www.5aur.net

Entries from July 2008

Random Image

032 32

Archives

January 2009
December 2008
November 2008
October 2008
September 2008
Recent...
Older...

Hlekkir

Gí$li
Don Gunnar
Krissi
Úlli
Fannar Fnasi og Katrín
Baldvin
Atli Y
Steini "Verzló"
Pétur Björn
Ómar Diego
Valli
oskarsdottir.com
Árdýz
Egill "Gillz"
Guðfinnur
Búri
Birna
Karen og Bjöggi


Fullur.is
Belladonnur
Hjallarnir.is
Saumaklúbburinn
The Ladies
Skurrarnir
Skvettuskvísur
Tígrarnir
Suberstar

Syndicate This Blog

ATOM/XML ATOM 1.0 feed

Blog Administration

Open login screen

Friday, July 25. 2008

Auðvitað langar ekki neinum á Þjóðhátíð.. right

Posted by Biggi Gringo at 13:09
Maður væri nú alveg til í að vera að fara á Þjóðhátíð, sérstaklega núna þegar það er 20° hiti og sól úti, þá bullar alveg í manni að skella sér bara. Það verður víst að teljast afar ólíklegt að maður sé að fara í ár en ég efast ekki um að maður finnur sér e-ð skemmtilegt að gera þessa annars ágætu helgi. Rétt áðan var ég að fá sent lag sem mágur hans Gjul samdi og tók upp fyrir þessa þjóðhátíð. Hjálmar heitir snáði og flestir kannast við hann úr Bandinu Hans Bubba en hann var þar í topp 4 ef ég man rétt. Þessi drengur er helvíti skemmtilegur eins og fólk sem mætti á lokahóf handboltans hjá HK síðast tók vel eftir, stóð sig eins og hetja þar kúturinn.

Hér er Þjóðhátíðarlagið sem Hjálmar og hljómsveitin Allra Veðra Von gerður fyrir Þjóðhátíð 2008, Á Hverju Ári.


Hjálmar og Allra Veðra Von - Á Hverju Ári



Comments (4) | Trackbacks (0)

Wednesday, July 23. 2008

I'm BACK!

Posted by Biggi Gringo at 16:29
Eftir rúmlega vikufrí er ég mættur aftur, ferskur, hress og óskandi þess að ég væri enn í fríi.. hehe. Þessir 9 dagar voru alveg frábærir en það sem ég náði að afreka á þeim var bara ágætlega merkilegt. Ég get ekki sagt að ég nenni að vera að gera einhverja ritgerð um það sem ég gerði í þessu fríi mínu enda veit ég ekki hversu spennandi lestur það væri... hér eru svona gróf yfirferð...

- rúmlega 2000 km akstur
- HK leikir
- bjór
- hnoðbolti (loksins!)
- leti og afslöppun
- viðhald heima hjá Davíð... stútaði m.a. geitungabúi eins og meistari.
- Veiðivötn
- bjór, veiði, svefn, hrotur, póker, gúrka, gleði, ljósmyndun og ofát
- akstur heim, þunnur og þreyttur en brosandi

Þetta er svona mjög gróflega farið yfir þessa 9 daga hjá mér. Veiðivötn stóðu svo sannarlega fyrir sínu varðandi allt nema þá líklegast afla. Töluverður næturkuldi gerði mönnum erfitt fyrir í veiði en allt annað var lítið minna en yndislegt. Ég náði því merka afreki að dæla dýrustu diesel olíu sem ég hef nokkurntímann verslað á jeppann hjá gamla. Rét áður en þú kemur að Veiðivötnum er sjoppa sem heitir Hrauneyjar ef ég man rétt, þar kostaði olían litlar 206kr... ekki nema 16 krónum meira en á Olís í bænum... WTF is that?!?!? Ágætis hrotukeppni var í gangi í húsinu okkar í Veiðivötnum en því var reddað með hótunum um líkamsárásir í svefni og annað slíkt... mæli með þeirri aðferð.

