|
|
:: laugardagur, mars 12, 2005 ::
Hvað var þetta ?
Fór á Hlíðarenda að horfa á HK spila gegn Val áðan en sá e-ð allt annað lið. Leikmenn HK voru meira í því að horfa á gólfið og það sást bara ekki á liðinu að þeim langaði til að vinna þannig að þeir fengu akkúrat það sem þeir áttu skilið.... Ekki rassgat! Það er alveg kominn tími á það núna að strákarnir fái aðeins að heyra það, þetta var alveg agalega sorglegt og niðurdrepandi. Binni kom inn og ég verð að hrósa honum aðeins, hann var að gera ágæta hluti þarna á vellinum og gaman að sjá kallinn minn spila aftur. Óli Víðir var aðeins að klóra í bakkann en virtist vera þreyttur þegar leið á leikinn. Útlendingarnir okkar 2 voru alveg í því að gera mest lítið og ég er ekki frá því að Valdi Þórs hafi verið meira í því að horfa á gólfið en nokkuð annað í þessum leik. Hann small svo allt í einu í gang undir lokin og setti einhver 4 í röð en fyrir utan þann kafla, þá var ekki mikil gleði að sjá hjá honum í dag. Bjöggi var að taka slatta en hornin voru að fá að sleppa of vel.
Það sem fór alveg með mann áðan var það að maður sá það ekki á leikmönnum að þeim langaði að vinna, þetta er mikið vandamál og e-ð sem þjálfarar liðsins þurfa alvarlega að fara að spá í. Það sem þarf að gerast núna hjá þeim félögum (Miglius og Héðinn) er alvarleg sálræn vinna. Þetta eru allt leikmenn sem geta spilað MIKIÐ betur og ég tel mig alveg vita að þeir eru í fínu formi líkamlega en núna er það andlega hliðin sem virðist ekki vera í lagi. Sem dæma má nefna það að um leið og einhver dómur féll gegn okkur þá var eins og allir hreinlega hættu. Einnig leið manni eiginlega eins og við værum 10 mörkum undir þegar í raun vorum við 2 undir og alveg nóg eftir af leiknum. Þetta er vandamál er e-ð sem er alveg hægt að laga og það fljótt en það þarf vilja til þess. Við erum í fínum málum í deild og það er nóg eftir, núna þarf bara að rífa sig upp úr þessu rugli og byrja að spila alvöru handbolta og hafa gaman af því. Um leið og menn sýna það að þeim langar að vinna og berjast, þá koma áhorfendur með og allt gengur upp. Það sást alveg í leik okkar gegn Víkingum að það er stutt í þetta og við þurfum að stefna á það að ná upp því andlegu formi sem var þá.
Aðrir leikir í dag fóru svona :
Víkingur 29 : 33 Haukar Valur 32 : 30 HK ÍR 32 : 30 Þór Ak.
Voru ekki komin staðfest úrslit úr leik ÍBV og KA þegar þetta var skrifað en síðast þegar ég vissi, þá var ÍBV 3 mörkum yfir.
Við erum sem sagt í fjórða sæti eins og er og það er ekkert til að hengja haus yfir, núna er bara að halda áfram og mæta með sigurvilja og báráttu í Digró næsta laugardag til að klára ÍBV og jafnvel koma sér í annað sætið. Það er e-ð sem við getum vel og skulum gera!
Ég vil sjá vilja til sigurs næsta laugardag, ekkert annað kemur til greina! Þetta er heil vika sem menn fá núna og það dugar ekkert annað en að nota hana vel. Ég hef fulla trú á þessu lið i og veit alveg að þeir eiga eftir að smella í gang aftur !
:
:: Gringo 18:11 ::
...
HK - Valur í dag ! kl. 16:30
HK mætir Val að Hlíðarenda í dag og stefnir allt í hörku leik. Ég vonast til að flestir láti sjá sig í bragganum í dag og hjálpi okkar mönnum að koma 2 stigum aftur heim í Digró. Þetta verður hörku leikur og það er alveg ljóst að okkar menn verða að spila klassa bolta ef þeir ætla sér að klára þetta almennilega.
Sjáumst á eftir !
 Elli að skora gegn Val í Digró, sá leikur endaði 31-28 fyrir HK
:
:: Gringo 13:45 ::
...
Hversu harður er þessi ?
 :
:: Gringo 00:20 ::
...
:: föstudagur, mars 11, 2005 ::
Every nerds dream !
