Það vill nú gerast að þegar maður er búsettur tæplega 400 km frá borg óttans að maður missi af einhverju. Núna fyrir stuttu voru t.d. háværustu og fjölmennustu mótmælin hingað til, ég vissi af þeim þar sem m.a. ætluðu mótorhjólafólk að fjölmenna á hjólum sem var frábært. Ég horfði á fréttir og það eina sem ég sá var e-ð af fólki og svo nokkrir hippar að slást aðeins við lögreglumenn og svo einhver að flagga Bónus fána á Alþingishúsinu... voru þetta virkilega mótmælin? Í dag er maður svo að vafra um netið til að sjá hvað maður getur séð af þessu og þá rekst maður á þetta:
Ég verð að játa það að ég sá ekki þessar myndir í fréttum, flott samstaða þarna hjá hjólafólki! En þá er það spurningin... Af hverju sá ég ekki þetta í fréttum? Var ég hugsanlega það óheppinn að ég sá bara það neikvæða eða er umfjöllun fjölmiðla hreinlega bara hlutdræg og óréttlát?
Ég skora allavega á alla að mæta í næstu mótmæli en jafnframt sleppa því að reyna að vera einhver Batman... fjölmenni og læti, ekki drama og rugl.
Ég er alveg nokkuð viss um það að þetta sé persónulegt met í því að vera latur í að blogga enda hef ég fengið að heyra það í gegnum MSN núna undanfarið. Ég er á því að þetta sé allt eftirfarandu hlutum að kenna... efnahagsástandinu, fjarnámi og fésbók! Þetta skítuga ástand er að gefa manni blæðandi magasár og svo er maður að reyna að vinna upp gamlar skuldir í fjarnámi á meðan allt þetta er í gangi... shiii.
Er það bara ég eða hleypur Steven Seagal eins og rjómi? Ég er ekki frá því að hann hafi tapað alveg svona 46 rokkstigum á þessu myndbandi... dang, he runs like a bitch!
Annars stefnir allt í fjör næstu helgar hér á AYE, Murgusinn að koma þessa helgina með frolluna sína og skott hlaðið af sterku áfengi og svo er það Mrs. Smith næstu helgi með fótanuddtækið sitt og flösku af brandy.... vonum ekki samt.
Endilega hættið samt þessu kreppuvæli gott fólk og notið frekar orku ykkar í að vera góð við vini ykkar, stunda kynlíf eða gera e-ð annað skemmtilegt. Þetta væl í öllum er að gera mann alveg gjörsamlega snar, sé ekki hvað fólk vonast til að græða á sjálfsvorkun og væli. Skellið ykkur á torrent eða Youtube og náið þar í þætti sem heita Wipeout, það er EKKERT betra í að fá mann til að brosa heldur en fólk að fokka sér upp duglega, ef þið getið horft á þátt 5 í þessari seríu t.d. án þess að brosa þá er kominn tími á að kveðja held ég... vá hvað þetta er gott sjónvarpsefni!
Hér er eitt besta move sem sést hefur í þessari seríu:
Þetta er s.s. maður sem heitir Jacob Mann og er í dag legend eftir frammistöðu sína í Wipeout. Hann varð í raun frægur fyrir það að notast við orðin "crunch time" áður en hann tók þátt og rústaði svo á sér stellinu... ég ætla bara að láta ykkur um að sjá þetta með eigin augum:
Við erum að tala um að kauði byrjar á því að fá gott högg beint í hreðjarnar svo fer hann í splitt sem hann klárlega ætlar sér ekki að gera, skallar á sér hnéið og kremur hreðjarnar á sér...AFTUR! Ég kúgaðist úr hlátri þegar ég sá þetta fyrst... hahaha!! Kauði endar svo þessa glæsilegu þáttöku sína í þessum leik með því að leggjast flatur og hætta svo vegna ógleði... skiljanlega, hverjum væri ekki óglatt eftir svona meðferð á pung?
Haddi félagi skutlaði á mig frétt af visir.is áðan og ég hélt að ég myndi hreinlega kafna úr hlátri. Fyrir ykkur sem hafið lame smekk á bíómyndum þá hafið þið líklegast ekki séð meistaraverkið Superbad, ykkar missir alveg klárlega. Hér er smá upprifjun fyrir ykkur sem hafið ekki hugmynd um það hver McLovin er:
Alright... núna ættuð þið að vera með það um hvern ég er að tala, tékkið þá endilega á þessari frétt eða bara þessari mynd hér:
Þar sem fréttir snúast bara um e-ð væl og þunglyndi þá hef ég ákveðið að gefa skít í þær alfarið allavega þangað til á mánudaginn. Gunni var að fara frá mér og það var yndislegt að fá síGunnann sinn í smá heimsókn og svo eru Pétur og Grjóni að koma í kvöld og verða hjá mér um helgina.... GAME ON!
Ég er að spá í að vera jafn hress og þessi um helgina:
Hvað er betra í svona ástandi eins og ríkir nú á landinu en að vera með alstjórnandi geðsjúkling sem seðlabankastjóra sem flestir hafa ekki undan að kyssa rassgatið á og kokgleypa við öllu sem vellur uppúr honum, fjármálaráðherra sem er fyllibytta og dýralæknir og svo er forsætisráðherra okkar svona líka gáfulegt eintak eins og kemur vel fram í þessari frétt:
Hvað getur maður annað en haldið fram að þetta land okkar er að fara beint til helvítis og það með hraðlest. Held að þeir ættu bara að sleppa þessum daglegu fréttamannafundum og taka uppá því að vera bara með kareókí í staðin, Geir gæti byrjað á því að taka lagið "Highway to hell" með AC/DC.
Það er erfitt að fá sig til að blogga um nokkuð annað en þetta rugl sem er í gangi, ég skal samt reyna að koma með e-ð aðeins hressara. Fréttaljósmynd dagsins má sjá hér fyrir neðan eða með því að smella hér, þetta er avleg frábær mynd og sá sem skrifaði þetta á skilið Thule.
Hvað ætlaru að gera í þessum ginger þarna til hægri? DANG!