Annars er það spurning með Tónaurinn, núna eru margir í fríi og því langaði mig að skjóta spurningu á ykkur... halda áfram núna á föstudag eða setja Tónaurinn í frí fram yfir Versló?


Hér er svo mynd sem Franz "krúttið" tók af mér og Steina að veiða í Snjóölduvatni... vá hvað ég væri til í að vera þarna akkúrat núna!


Comments (4) | Trackbacks (0)

Friday, July 11. 2008

Tónaurinn 3. umferð - ÚRSLIT

Posted by Biggi Gringo at 17:02
Jæja, þá er klukkan orðin 17:00 og því kominn tími á að henda hér upp stigafjölda dagsins. Það var alveg ljóst að þessi Tónaur var að vefjast fyrir mönnum og einnig spila sumarfrí inn í þetta sinn og því mikilvægt fyrir menn að gefast ekki upp þótt að þeir séu með fá stig, þetta er fljótt að snúast allt saman við! Það voru aðeins 2 sem náðu að svara öllu rétt í þetta sinn og það voru Franz og Úlli en Franz náði að vera um 2 klst. á undan Úlla og fær því 12 stig! Jeiiii Franz! Helvítis krúttið er komin í nokkuð góða stöðu en það þarf ekki annað en að ná ekki að skila inn svari í eitt skipti og allt er komið í rugl, þvílík spenna!


Rétt svör eru...
1. Smash Mouth - Why Can't We Be Friends
2. Tiefschwarz - Warning Siren
3. Portishead - Numb
4. Ace Of Bace - The Sign
5. Franz Ferdinand - Do You Want To


Stigin fyrir 3. umferð
Franz "krúttið" 12 stig
Úlli "snitch" 10 stig
Valli Druzin 8 stig
Dolli 7 stig
Robbi "Nippuköttari" 4 stig


Heildarstig eftir 3 umferðir:

Franz "krúttið" 31 stig
Úlli "snitch" 24 stig
Valli Druzin 24 stig
Óli "skankmaster Flex" 20 stig
Krissi "GingerKitty" 20 stig
Dolli 19 stig
Danni 12 stig
Gunnar "Gébé" 10 stig
Grettir 10 stig
Stjáni Bró 9 stig
Arnþór "skræl" 7 stig
Þorgeir 5 stig
Maggi "Dilf" 5 stig
Robbi "Nippuköttari" 4 stig


Eins og ég sagði, Tónaurinn verður í fríi næsta föstudag þar sem ég verð fullur upp á hálendi í góðum hóp fallegra manna, núna er bara að nota tímann vel og sigra Krúttið kæru Tónaurar... good luck!
Comment (1) | Trackbacks (0)

Tónaurinn 3. umferð

Posted by Biggi Gringo at 11:00
Það er ekkert verið að tefja í dag, Tónaurinn er mættur! Að vera með svona mix af lögum virðist hafa verið challenge síðast og því ákvað ég að taka rí-mix á það þema. Ég er aftur á móti með sorgarfréttir og þær eru að Tónaurinn þarf að taka sér smá frí næsta föstudag. Það er nú bara þannig að þá verð ég með bjór í annari og fluguveiðistöng í hinni að hala inn tonnum í Veiðivötnum... god hvað það verður gaman! Ég skal samt lofa því að Tónaurinn verður mættur strax vikuna eftir það og ekkert rugl.


Reglurnar eru afar einfaldar (en lesið þær nú samt):

- Tónaurinn kemur á netið á föstudögum kl. 11:00
- Svar þarf að berast fyrir kl. 17:00 samdægurs
- Þú sendir inn svar í gegnum tonaurinn@5aur.net
- 1 stig fyrir flytjanda
- 1 stig fyrir nafn á lagi
- Ef þú sendir fleirri en 1 tölvupóst þá gildir sá nýjasti
- sá sem er fyrstur til að ná öllu 10 stigum í hverri keppni fær 2 "bónus" stig
og já... ekki gleyma að merkja tölvupóst með nafni og endilega skellið inn comment þegar þið eruð búin að senda inn svar á mail


GAME ON !