Star Wars: Episode III - Revenge of the Sith AVI file (896 x 512 pixels; XviD 1.x codec required)
Það er kominn trailer á netið og Stjáni PZ var ekki lengi að láta mann vita, takk meistari ! Þessi trailer er vægast sagt rosalegur! Svo virðist vera sem að þeim ætli að takast að gera aðra góða Star Wars mynd því að síðustu tvær voru bara ekkert spes. Það hlakkar duglega í manni í að sjá þessa... ÖSS
Það þarf XviD codec til að sjá þetta og þetta tekur líka smá tíma... enda um 50mb
Enjoy !
:: Gringo 14:20 ::
...
Takk fyrir mig !
Langaði bara að skella hér inn smá bulli... þakka fyrir þessi skemmtilegu skrif frá Ómari, þetta var fróðlegt og skemmtilegt að lesa. Einnig vil ég þakka öllum þeim sem voru að senda manni kveðjur í gær í gegnum SMS og netið, alltaf gaman að vita að maður á góða vini all over the world :)
Núna er það alvaran sem tekur við og þá er ég að tala um leik okkar við Val á laugardaginn, við erum að fara að koma heim í Kópavoginn með 2 stig og það er bara ekkert flóknara en það. Leikurinn er kl. 16:30 og ég verð ekkert nema sár og svektur ef ég sé ekki fólk fjölmenna í Vals-braggann til að standa með okkar mönnum. Óli er búinn að lofa því að Haukar fá ekki stig gegn ÍR þannig að 1. sætið er enn möguleiki hjá okkur og við setjum stefnuna á það !
p.s. Steini, þetta er ekki Photoshop... just a lot of work ;) :
:: Gringo 12:26 ::
...
:: fimmtudagur, mars 10, 2005 ::
23 Ár, af B.H. Stefánssyni !!
Já, Dagarnir líða og árin telja svona rétt eins og fuglarnir syngja og peggið muldrar. Það sem ég er að koma á framfæri er að hann Birgir Hrannar Stefánsson, eða Heimamaðurinn okkar er 23 ára gamall í dag. Ég nenni ekki að telja hérna æviágrip Birgis, enda eru það hundleiðinlegt. Ekkert nema einhver bjánaleg fjölskylduboð og pastel og neon litir upp til hópa. Kanadaferð og hamborgararassar. En ég tek þetta í stuttu máli.
Já, margt hefur gerst í gegnum tíðina hjá Birgi kallinum og má þar telja upp t.d allar konurnar í lífi hans. Ég ætla að byrja á Huldu Fríðu eða Bínu Brauðfót eins og hún var oft nefnd og hversu gaman var að hlusta á Ragnar Inga æsa hana og Bigga upp. Það endaði oft ekki sérlega fallega... en fyndið var það. Þar hélt Birgir að hann væri kominn í hinn gullna pakka en svo var aldeilis ekki. Hann gerði hana heimakomna og ::RITSKOÐAÐ:::::RITSKOÐAÐ:::::RITSKOÐAÐ::Ég verð víst að sleppa út þessum dálk um konurnar í lífi Birgirs, það tæki víst of langan tíma. En hvað um það. Birgir hefur alltaf verið mikill stuðningsmaður handbolta og þá sérstaklega Binna félaga okkar og byrjuðu hann og Raggi að góna á Binnann spila handbolta árið áður en að hárið á Binna krullaðist.. og það er soldið langt síðan. En nokkrum árum seinna þá fékk Birgir þá flugu í hausinn að reyna að fá mig og Björn ágúst júl og Guðjón Júl og fleiri til að kíkja á leiki og viti menn.. Úr því spratt ástsælasta stuðningsmanna lið á Íslandi. " Binnamenn". Binnamenn telja hátt á 3 tug í dag sem verður að teljast gott.
Já hann Birgir hefur gert ýmislegt á síðari árum. Ég verð að nota tækifærið og minnast á HríseyjarFerðina 2oo4. Þar heyrðist í Birgi heimamanni segja í afar annarlegu ástandi " þetta er alveg betra en þjóðhátið í Eyjum" ..Uhhhhh.. he he.. þurfum ekkert að ræða þetta frekar ;) og þetta var við frekar dræmar undirtektir viðstaddra ;) En auðvitað var enginn að ibba sig þarna heldur drukku menn út í eitt og hlustuðu á Richard Claydermann hamra píanóið eins og gamla hóru með staurfót.
