Thursday, May 29. 2008
Skjálfti í beinni
Posted by Biggi Gringo
at
18:44
Viðbrögð hans eru vægast sagt fyndin:
Ég varð ekkert var við þetta hér fyrir norðan, var bara í vinnuni og allt í einu opnast einhverjir 5-6 MSN gluggar þar sem fólk var að tjá mér að höfuðborgin væri að dansa. Núna er það bara stóra spurningin... kemur annar og jafnvel stærri?
** update **
Var að sjá fréttamydnir á Stöð 2 frá ÁTVR í Hveragerði... rosalegt! Allt gjörsamlega á floti í áfengi, alveg magnað að sjá áfengi upp að ökla nánast út um allt gólf og svo bara gelrbrot, dósir og drasl í risa hrúgu.
Hér er svo viðtal við konu í Hveragerði, í enda viðtalsins kemur svo smá skjálfti sem kætir hana ekkert rosalega.
Tuesday, May 27. 2008
She's baaaaack!
Posted by Biggi Gringo
at
12:16
"This video or group may contain content that is inappropriate for some users, as flagged by YouTube's user community."
HAHAHAHAHA !!
Hér er svo meistaraverkið, fréttir herma að Steven Spielberg sé maðurinn bakvið þessar ótrúlegu brellur... en hvað veit ég?
Youtube er búið að loka á það að maður geti sett þetta inn á blogg en þið getið skoðað það með því að smella hér.
Þetta verður svo að fá að fljóta með líka...
Smellið hér til að sjá... Sex crazy cop
Kallinn hennar fær hrós fyrir það að reyna að fela sig í þessum myndböndum en það er spurning um að fjárfesta í öðru setti af fake mottu og derhúfu, þetta sett er búið að koma full oft fram.. hahaha!
Ætli hún sé að slá í gegn í Bretlandi? Ég mæli allavega með því að þið kíkið á safnið hennar á Youtube:
http://youtube.com/user/IcySpicyLeoncie
Lög og regla?
Posted by Biggi Gringo
at
10:57
"Lögreglan ræðst á grunaðan fyrir að vera með það sem hún kallar "kjaft" og tekur hann hálstaki. Eru þetta vinnubrögð sem lögreglan fer eftir? Sé ekki á þeim grunaða að hann sé að ógna neinum. Sá grunaði var grunaður um þjófnað sem ekki var framinn. Mörg vitni voru að atburðinum og ekkert fannst á þeim grunaða."
Þetta verður að teljast afar sérstök vinnubrögð, þarna kemur löggan í raun fram eins og ölvaður og lyfjaður óviti kl. 06 í miðbænum frekar en maður á vakt sem lögreglumaður... afar spes. Held að ónefndur félagi minn hafi orðað þetta best:
"þetta er eins og lóan, þú veist að það er komið sumar þegar þú ert barinn af afleysingalöggu"
hahahaha !
Tuesday, May 20. 2008
Hver er Ásdís Rán?
Posted by Biggi Gringo
at
17:36
Ásdís Rán er nokkuð nálægt því að flokkast undir það sem Englendingar kalla WAG eða kona fótboltamans. Hún er að vísu ekki alveg bara WAG þar sem þannig konur eru helst frægar fyrir það að lifa algjörlega á maka sínum en Ásdís nær því nú ekki sem betur fer.
"Hvernig frægðin auðveldar manni lífið..."
Þetta er önnur fyrirsögnin sem fylgir þessu viðtali og hún fékk mig nú til þess að hugsa, hvað hefur Ásdís Rán gert til þess að maður gæti flokkað hana sem fræga? Nafnið hennar er jú þekt en það er nú líka málið hjá fólki eins og Jóa á Hjólinu, Geir Ólafs, Leoncie og Fjölnir Þorgeirs. Hún er að sjá um Model.is sem er umboðsskrifstofa en svo að ég vitni nú í hana sjálfa þá er þetta "endalaus vinna og lítið upp úr henni að hafa" og "borgar eins og léleg kennaralaun" og svo er hún að sjá um Hawaiian Tropic keppnina. Sú keppni, með fullri virðingu til þeirra sem tekið hafa þátt er ekki ofarlega á mínum lista en hvað veit ég? Eins og Ásdís orðar það nú best sjálf þá: "Ég myndi eiginlega kalla mig svona umboðsmann, eins og Einar Bárðar nema í módelbransanum." Ég væri til í að sjá hana í sama formi og Einar Borða, hringlaga. Ég hef hér með lokið því að tæma úr mínum viskubrunni varðandi það fyrir hvað Ásdís sé nú fræg, ef þú veist meira en ég kæri lesandi þá endilga tjáðu þig.
