
Langar að byrja á því að þakka kærlega fyrir allar fallegu kveðjurnar og fáu fallegu gjafirnar sem ég fékk í gær. Síminn minn bræddi næstum úr sér, Myspace síðan mín crashaði og biðröðin fyrir utan húsið mitt var nett vandræðaleg, það er ekki leiðinlegt að eiga svona fallega og skemmtileg vini. Dagurinn fór nú að mestu í það að vinna bara svona eins og vanalega en eftir vinnu hófst yndislegt kvöld. Það byrjaði á smá matarboði hjá gamla settinu og svo var stefnan sett upp á Players til að slást aðeins við nokkra kalda. Þangað mætti alveg sérstaklega fríður og málefnanlegur hópur. Umræðuefni kvöldsins voru meðal annars afmælisgjöfin frá Bjössa (sjá mynd#1), HK leikurinn við Fram í kvöld kl. 20, nýjasta módelverkefni Úlla (sjá mynd#2) og önnur mál sem eiga ekki heima á internetinu.
Eftir nokkra kalda kíkti Bjössi við með pakka handa mér, alltaf er jafn gaman að fá að opna pakka! Ég sprengdi pappírinn og þá blasti við mér þetta líka svona rosalega... ROSALEGA meistaraverk. "wife-beater-netabolur"!! Eftir að fagnaðarlætin kláruðust hófst sú áskorun að máta helvítið og ég gat ekki annað en staðið undir því og skutlaði mér í hann. Spurning um að vera í honum í 2 vikur út á Tenerife og koma heim eins og blettatígur?

þetta kveikti í nokkrum Pólverjum á Player's
Annað heitasta umræðuefni kvöldsins var það að á einhverri auglýsingu sem Sálin Hans Jóns míns er með er víst hægt að rekast á Úlla í þessum líka rosalega gírnum. Úlli er yndislegur maður og einn af mínum allra bestu og elstu vinum, hann á það skuldlaust að hafa skrifað bestu afmæliskveðju sem ég hef fengið en hana má finna á blogginu hans (linkur í safninu hér til hægri).
Úlli hefur alltaf verið með nokkuð sérstæðan smekk á hlutum og á það til að vilja vera ekki eins og allir aðrir í flest öllu. Varðandi tónlist þá hefur hann oft verið með stór orð og drullað yfir meistaraverk eins og Metallica en svo hefur maður böstað hann við að taka lúft gítar og undirsöng við Metallica lög sem og önnur. Í gær var mikið rætt um það hvort að Úlli hafi skutlað sér á Sálarball án þess að við vissum það og verið böstaður. Hann hélt því fram að þetta væri rógburður og kjaftæði en ég ætla bara að láta ykkur dæma um það sjálf...

Það sést vel að þetta er gömul og ílla tekin mynd en þarna má samt sjá Úlla vera gjörsamlega að missa sig, ég spái því að þarna sé hann að taka dansinn við lagið Sódóma en ástæðan fyrir því að hann er svona asnalegur á þessari mynd er það að hann er einfaldlega að safna súrefni til þess að geta tekið "sódómaaaaaaa...aaaaa" hærri en nokkur annar þarna á gólfinu. Með honum á þessari mynd (neðst til hægri) má sjá Friðrik eða Frikka Flipp félaga Úlla síðan hann var í Sagnfræði í Háskóla Íslands. Það er því nokkuð ljóst að Úlli átti það til að lauma sér á Sálarböll með Frikka Flipp án þess að við vissum af því. Þetta er ekkert til að skammast sín yfir Úlli minn.