Birgir hefur líka alltaf þótt frekar bráðþroska drengur og aðeins 8 ára gamall var hann farinn að drekka pilsner á jólunum með foreldrum sínum . Það var svo 4 árum seinna að hann var kominn í bjórinn og þið getið laggt saman 2 og 2 og ímyndað ykkur jólinn þegar Birgir var 16 ára gamall.. Þetta eru jólinn sem pabbi hans Ragga ( sem býr í næsta húsi ) gleymir aldrei og hann bað mig vinsamlegast að tala varlega um þessa hátið ;) En það hefur svo verið sumarið 2001 eða jafnvel fyrr þegar Birgir er talsvert frá löglegum áfengisaldri að hann er farinn að fussa og sveia eins og gamall Skoti yfir venjulegum bjór og rommi. Neeeii.. Birgir gat aðeins drukkið Kolbikasvartann gersamlega ódrekkandi bjór og svo drakk hann bara Viskí með klaka. !! Það var svo í kjölfar svona aðstæðna að Hjörvar Hafliðason stórkunningi okkar sagði við Birgir hérna í haust. " Birgir, þú varst án efa elsti unglingur í Evrópu , þú varst orðinn gamall bara um 12 ára " LOL
Það er eiginlega of margt sem ég gæti sagt um þennan skítuga Svía ( Já.. hann fæddist í landi bremsuhnakka og munntóbaks ) en það þyrfti að koma því fyrir í óskarsverðlaunamynd sem yrði 16 klukkutímar að lengd og eflaust rosalega Dramantísk, fengi óskarinn sem besta Drama með besta grát atriði karlmanns..
Fyrir hönd Al Quaida, Saddams og Enrique Iglesias þakka ég bara fyrir mig Birgir minn.. Þetta hafa verið afar mis góð 23 ár ;) En flest þó alveg súperfín.
Ómar Kebab Binnamaður Smith kveður héðan úr Smáralind.
 :
:: Ómar 11:07 ::
...
:: miðvikudagur, mars 09, 2005 ::
Orðlaus... eða næstum
Hvað getur maður sagt eftir svona leik ? HK liðið byrjaði mjög vel og var lengi vel 3-4 mörkum yfir. Þegar leið aðeins á seinni hálfleik þá bara gerðist e-ð sem ég skil ekki. Jónas og Ingvar, held ég að þeir heiti, fóru allt í einu að missa sig í ruglinu. Fljótlega var ÍR komið inn í leikinn og við ekki nema 4 á vellinum. Þetta var líklegast með því fáránlegra sem að ég hef séð lengi. Það er samt eitt sem þarf að hafa alveg á hreinu og það er það að dómarar tapa ekki leik, þeir áttu auðvitað mikið í þessu tapi með þessu rugli sínu en við hefðum samt átt að vinna þetta. Það er auðvitað erfitt að spila 7 gegn 9 en við eigum alveg að geta það. Það sem er kanski verst við þetta er að leikmenn og stjórnendur voru ekki að halda haus og voru allt of fljótir að láta þetta rugl í dómurum fara í sgi. Menn verða að hafa stjórn á sér og halda áfram að spila sinn bolta þegar svona lagað er að gerast, við erum að klúðra nokkrum sóknum í röð en þar á milli kemur auðvitað bull eins og að ÍR hafi fengið að vera í sókn í næstum 2 min þegar þeir eru manni færri og fleirra, alveg ótrúlegt í raun. Þetta hefði getað orðið mjög skemmtilegur leikur þar sem hér eru á ferð 2 skemmtilegustu lið landsins en um leið og leikurinn fór að hraða á sér, þá fór það ekkert á milli mála að þessir tveir svartklæddu réðu EKKERT við þetta verkefni. Það er bara alveg staðreynd að þeir réðu akkúrat ekkert við þetta í kvöld, ég er alls ekkert að vera dónalegur eða leiðinlegur við þá tvo, þvert á móti, ég er aðeins að ræða um staðreyndir. Það er jafn mikil staðreynd að þér réðu ekkert við þetta frekar en að Siggi Sveins hefði ráðið við að spila 60 min í þessum leik.
HSÍ þarf alveg alvarlega að fara að endurskoða sín mál, þetta er bara algjörlega barnalegt og sorglegt að svona leikur skuli enda svona. Þarna eru að spila 2 lið sem eru tilbúin að leggja allt á sig til að landa 2 stigum en svo endar það að mestu í höndum dómara hver vinnur leikinn, FÁRÁNLEGT !
