stefnan auðvitað sett á það að toppa allt sem áður hefur verið gert, það er ekkert flóknara en það.
Eins og staðan er í dag er stjórn Binnamanna að skoða tilboð varðandi upphitun, rútuferðir og fleirra.
Til að hita aðeins upp...
 Stemming !!
 !! HK !!
 Sigri fagnað
 OLE OLE OLE OLE
 Dollan komin í Digró !
Hver vill missa af þessu ??
:
:: Gringo 15:28 ::
...
:: Björn Ágúst 12:10 ::
...
5aur
Þetta er líklegast einn súrasti 5aur sem ég hef séð....
:
:: Gringo 10:00 ::
...
|
|