|
|
:: laugardagur, mars 05, 2005 ::
 Rangers-Inverness
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 15:03 ::
...
:: föstudagur, mars 04, 2005 ::
 Game on!
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 12:14 ::
...
 Daudur Englendingur a klosettinu a hotelinu !
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 10:58 ::
...
:: fimmtudagur, mars 03, 2005 ::
Jæja,
Þá er nú langt um liðið frá því að maðurinn sem búsettur er á Vestfjörðum pikkaði inn vel valin orð á þetta annarz magnaða blogg okkar.
Vill ég nú byrja á því að fara á klósettið...
....FLÖSS!....
Ahhhh... good shit.. en nóg af því...
Þannig er nú mál með vexti að upp eru að renna páskar nokkrir, en þeir koma jú einu sinni á ári. Undanfarin 4 ár (að ég held) þá hefur nú staðið sú hefð að stefna á norðurbæinn Akureyri til að fylgjast jú með fáklæddu fólki spenna vöðva, jafnt konur sem kallar, og reyna við fjölda þrauta í þol-þrauta-brautinni góðu. Við höfum nú haft nokkra vini og kunningja þarna ofarlega á pöllum, má þar nefna sem dæmi: Guðni Freyr, Einar Ólafur, Þorgeir Ómarsson og Kiddi, svo eitthverjir séu nú nefndir að nafni. Í ár mun okkar öflugi Guðni Freyr stíga á stokk ásamt honum Kidda danaprins, og vitum við sem þá þekka að þeir eru karlar í krapi nokkru, eru ætíð að keppast um hvor þeirra verði í #1 sæti og hvor í #2 sæti.
Í ár mun ekki slá slöku við og ættla ég og fleyri að skella sér norður á Akur-eyri, hvetja og klappa okkar mönnum lof í lófa á milli bjór glasa drykkju. Svo er þá aðal kvöldið víst Laugardagskvöldið, en þá munu okkar menn vera komnir með bikara í hönd og meiga fá sér einn kaldan. En þess má nú geta að svona keppni kostar mikinn undirbúning og þar með talið straff á öldrykkju. Eftir margra vikna straff frá svoleiðis svalagjöfum þarf oft lítið til að kæta menn og hefur það vakið mikla lukku.
Ekki er endanleg tala kominn á þann mannskap sem ættlar að skella sér með, en af fyrri reynslu þá verður það væntanlega vel valdir einstaklingar sem kunna að skemmta sér.
Hvernig leggst svona mannfögnuður í fólkið?
Mun fjögun gesta eiga sér stað í ár?
Sjá myndir frá fyrri keppnum hér --->Keppnis
Sjá einnig hér --->2004-2003 ...
:: Ztebbsterinn 19:00 ::
...
 Frihofn... Jeii!
Myndina sendi Gringo Sent með GSMbloggi Og Vodafone
:: Gringo 06:16 ::
...
:: mánudagur, febrúar 28, 2005 ::
Jaguar
Frændi minn var að fá sér nokkuð skemmtilegann bíl, Jaguar S-Type sem kom á götuna 28. Des 2001. 3000cc vél sem er að skila í kringum 240 hestum + það að vera lúxus út í gegn... líklegast einn sá þægilegasti bíll sem ég hef ekið ! Það var ekkert leiðinlegt að vera á honum um helgina, fékk mann allavega til þess að sleppa því að drekka... hehe
 kisi... prrrr
:: Gringo 11:07 ::
...
:: sunnudagur, febrúar 27, 2005 ::
Maður getur ekki unnið allt ...
Ætla að byrja þetta hérna á því að óska Óla, góðum vini mínum og núna Bikarmeistara, innilega til hamingju með titilinn. Hann stóð sig frábærlega eins og ég átti reyndar alveg von á og átti stórann þátt í því að ÍR fagnaði sigri á laugardaginn. Til hamingju kallinn minn, þótt að ég sé nú mjög harður HKingur þá er ég ánægður fyrir þína hönd!
HK liðið náði sér aldrei að strik almennilega í þessum leik. Vörnin fór aldrei í gang og sóknarleikur okkar var tregur og hálf furðulegur eiginlega allann leikinn, það þarf líka ekki sérfræðing til að tjá fólki það að markvarsla fer ekkert í gang þegar það er ekki vörn til að hjálpa til. Það komu samt nokkur augnablik í leiknum þar sem það var eins og að HK ætlaði að ná að smella í gang en aldrei tókst það almennilega.
Stemmingin var samt góð í Laugardalshöll um helgina og ég vil persónulega þakka öllum þeim sem mættu og tóku þátt í að skapa þann stemmara sem þarna var. Þetta byrjaði frekar furðulega þar sem ÍRingar voru með of margar trommur miðað við það sem okkur var sagt en gæslan sá um að afgreiða það mál fljótt og vel. Eitt sem var nokkuð leiðinlegt við daginn var það að fólk var eitthvað í því að henda hlutum á milli hópa, þetta byrjaði strax þegar við komum inn í salinn, þá tóku einhverjir ÍRingar á móti okkur með því að henda í okkur flautum og rusli og því miður hélt þetta áfram. Þetta endaði svo með því að einhver í HK hlutanum skutlaði hlut á móti seinna í leiknum. Þetta er auðvitað e-ð sem að er ekki liðið og því var viðkomandi vísað úr húsi strax. Þetta setur blett á annars ágætan dag en þetta mál verður afgreitt af réttum aðilum þannig að ég ætla ekkert að fara nánar í það.
Það sem þarf að gera núna er að snúa sér að næsta leik og hann er á móti ÍBV í Eyjum. Það er verið að skoða það að skella sér með liðinu "út" á leikinn og vonandi geta Binnamenn farið með til að hvetja strákana áfram.
HKingar voru með miklar væntingar fyrir leikinn gegn ÍR og því eru vonbrigðin töluverð en ég vil samt minna fólk á það að þetta er fyrsta árið okkar með þetta nýja lið, nýja þjálfara og alles þannig að 1. sætið í deild og að komast í úrslit bikarnsins er e-ð sem við hefðum verið gríðarlega sátt með fyrir þetta tímabil. Núna er tíminn annar og væntingar miklar en ég er samt mjög sáttur með strákana í liðinu þegar litið er á heildina. Þeir eru að standa sig vel og fá ekkert nema hrós frá mér. Núna er bara að halda áfram á sömu braut og þá fara verðlaunin að koma.
p.s. myndir frá leiknum koma fljótlega....
:
:: Gringo 21:20 ::
...
|
|