Ég ætla samt að óska vini mínum honum Óla til hamingju með stigin 2 en ég tel mig líka alveg vita að hann hefði frekar viljað fá þessi 2 stig öðruvísi....
Það eru tveir leikir eftir og núna er ekkert annað hægt að gera en að setja stefnuna á það að klára þá almennilega ! Nenni ekki að hlusta á e-ð djöfulsins væl og svekkelsi, það er hellingur eftir og við ætlum að klára þetta !
:
:: Gringo 21:56 ::
...
HK - ÍR í kvöld !
Ég er ekki viss um að fólk sé að átta sig á þeirri stöðu sem HK er í akkúrat núna. Ef við spólum aðeins til baka og spáum í nokkra hluti.... Undir lok síðasta tímabils var ástandið ekki allt of gott, það var nýlega búið að reka Árna, deilur í hópnum milli yngri og eldri manna og á alla vegu í gangi, liðið ekki að spila nógu vel og í raun sá maður ekki að það væri mikil sigling á okkar mönnum. Það er ekki nema ár síðan að ástandið var frekar, ef ekki bara mjög svart. Í dag eru sumir enn að svekkja sig á tapi gegn ÍR í bikar, allt í góðu að það sé metnaður í fólki en ég sjálfur hef tekið þá ákvörðun að nota mína orku og áhrif í það að byggja upp HK liðið í stað þess að skamma menn og setja út á þá. Fyrir tímabilið var töluvert verið að ræða um það hvernig þetta tímabil gæti nú farið. Öllum langar að komast í úrslitakeppnina og því var það svona það markmið sem menn settu fannst mér. Þegar þessi blessaða spá kom svo út þá tóku menn aldeilis við sér, HK spáð sigri og allt að gerast. Viðbrögð hjá fólki voru nokkuð blönduð, margir sögðu þetta vera af því að við vorum alveg með nýtt lið sem var ekkert búið að spila hér heima þannig að óvissan spilaði stórt hlutverk. Aðrir sögðu þetta vera rétt því að við værum með frábært lið. Spá er samt alltaf bara spá þannig að ég tók þessu bara sem hrósi fyrir hönd HK og þakkaði fyrir mig með brosi.
Núna undanfarið hefur fólk verið að átta sig á því að þessi spá á alveg séns á því að rætast, þetta lið er að smella mjög vel saman miðað við það að þetta er aðeins þeirra fyrsta ár. Þjálfarinn okkar knái er að gera frábæra hluti og staðan eins og hún er í dag er þannig að við erum í 1. sæti í deild og aðeins 3 leikir eftir. Ég sal hafa þetta einfalt... 3 leikir, 3 sigrar= deildarmeistarar í fyrsta sinn !
Þetta er ekki krafa hjá mér heldur er ég aðeins að benda fólki á það að það eru bara 3 leikir eftir í deild og við (stuðningsmenn) verðum að sjá til þess að ekki tapist stig í þessum 3 leikjum. Stundum er fólk held ég ekki alveg að átta sig á því hversu mikið vald stuðningur hefur á gang leiks, stuðningsmenn geta og hafa á þessu ári skipt sköpum fyrir liðið.
Fjölmennum á þessa 3 leiki og verðum á staðnum til að fagna frábærum árangri HK í Úrvalsdeild á þessu ári, liðið á það skilið !

Hérna eru svo myndir frá Bikarúrslitaleik okkar við ÍR
:
:: Gringo 15:01 ::
...
Ekkert varir að eilífu
:: Björn Ágúst 10:28 ::
...
:: þriðjudagur, mars 08, 2005 ::
Vonbrigði, vonbrigði, vonbrigði !
Sir Alex Ferguson burt......
