|
|
:: laugardagur, apríl 09, 2005 ::
OUCH !!
Æsifréttamaður 5aursins, Steini "Verzló", var á leið til mín núna áðan og varð þá var við það að e-ð var ekki alveg eins og það átti vera í okkar fallega hverfi. 3 löggubílar, 2 sjúkrabílar, tækjabíll og bílar frá stöð 2 og RÚV voru fyrir utan hjá honum ásasmt einum nýlegurm Golf Gti sem var ekki alveg í besta formi. Við vitum ekkert hvernig þetta allt gerðist þannig að ég ætla ekkert að fara stórum orðum yfir það en myndirnar eru rosalegar. Þetta verður alveg pottþétt í fréttum í kvöld þannig að þeir sem eru forvitnir að vita hvað gerðist, verða hreinlega að horfa á fréttirnar.
Bíllin hafði velt inn í garðinn og stoppaði rétt rúmlega meter frá neðstu blokk hér á Ásbraut....








Vonum að ekki hafi orðið skaði á fólki...
*update*
frétt tekin af mbl.is:
Fluttur á slysadeild eftir bílveltu í Kópavogi
Ökumaður bíls sem valt á Ásbraut í Kópavogi klukkan 12:18 í dag var fluttur á slysadeild Landspítalans í Fossvogi. Að sögn lögreglu er ekki vitað hvort hann hafi meiðst alvarlega. Ökumaðurinn var einn í bifreiðinni en hún mun hafa rekist utan í aðra bíla áður en hún valt sjálf. Er hún mjög mikið skemmd ef ekki ónýt.
:
:: Gringo 14:12 ::
...
:: föstudagur, apríl 08, 2005 ::
Þarna þekki ég þig !
Það er alveg ljóst að leikmenn HK voru alveg búnir að ákveða það fyrir leik að sigur væri það sem menn ætluðu sér í kvöld. Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik, HK náði samt sem áður að komast í 3 marka forustu til að byrja með en svo á slökum kafla í leiknum náðu Valsmenn að jafna en HK hafði síðasta orðið og staðan 15-14 í hálfleik. Vörnin var ekki alveg að gera sitt í fyrri hálfleik og áttu mínir menn þá sérstaklega erfitt með að stoppa Sigga Eggerts sem spilaði mjög vel í fyrri hálfleik. Bjöggi var samt að standa sig gríðarlega vel í fyrri hálfleik enda með yfir 10 bolta á fyrstu 30min! Það fór samt ekki framhjá neinum sem var í Digró í kvöld að HK liðið kom gríðarlega ákveðið inn í seinni hálfleik. Menn hreinlega ætluðu sér að vinna þetta og ekkert annað. HK náði að skora sex af fyrstu sjö mörkum seinni hálfleiks og gamla góða HK stemmingin komin aftur í Digró. Það var gríðarlega góð stemming og ekki hægt annað en að taka það fram að stúkan stóð sig alveg jafn vel og leikmenn á vellinum og gjörsamlega saltaði þessa 35 eldri borgara og Tomma trommuleikara sem mætti á leikinn með Quality Street dolluna sína og sleif sem móðir hans lánaði honum fyrir kvöldið.
Jón Heiðar spilaði sínar fyrstu mín eftir meiðsli og mikið ósköp stóð drengurinn sig vel. Ég á hreinlega bara ekki orð yfir það hvað það var gaman að sjá kauða aftur á vellinum. Hann sá til þess að Siggi Eggerts gerði lítið eftir að hann kom inn og fékk kallinn "Nonninn minn... nammi nammi namm" fyrir frá Binnamönnum sem voru gríðarlega ánægðir með hann eftir leik. Ég held að Bjöggi hafi endað með einhverja tæpa 20 bolta en hann gat varla gert betur þar sem vörnin var það góð að hann fékk varla bolta til að verja.
