
Hvað er betra í svona ástandi eins og ríkir nú á landinu en að vera með alstjórnandi geðsjúkling sem seðlabankastjóra sem flestir hafa ekki undan að kyssa rassgatið á og kokgleypa við öllu sem vellur uppúr honum, fjármálaráðherra sem er fyllibytta og dýralæknir og svo er forsætisráðherra okkar svona líka gáfulegt eintak eins og kemur vel fram í þessari frétt:
Geriekkineitt Haarde sýnir fagleg vinnubrögð á fréttamannafundi fyrir framan fjölmiðla frá mjög mörgum löndum
Hvað getur maður annað en haldið fram að þetta land okkar er að fara beint til helvítis og það með hraðlest. Held að þeir ættu bara að sleppa þessum daglegu fréttamannafundum og taka uppá því að vera bara með kareókí í staðin, Geir gæti byrjað á því að taka lagið "Highway to hell" með AC/DC.
Það er erfitt að fá sig til að blogga um nokkuð annað en þetta rugl sem er í gangi, ég skal samt reyna að koma með e-ð aðeins hressara. Fréttaljósmynd dagsins má sjá hér fyrir neðan eða með því að smella
hér, þetta er avleg frábær mynd og sá sem skrifaði þetta á skilið Thule.

Hvað ætlaru að gera í þessum ginger þarna til hægri? DANG!