Nú er komið nóg ! Ég vill sjá í fréttum á morgunn að það er búið að reka Alex Ferguson eða að hann sýni þann manndóm að segja af sér. Horfði á leikinn áðann og var þetta það skelfilegt að leikmenn í annarri deild í Íslandi hefðu verið betri ! Liðið er smitað af áhugaleysi stjórans. Burtu með hann áður en hann skemmir meira. Sir Alex sýndi í kvöld að hann er orðinn úreldur. 1-0 undir og samtals 2-0 og ekki gerir hann skiptingu.......nei, ekki fyrr en sex mínútur eru eftir og andleysið orðið algert ! Þá setur hann A. Smith inn sem kemst að sjálfsögðu aldrei í takt við leikinn. Hefði nú verið gáfulegra að setja inn sóknarmann strax fyrir varnarmann eins og F. Rijkaard gerði þegar Barca var dottið út ! Hefði maður séð það strax þá hefði maður séð menn allavega haft áhuga fyrir því að reyna ! En áhugaleysið er algkört hjá stjóranum og vill ég sjá uppsagnarbréf á borði stjórnarmanns Man Utd á morgunn. Þetta er nóg ! Það er til fullt af heimsklassa mönnum sem vilja taka við þessu liði.
p.s Sá sem tekur við af Ferguson þegar hann segir af sér á morgunn á að nota alla sína peninga og kaupa Gennaro Gattuso......þessi maður er GUÐ !!
:
:: Brynjar 23:46 ::
...
Til hamingju með daginn Ómar !!
Það má ekki lemja Ómar í dag þannig að ég lofa því hér með að snerta hann ekkert í dag... en eins og Logi Geirs sagði í lagi sínu.... "það kemur dagur eftir þennann dag"
Njóttu dagsins kallinn... hann kemur ekki aftur fyrr en eftir heilt ár.
Nánari upplýsingar hér
:
:: Gringo 11:12 ::
...
:: mánudagur, mars 07, 2005 ::
Hrós Aldarinnar !!!
Fær Skjár Einn fyrir að byrja að sýna Staupastein(The Cheers) ! Þvílík snilld......er búinn að vera að pirra mig á því að það eina sem er í imbanum á þessum tíma sé Guiding Light eða Jing Jang á Popptíví. En þá kom Skjár Einn og bjargaði málunum....loksins loksins !!
Þrefalt húrra fyrir Skjá Einum....húrra húrra húrra !
.
:: Brynjar 17:29 ::
...
Bjallan fundin
Ég vill hér með skila þökkum til þess/þeirra sem skiluðu Kúabjölluni okkar í Digranesið.

Hennar var sárt saknað og ef þið vitið hver/hverjir það voru sem skiluðu henni þá megiði skila kveðjum frá Binnamönnum.
Nú er bara málið að fara að huga að næsta leik, HK - ÍR í Digranesinu á Miðvikudaginn kl 19:15 sem verður eflaust alveg rosalegur. Þeir mega ekki komast upp með að hirða af okkur eitt einasta stig !
ÁFRAM HK !!
:: Björn Ágúst 12:34 ::
...
:: sunnudagur, mars 06, 2005 ::
Aftur í 1. sætið
HK náði að skella sér aftur í fyrsta sætið í kvöld og gerði það í raun án vandræða. Eins og sést hérna á aurnum þá hef ég verið í Glasgow í góðum fíling og ég mun líklegast skella inn smá bloggi um það fljótlega. Heilinn á mér er ekki alveg að virka eftir 4 daga af drykkju og litlum svefni þannig að ég legg ekki í það eins og er. Aftur að leiknum í kvöld. Það var allt annað að sjá þetta HK lið í kvöld en það sem spilaði síðustu 2 leiki, þetta er lið sem á alveg 100% skilið að vera á toppnum. Leikurinn byrjaði vel, vorum fljótir að ná undirtökum og þeim var svo haldið alveg út 60 min. Haukur gerði það sem fyrirliði á að gera og fór fyrir HK liðinu til að byrja með. Í raun á hann alveg skilið að þetta sé kallað að fara hamförum. Hann fittaði sig í gegn eins og fagmaður og það var brilliant að horfa á hann í kvöld. Magnaður leikur hjá kallinum í kvöld ! Aðiri leikmenn HK voru flest allir að spila klassa bolta í kvöld enda endaði þetta á 10 marka sigri HK 35-25. Við erum komnir aftur á gott ról og þaggar þetta vonandi niður í þeim sem héldu að HK væri að fara að klikka e-ð. Binni kallinn var harður í kvöld og spilaði þrátt fyrir að vera að stíga úr meiðslum og vera duglega kvefaður. Hann skilaði góðum leik og einu alveg snilldar marki þegar hann fór í skyttuna og hamraði boltann í netið.
Stemmingin var góð í kvöld og spurning hreint hvort liðið var að spila á heimavelli.
:
:: Gringo 21:34 ::
...
|
|