Hlynur fékk að byrja leikinn í Digró þar sem hann átti sitt því að við unnum ekki í Bragganum en eftir um 15 min dvöl milli stanga, þá hafði ekki ein einasta tuðra stoppað á honum þrátt fyrir nokkuð drengurinn taki nú sitt pláss í rammanum (enda ekki alveg sama formi og hann var síðast þegar hann spilaði í Digró).
Staðreyndin er einfaldlega sú að HK liðið spilaði þann bolta sem það getur í kvöld og það skilaði okkur öruggum sigri. Núna er einn dagur í hvíld og svo stefnum við af fullum krafti í Braggann og þar ætlum við okkur ekkert annað en sigur og sæti í 4 liða úrslitum!
Sjáumst í Bragganum á laugardag... Áfram HK !
:
:: Gringo 10:51 ::
...
Mime getur verið fyndið ... who knew?! Mime!
:: Bastarðurinn 10:39 ::
...
:: þriðjudagur, apríl 05, 2005 ::
Það þarf víst oddaleik
Það er varla hægt að kalla þetta annað en þjófnað með side order af rugli. HK byrjaði vel en svo allt í einu misstu strákarnir tempóið sem varð til þess að Valur var allt í einu með gott forskot. Okkar menn náðu nú að taka sig saman í andlitinu og með góðri vörn og Bjöggi heitur í öllum skotum sem voru nær en 7 metrar en hann átti samt sem áður nokkuð erfitt með að loka á langskotin en vörnin var ekki að taka marga bolta heldur, þrátt fyrir það náðum við að koma okkur aftur inn í leikinn. Það getur nú varla talist auðvelt þar sem Valsarar fengu að spila þangað til að þeim var gefið víti eða HK ingur fékk 2 min brottrekstur. Sóknarleikurinn okkar var frekar spes í þessum leik en það sem kom mér einna mest á óvart var það að Tommi var allt í einu að spila hörku bolta, e-ð sem hefur ekki sést nokkuð lengi og hann raðaði inn boltum á tímabili.
Það verður varla sagt annað en að Valur hafi fengið ágæta heimadómgæslu í kvöld og þá sérstaklega á þessum loka sek þar sem við hefðum getað jafnað. Valsarar missa boltann útaf og leikmaður HK ætlar að koma boltanum í leik en þjálfari Vals fer fyrir og ég sá ekki betur en að hann hafi haldið leikmanni HK, hvað er það ? Þetta er að vísu bara ástandið á boltanum hér heima, dómgæslan hér er slök og það þarf bara að taka því. Strákarnir náðu svo að gera Hlyn að hetju með gríðarlega lélegum skotum undir lokin. Það sem þarf að gerast fyrir næsta leik er að menn eins og Valdi Þórs og Gústi verða að fara að spila bolta, það er alveg sorglegt að horfa upp á þetta aftur og aftur.
Þetta var útileikur og Valsmenn alveg stálheppnir að sleppa með sigur! Strákarnir voru að berjast eins og ljón í seinni hálfleik sem hefur ekki sést í slatta tíma hjá okkur og ég er bara duglega sáttur með það. Auðvitað er ég ekki sáttur með tap en það er bara allt annað að tapa og hafa gefið sig í leikinn, þetta var bara annað lið sem var að spila þarna en hefur spilað unanfarna leiki fyrir HK... það er ekkert flóknara en það !
Eitt er víst, næsti leikur er í Digró og það verður alvöru leikur. Strákarnir eiga eftir að svara fyrir sig og það læðist að mér léttur grunur að við séum að fara aftur í Braggann á laugardaginn. Binnamenn munu fjölmenna á fimmtudaginn og það verður allt vitlaust í Digró, bæði á pöllum og á vellinum ! Það sást alveg á mínum mönnum í kvöld að þeim langaði að vinna og ég veit að þeir munu svara fyrir sig... Maður gat labbað út úr bragganum í kvöld stoltur HKingur þrátt fyrir tap !
Allir í Digró á fimmtudaginn og sjáum til þess að Valsmenn séu að fara spila sinn síðasta leik í Bragganum á laugardaginn !