Ég nenni nú ekki að vera að afrita allt viðtalið hér þannig að ég ætla að bara að hoppa beint í þær setningar sem fengu mig til að brosa. Ég ætla því að notast hér við nokkur "quote" úr þessu viðtali til þess að sjá hvort að það fái ykkur til að brosa líka, en endilega lesið viðtalið!
"Ég var auðvitað svaka gella og ég man að stelpurnar sögðu mér seinna að þær hefðu pælt mikið hvað ég var eiginlega að gera þarna."
Ásdís um það þegar hún var að læra Viðskiptafræði
"Í dag er sviðsljósið mitt líf. Ég þekki ekkert annað. Í raun er ég búin að vera þekkt síðan ég var 17-18 ára – og ég er að tala um mjög."
Mjög? ha ?
"Alltaf í blöðunum, hef eiginlega haldið því nokkuð jöfnu nema þegar ég er ólétt, þá tek ég smá frí."
Að troða sér í blöðin... er það þá flokkað sem vinna?
"Frægðin er mér eðlileg og mér finnst skrýtið að hafa ekkert vald, geta ekki hringt í forstjóra Stöðvar 2 og sagt eitthvað, eða geta ekki hringt í einhvern þekktan af því að mig vantar eitthvað. Eða ef ég fer á klúbba og þarf að standa í röð."
já... ok...
Hvað græðir maður á því að vera frægur á Íslandi?
"Þú græðir í rauninni öll forréttindi. Ég hef rosaleg forréttindi á Íslandi. Get bara gert allt sem ég vil. Ég hringi í einhvern og fæ mínu framgengt, það er sama á hvaða sviði það er. Ég fæ VIP allsstaðar, afslætti, stjórna því sem ég þarf að stjórna."
"Þetta nýtist mér rosa vel í mínum bisness, því ég hef ekki efni á að auglýsa, held fyrirtækinu í staðinn gangandi á sjálfri mér og þeirri þekkingu sem ég hef; útvarpsstjórar, sjónvarpsstjórar, fólk tekur viðtal við mig eða lætur myndir í blöðin."
"Eins og á nýárskvöld núna, þá skipulagði ég partýið fyrir Eli og Tarantino, á B5 og það var í raun bara eitt símtal fyrir mig."
Vá... Ásgeir Kolbeins... eat your heart out!
"Ég er t.d. búin að eyða viku með Jerry Bruckheimer og öllum þekktustu Hollywood framleiðendunum, í Vegas"
"Ég þekki flest alla Hollywood framleiðendurna í dag"
Eins og ég sagði áðan, lesið þetta viðtal... þetta er gull! Ég ætla að enda þetta á frétt sem er á visir.is, er ekki nokkuð líklegt að hún sendi inn þessa frétt sjálf, ætli hún ahfi gengið það langt að skrifa hana líka? hehe
http://visir.is/article/20080520/LIFID01/623154628/-1/LIFID
Svo er auðvitað hægt að kíkja á bloggið hennar líka með því að smella hér.
Fluglimur ?
Posted by Biggi Gringo
at
14:40
Auðvitað þarf að koma þarna einhver lífvörður eða bara fífl eins og ég kalla hann og jarðar liminn... lame gaur sem á ekkert gott skilið!

gerir ekkert í þessum lim, punktur!
Hvað væri betra en að senda einn svona lim fljúgandi inn á ráðstefnu eða ársþing feminista t.d. ?? Ég get svo svarið það, ég hef ekki notað þessa setningu áður svo ég muni (það er samt alls ekki 100%) en ætla að láta vaða... mig langar í þennan lim!
(Page 1 of 2, totaling 10 entries)
» next page
