Frétt af HK.is:
"Stuðningshópur innan HK hefur hafið fjáröflun til styrktar Þórði Inga Guðmundssyni í þeirri endurhæfingu og baráttu sem framundan er í lífi hans.
Þórður Ingi lenti í hörmulegu slysi í sundlaug Kópavogs þann 26. apríl sl. og hefur ekki enn komist til meðvitundar.
Þórður Ingi er sextán ára Kópavogsbúi sem hefur æft knattspyrnu með HK frá unga aldri. Barátta hans og eldmóður er okkur hvatning til að styðja hann í þeirri þrekraun að ná heilsu á ný.
Þessari fjáröflun er ýtt úr vör með 300.000 kr. framlagi frá Knattspyrnudeild HK.
Söfnunin fer fram á eftirfarandi hátt:
Gíróseðlar verða afhentir við innganginn á leik HK – Breiðabliks sunnudaginn 23. september og þar verða einnig söfnunarbaukar fyrir frjáls framlög.
Börn sextán ára og yngri og aðrir sem eru með boðsmiða á leikinn geta greitt andvirði aðgangseyris í baukana.
* Félagar og vinir Þórðar Inga munu bjóða HK vörur til sölu á leiknum og mun öll innkoma af þeirri sölu renna til hans.
Við hvetjum Kópavogsbúa til að leggja söfnuninni lið.
Söfnunarreikningur Þórðar Inga er:
1135-05-750911, kt: 290491-2749 í SPK.
Styðjum Þórð Inga: "You'll never walk alone""
Mér skilst að mál standa þannig núna að Þórður er laus úr öndunarvél en er í dái. Fjölsk. hans vill fá einhvern sérfræðing frá USA til að koma og taka Þórð í einhverja sérstaka meðferð til þess að reyna að vekja hann. Það er vitað að hann verður aldrei eins og hann var enda slapp heilinn á honum ekki heill úr þessum hremmingum. Samkvæmt mínum heimildum þá borga tryggingafélög ekki fyrir svona "óhefbundnar" meðferðir þannig að fjölsk. hans þarf að borga þetta úr eigin vasa.
Þetta er með sorglegri sögum sem ég hef heyrt en eitt er víst, Kópavogsbúar standa saman og við þurfum að sýna það og sanna núna. Ég persónulega er búinn að millifæra og ég skora á aðra að gera slíkt hið sama!