:
:: Gringo 21:10 ::
...
Leiðinlegt
Ég og Binni vorum nú einu sinni að spá í að því að keppa í rally hér heima... leiðinlegt að lenda í þessu !
:
:: Gringo 18:16 ::
...
Steini er heitur í dag !
Það er greinilega létt í honum Steinari (A.K.A. Verzló Buffið) í dag... hann er búinn að vera að hlaða á mig alveg óhugnarlega súrum 5aurum í dag, spurning hvort að hann hafi fundið kassa af gömlum ABC blöðum ?
Hérna eru nokkur dæmi :
hvar eru allir alltaf í feluleik? í FINNlandi
í hvaða landi bíða beljurnar? í KÚveit
í hvaða landi eru allir bestu ungu markverðirnir? í Ungverjalandi!!!!
í hvaða landi gengur enginn í úlpum? Í FRAKKLANDI!!!!!
hvar eru menn alltaf að setja bíla í gang? í SVISS !!!!
Steinar fær mikið hrós fyrir þetta... Erfitt að gera betur
:
:: Gringo 16:50 ::
...
Kveðja frá Finnlandi
Jæja ... nú komum við heim eftir viku. Ætlum fljúga héðan til köben á föstudaginn og vera þar fram á þriðjudag. Litli kútur er búinn að stækka helling og er kominn með lubba á hausinn. En að öðru. Ég rakst á 3 viddjó hérna á flakki mínu sem ég ætla að sýna ykkur. 1: Ég væri til í svona kvikindi ... 2: Leiðinlegt að lenda í svona í miðju Ralli ... 3: Ouch !!!
:: Björn Ágúst 09:28 ::
...
:: mánudagur, apríl 04, 2005 ::
8 liða úrslit Valur-HK 5.4.2005 kl. 19:15
Það er komið að því, úrslitakeppnin að byrja og hefst okkar barátta við Valsara á morgun kl. 19:15 í litla kofanum við rætur Öskjuhlíðar sem sumir vilja kalla Hlíðarenda en sjálfur held ég mig við bragga nafnið. Við höfum spilað 2 leiki við Val í ár og endaði leikurinn í Digró með sigri okkar manna en sá seinni, sem fór fram í bragganum endaði með naumu tapi. Ástæðan fyrir því tapi var einfaldlega sú að menn voru ekki með hausinn í lagi á þeim tíma. Þetta er eins og nýtt tímabil sem er að hefjast núna, allt sem menn gerðu á meðan deildin var í gangi er fortíð og skiptir ekki máli núna. Hvort sem það er slakur árangur, góður árangur eða jafnvel bara engin árangur, þá er það búið núna... Nýtt blað komið á borðið og núna getur hver og einn skrifað sína eigin sögu og gert það almennilega.
Eitt er nú samt alveg víst og það er að strákarnir eru ekkert að fara að gera þetta án okkar. Þeir eru háðir topp stuðningi og við verðum að gefa þeim það sem til þarf til að sigra í bragganum. Binnamenn ætla auðvitað að mæta á leikinn en þar sem Valsarar eru ekki oft orðaðir við fjörið, gleði og stemmingu, þá má aðeins klappa með annari og stuðningsmenn vinsamlegast beðnir að hrópa ekki of hátt sökum fjölda eldri borgara sem verða á leiknum að hvetja Val áfram.
Sjáumst vonandi sem flest í bragganum á morgun kl. 19:15 !
 "litli landsliðsmaðurinn" í sigurleik okkar við val í Digró, ég finn það á mér að hann verður heitur í bragganum á morgun
:: Gringo 18:20 ::
...
HA HA HA HA !!
Þetta er líklegast eitt mesta classic viddjó EVER ! Endilega hafa hljóðið á... ég er örugglega búinn að horfa á þetta svona 25 sinnum í dag ! Gaurinn er svo alvarlega að reyna að gera sitt besta... HA HA HA HA HA !!
Smellið hér til að skoða
:
:: Gringo 16:59 ::
...
|
|