|
|
:: laugardagur, mars 19, 2005 ::
Hvað getur maður sagt ?
Leikurinn endaði 31-26 og við endum mótið í 5. sæti. Munaði engu að við hefðum endað í 6. sæti en Hlynur Jóhannesson varði víti þegar lítið sem ekkert var eftir á móti KA og sá til þess að Valur hafði af þeim 1 stig. Staðan er því svona :
1. Haukar (19) 2. ÍBV (17) 3. ÍR (16) 4. Valur (15) 5. HK (14) 6. KA (13) 7. Víkingur (10) 8. Þór (8)
Þetta er nú ekki alveg sú staða sem manni langar að vera í því að með þessu rugli í dag missti HK heimaleikjaréttinn. Ef við förum yfir það hverjir voru að standa sig í liði HK í dag þá er það nýbakaði landsliðsmaðurinn okkar Hann Óli Víðir sem var að gera ágæta hluti. Han fór fyrir HK liðinu og hélt okkur í leiknum lengi vel. Bjöggi átti líka nokkrar rispur en lítið hægt að ætlast til þess að hann sé að fara hamförum þegar vörnin er ekki að gera skít. Það er nokkuð ljóst að menn eru bara ekkert í fókus og það hefur skilað okkur 2 stigum af síðustu 10 sem getur varla talist annað en hræðilegt. Núna er rúmlega 2 vikna pása fram að úrslitum og það er eins gott að nota hana vel, ég skrifaði þetta eftir síðasta leik: "Þetta er heil vika sem menn fá núna og það dugar ekkert annað en að nota hana vel."
Það fór nú örugglega ekki framhjá neinum í Digró í dag að þessi vika var ekki notuð í góða hluti... um leið og e-ð gerðist hrundi HK liðið mjög hratt og náði sér svo ekkert á strik aftur. Við eigum ekki einu sinni menn sem geta skorað úr víti.... ég bara veit hreinlega ekki hvað ég get sagt... er að spá í að sleppa því að skrifa meira þar sem menn færu bara í einhverja fílu út í mig og það er nú ekki á bætandi miðað við það sem maður hefur séð í síðustu 3 leikjum.
Mótið er mjög langt frá því að vera búið, Binnamenn hafa gert flesta velli að sínum á þessu ári og við getum alveg gert það aftur en til þess að það gerist, þá þurfum við að sjá að þessum strákum langi til þess að vinna. Þetta eru einu kröfurnar sem ég geri.
Notum þessa 10 daga vel og mætum svo aftur til leiks til að spila alvöru bolta, berjast og sigra !
Áfram HK !
:
:: Gringo 18:22 ::
...
:: fimmtudagur, mars 17, 2005 ::
Peter Stringfellow
Hann Peter, eigandi Stringfellow klúbbana, er 64 ára gamall/ungur. Hann á nokkuð unga kærustu. Hún er að vísu aðeins 22 ára gömul en hún sannar það að Peter er smekk maður, virkilega. Það er samt eitt sem Peter gæti gert betur. Þegar þú ert 64 ára gamall.... þá máttu alveg sleppa því að vera í G-streng !!
:
:: Gringo 19:13 ::
...
:: miðvikudagur, mars 16, 2005 ::
Óli Víðir í landsliðið !

Binnamenn voru að fá þær fréttir að Óli Víðir sé kominn í landsliðið ! . Ég veit til þess að Garcia er kominn aftur í hópinn og svo er góður vinur minn, hann Óli Gísla þarna líka og það er auðvitað BARA vegna þess að hann stóð sig vel á móti HK ;)
Bjöggi er í U21 hópnum auðvitað !
það stefnir allt í það að Binnamenn verði í því að horfa á landsleiki um páskana.
Það er nú bara þannig, ef Óli Víðir spilar, þá verða Binnamenn á pöllum !
Til hamingju allir þrír !
:: Gringo 13:19 ::
...
:: þriðjudagur, mars 15, 2005 ::
Binnamenn are Back with a Bang
Núna er komið að því að við setjum í 3 gír og botnum kvekendið. Því höfum við smellt saman flúnkunýju Binnamanna Vidjói til að koma ykkur í rétta gírinn fyrir leikinn á Laugardaginn sem er á móti ÍBV.
Við höfum aðeins legið í dvala með myndböndin en ætlum okkur "stóra" hluti það sem af lifir tímabils. Við minnum á að leikurinn er í Digranesi og hefst klukkan 16:30. Við skorum á alla sem hafa raddbönd , hendur og fætur og geta framkallað einhvers lags hávaða og stemmningu til að mæta.. En þið hin sem ætlið bara að koma og horfa .. þið eruð líka meira en velkomin. Munið bara að meiri stuðningur þíðir betri leikur !!
Núna er því ekkert eftir en að gera sig klára í slaginn og slá mætingarmet í Digranesið. Binnamenn mæla með góðri upphitun og vel merktum HK // Binnamanna fatnaði.
Sjáumst í baráttufílíng á Laugardag ... Áfram HK !!!
:: Ómar 21:06 ::
...
Önnur Budweiser snilld
Ég verð nú að vera sammála honum Bigga um að þessir gæjar gera alveg snilldar auglýsingar.
Þessi er snilld líka
:
:: Björn Ágúst 11:14 ::
...
:: mánudagur, mars 14, 2005 ::
Myndir
Photo-Toggi stóð vel fyrir sínu þegar Valur-HK fór fram. Hann var að skella þessu á netið og ég get ekki sagt annað en að þetta séu helvíti töff myndir hjá honum. Endilega kíkið á þær og skiljið eftir yjjur hrós handa kallinum í komments :)
Smellið hér til að skoða myndirnar
:
:: Gringo 21:27 ::
...
Góð auglýsing
Þeir hjá Budweiser kunna alveg sitt fag... Þetta er ekki undantekning á því
:
:: Gringo 20:42 ::
...
Til hamingju strákar !!
Í dag er sko alvöru dagur!
Eins og kemur fram þarna eru Steak&BJ dagur í dag. Þetta er sem sagt svar okkar karlmanna við Valentínusardeginum. Ég vil bara nota tækifærið og óska öllum karlmönnum til hamingju með daginn !
:
:: Gringo 20:15 ::
...
:: sunnudagur, mars 13, 2005 ::
Bömmer !
Þetta er allt of fyndið... HA HA HA
:
:: Gringo 19:44 ::
...
|
|