Theme: rí-Mix
Sækja


Comments (0) | Trackbacks (0)

Friday, July 4. 2008

Tónaurinn 2. umferð - ÚRSLIT!

Posted by Biggi Gringo at 17:12
Það er ekkert lítið sem maður hefur verið skammaður í dag. Í Fyrsta lagi fékk ég mokað yfir mig bulli útaf því að ég var um 30 min seinn að setja þetta á netið. Ástæður fyrir þessari töf eru hugsanlega... sumarbústaður, 3 kg. af grillkjöti, bjór, romm, pottur... Það er sport að vera þunnur á föstudögum! Þetta gerist ekki aftur, annars fá allir frítt högg á Óma.

Varðandi Tónaurinn þá voru ekki jafn margir sem þorðu að skila inn í þetta skiptið, það voru ófáir sem gáfust hreinlega upp en ég get lítið gert í því ef þú ert heimskur, alfarið þitt eigið vandamál. Í þetta sinn hlóð ég saman alveg rosalegri blöndu sem innihélt, rokk, 80's, jólalag, hip hop og dans... erfitt að toppa þessa blöndu.

Sérstök heiðursverðlaun í þetta sinn fær Gunni "GéBé" fyrir þessa glæsilegu ágiskun sína en það var nokkuð ljóst að hann var ekki alveg sáttur við lagavalið í þetta skiptið:

1: Cannibal Corpse: Fucked with a knife
2: Dimmuborgir: Burn in hell
3: Dying Fetus: International manslaughter
4: Slayer: Reign in blood
5: Anal cunt: You look divorced

Sá sem laumaði sér fyrstur með allt rétt í þetta sinn var meistari Danni, pósturinn frá Úlla er að vísu ekki búinn að skila sér þannig að stigin hans gætu dottið inn í kvöld. Til hamingju Danni, þú rústaðir Óla og Krissa en þeir eru samt efstir með 20 stig eftir 2 umferðir... Hér er réttur listi fyrir Tónaur dagsins:

Arctic Monkeys - A view from the afternoon
Gap Band - You Dropped A Bomb On Me
David Hasselhoff - Feliz Navidad
Hermigervill - Eggjahvíta
Booka shade - Mandarine Girl

Þið sem voruð ekki að fatta að þetta var The Hoff að taka lagið... FAIL!!!

Stigafjöldi fyrir 2. umferð:

Danni 12 stig
Óli "skankmaster Flex" 10 stig
Krissi "GingerKitty" 10 stig
Franz "krúttið" 7 stig
Valli Druzin 6 stig
Maggi "Dilf" 5 stig
Úlli "snitch" 4 stig
Stjáni Bró 3 stig
Gunnar "Gébé" 0 stig


Heildarstig eftir 2 umferðir:

Óli "skankmaster Flex" 20 stig
Krissi "GingerKitty" 20 stig
Franz "krúttið" 19 stig
Valli Druzin 16 stig
Úlli "snitch" 14 stig
Danni 12 stig
Dolli 12 stig
Gunnar "Gébé" 10 stig
Grettir 10 stig
Stjáni Bró 9 stig
Arnþór "skræl" 7 stig
Þorgeir 5 stig
Maggi "Dilf" 5 stig



Ætla að skilja við ykkur með smá myndbroti sem ég sá í dag. Var e-ð að vafra og sá þar umræðu um smá "gjörning" sem átti sér víst stað á meðan Magni var að taka lagið Rockstar á sínum tíma. Það getur vel verið að einhver umræða hafi verið um þetta þá en hún fór þá allavega alveg framhjá mér... Endilega horfið á þetta brot og ekki blikka í kringum 2min og 28sek.....


Ef þú ert ekki að ná því sem ég er að tala um, þá er hér smá mynd til að einfalda þetta fyrir þig:



Góða helgi gott fólk!
Comments (7) | Trackbacks (0)
(Page 1 of 2, totaling 7 entries) » next page
 
Serendipity-Template by Vladimir Simovic (aka Perun)