Það er ekki að spurja að því, um leið og helgin klárast þá byrjar vælið í fólki sem les 5aurinn "er enn föstudagur hjá þér vinur?" "hvað er föstudagur á aurnum lengi?". Maður verður víst að svara þessu væli með bloggi, annars kemur meira væl og áður en maður veit af, þá er þessi síða að verða eins og spjallborðið á krreykjavik.is... hahahaha.. fuckers ! Ég sem HKingur get nú ekki gert mikið grín af KR eða... jú víst! Liðið sem er að kafna úr hroka og kallar sig "hið eina sanna stórveldi" og er með "besta þjálfara sem Ísland hefur alið af sér" að eigin sögn er að drullaupp á bak... once again.
Önnur lið fagna því að sjá þetta pakk veltast upp úr eigin tárum, talandi um hvern á að kaupa, hvern á að reka og ég veit ekki hvað og hvað. Það þurfti ekki nema 4 leiki, niiiice. Teitur verður líklegast ekkert of hissa þegar hann verður rekinn sem ég tel bara vera spurning um tímasetningu, hann er nú alveg helvíti vanur því að þurfa að taka pokann sinn enda frétti ég að hann sé methafi í því í norska boltanum... lol.
Annars var þetta ljúf helgi sem innihélt slatta af fríum bjór, ljósmyndaferð, fótboltaleik og lífshagnað. Fórum alveg um 20 strákar saman á einhverja Camel Natural kynningu á laugardaginn á Broadway sem var í raun álíka fyndið og atriði úr Simpsons, án gríns! Við sátum þarna strákarnir í fríum bjór og gleði að hlusta á hversu mikilvæg sala á tóbaki er fyrir smásölumarkaðinn á Íslandi og svo komu léttklæddar dömur að gefa sígarettur í allar áttir í takt við Tina Turner Show og Jógvan... er hægt að toppa það?
Við fórum svo af þessu kvöldi í afmæli hjá Snævari og Pétri og þaðan var svo farið á Barinn þar sem PZ menn voru með brilliant kvöld. Margeir var eldheitur í "búrinu" og gerði góða hluti.
Hérna er annars smá safn af fyndnum "death scenes" í bíómyndum, nokkur þarna sem eru ekkert nema gull !