Grettir var að senda mér þetta viddó rétt áðan, ég er hreinlega ekki viss hvað ég get skrifað með þessu.... Ég man back in the days þá átti maður það til að kíkja við á Kaffi Thomsen og þar voru oftar en ekki einstaklingar sem voru búnir að taka inn efni sem landlæknir mælir ekki með. Þau dans-move sem þeir einstaklingar voru að taka í einhverju lyfjamóki voru í raun alls ekki ólík þessum sporum sem við sjáum akkúrat hér:
Ég veit ekki með ykkur en ég fæ aldrei nóg af því að horfa á myndbrot sem sanna það að eru ekki nein takmörk fyrir því hvað fólk fær heimskulegar hugmyndir. Það er oft nokkuð gaman að spjá í því hvernig í andskotanum viðkomandi datt þetta í hug. Ef við skoðum þetta dæmi sem ég er með hér á eftir þá sjáum við hóp af strákum sem ákveða það að nota körfuboltakörfu sem "catapult" og skjóta viðkomandi upp á þak, but... why? Þetta er auðvitað frábærlega heimskuleg hugmynd og útkoman ætti ekki að koma neinum á óvart. Ekki nóg með það að hann rústaði anddlitinu á sér og líklegast gott betur þá stútaði hann einnig spjaldinu... epic failure!
Þegar "ástandið" er eins og það er þá er ekkert auðveldara en að falla niður á sama plan og margir aðrir, gera ekkert nema svekkja sig á aðstæðum og detta í þunglyndi og sjálfsvorkun. En hvað græðir maður á því? Akkúrat ekkert! Þegar maður er að væla yfir því hvað bílalánið hefur hækkað, matvörur og annað slíkt þá gleymir maður því hugsanlega að þetta er bara ekki það sem skiptir máli. Ég veit ekki með ykkur en ég get sagt það persónulega að núna finnur maður hvað ættingjar og vinir eru manni mikilvægir... og auðvitað gæludýrin líka... sorrý Móði.
Sjáið t.d. menn eins og Manuel Uribe frá Mexikó sem eitt sinn hélt þeim vafasama titli að vera feitasti maður í heimi þegar hann var rétt um 570kg! Í dag er hann hamingjusamur og nýlega giftur en það var alltaf smá vesen þar á bænum, meina... hvað er brúðkaup ef þú getur ekki "gengið frá" þeim díl almennilega með kynlífi? Hvernig stundar maður kynlíf með einhverri fasteign sem er rúmlega 1/2 tonn? Manuel er einn af þeim sem á góða vini samkvæmt þessari frétt. Hann Manni, eins og ég hef ákveðið að kalla hann, tók sig nú að vísu heldur betur á fyrir brúðkaupið og léttist um 270kg og er í dag því rétt um 300kg sem er samt alveg fáránlega mikið. Konan hans er ekki beint nein Mary-Kate Olsen en samt ekki nægilega hraust til að tækla 300kg, svo mikið er alveg staðfest. Manni er að vísu einn af þeim sem á góða vini og þeir tóku sig saman og smíðuðu "kynlífs-ramp" handa honum úr stáli og steypu enda þarf líklegast ekkert minna fyrir þessi 300kg. Þetta apparat náði s.s. að halla honum þannig að félaginn sá sólarljós (líklegast í fyrsta sinn síðan hann var barn) og þá gat eiginkona hans afgreitt rest... ok.. WTF! Einn... tveir... og.... myndskreyta!
Ef Manni getur tekið á lífinu með bros á vör, þá get ég það og þú líka!
Manni hress með konuna hjá sér, mynd líklegast tekin fyrir "athöfn"
Það vill nú gerast að þegar maður er búsettur tæplega 400 km frá borg óttans að maður missi af einhverju. Núna fyrir stuttu voru t.d. háværustu og fjölmennustu mótmælin hingað til, ég vissi af þeim þar sem m.a. ætluðu mótorhjólafólk að fjölmenna á hjólum sem var frábært. Ég horfði á fréttir og það eina sem ég sá var e-ð af fólki og svo nokkrir hippar að slást aðeins við lögreglumenn og svo einhver að flagga Bónus fána á Alþingishúsinu... voru þetta virkilega mótmælin? Í dag er maður svo að vafra um netið til að sjá hvað maður getur séð af þessu og þá rekst maður á þetta:
Ég verð að játa það að ég sá ekki þessar myndir í fréttum, flott samstaða þarna hjá hjólafólki! En þá er það spurningin... Af hverju sá ég ekki þetta í fréttum? Var ég hugsanlega það óheppinn að ég sá bara það neikvæða eða er umfjöllun fjölmiðla hreinlega bara hlutdræg og óréttlát?
Ég skora allavega á alla að mæta í næstu mótmæli en jafnframt sleppa því að reyna að vera einhver Batman... fjölmenni og læti, ekki drama og rugl.
Ég er alveg nokkuð viss um það að þetta sé persónulegt met í því að vera latur í að blogga enda hef ég fengið að heyra það í gegnum MSN núna undanfarið. Ég er á því að þetta sé allt eftirfarandu hlutum að kenna... efnahagsástandinu, fjarnámi og fésbók! Þetta skítuga ástand er að gefa manni blæðandi magasár og svo er maður að reyna að vinna upp gamlar skuldir í fjarnámi á meðan allt þetta er í gangi... shiii.
Er það bara ég eða hleypur Steven Seagal eins og rjómi? Ég er ekki frá því að hann hafi tapað alveg svona 46 rokkstigum á þessu myndbandi... dang, he runs like a bitch!
Annars stefnir allt í fjör næstu helgar hér á AYE, Murgusinn að koma þessa helgina með frolluna sína og skott hlaðið af sterku áfengi og svo er það Mrs. Smith næstu helgi með fótanuddtækið sitt og flösku af brandy.... vonum ekki samt.
Endilega hættið samt þessu kreppuvæli gott fólk og notið frekar orku ykkar í að vera góð við vini ykkar, stunda kynlíf eða gera e-ð annað skemmtilegt. Þetta væl í öllum er að gera mann alveg gjörsamlega snar, sé ekki hvað fólk vonast til að græða á sjálfsvorkun og væli. Skellið ykkur á torrent eða Youtube og náið þar í þætti sem heita Wipeout, það er EKKERT betra í að fá mann til að brosa heldur en fólk að fokka sér upp duglega, ef þið getið horft á þátt 5 í þessari seríu t.d. án þess að brosa þá er kominn tími á að kveðja held ég... vá hvað þetta er gott sjónvarpsefni!
Hér er eitt besta move sem sést hefur í þessari seríu:
Þetta er s.s. maður sem heitir Jacob Mann og er í dag legend eftir frammistöðu sína í Wipeout. Hann varð í raun frægur fyrir það að notast við orðin "crunch time" áður en hann tók þátt og rústaði svo á sér stellinu... ég ætla bara að láta ykkur um að sjá þetta með eigin augum:
Við erum að tala um að kauði byrjar á því að fá gott högg beint í hreðjarnar svo fer hann í splitt sem hann klárlega ætlar sér ekki að gera, skallar á sér hnéið og kremur hreðjarnar á sér...AFTUR! Ég kúgaðist úr hlátri þegar ég sá þetta fyrst... hahaha!! Kauði endar svo þessa glæsilegu þáttöku sína í þessum leik með því að leggjast flatur og hætta svo vegna ógleði... skiljanlega, hverjum væri ekki óglatt eftir svona meðferð á pung?