Persónulegt met... I know

www.5aur.net

Random Image

IMG_0243.JPG

Archives

January 2009
December 2008
November 2008
October 2008
September 2008
Recent...
Older...

Hlekkir

Gí$li
Don Gunnar
Krissi
Úlli
Fannar Fnasi og Katrín
Baldvin
Atli Y
Steini "Verzló"
Pétur Björn
Ómar Diego
Valli
oskarsdottir.com
Árdýz
Egill "Gillz"
Guðfinnur
Búri
Birna
Karen og Bjöggi


Fullur.is
Belladonnur
Hjallarnir.is
Saumaklúbburinn
The Ladies
Skurrarnir
Skvettuskvísur
Tígrarnir
Suberstar

Syndicate This Blog

ATOM/XML ATOM 1.0 feed

Blog Administration

Open login screen

Thursday, November 6. 2008

Persónulegt met... I know

Posted by Biggi Gringo at 16:16
Ég er alveg nokkuð viss um það að þetta sé persónulegt met í því að vera latur í að blogga enda hef ég fengið að heyra það í gegnum MSN núna undanfarið. Ég er á því að þetta sé allt eftirfarandu hlutum að kenna... efnahagsástandinu, fjarnámi og fésbók! Þetta skítuga ástand er að gefa manni blæðandi magasár og svo er maður að reyna að vinna upp gamlar skuldir í fjarnámi á meðan allt þetta er í gangi... shiii.

Er það bara ég eða hleypur Steven Seagal eins og rjómi? Ég er ekki frá því að hann hafi tapað alveg svona 46 rokkstigum á þessu myndbandi... dang, he runs like a bitch!


Annars stefnir allt í fjör næstu helgar hér á AYE, Murgusinn að koma þessa helgina með frolluna sína og skott hlaðið af sterku áfengi og svo er það Mrs. Smith næstu helgi með fótanuddtækið sitt og flösku af brandy.... vonum ekki samt.

Endilega hættið samt þessu kreppuvæli gott fólk og notið frekar orku ykkar í að vera góð við vini ykkar, stunda kynlíf eða gera e-ð annað skemmtilegt. Þetta væl í öllum er að gera mann alveg gjörsamlega snar, sé ekki hvað fólk vonast til að græða á sjálfsvorkun og væli. Skellið ykkur á torrent eða Youtube og náið þar í þætti sem heita Wipeout, það er EKKERT betra í að fá mann til að brosa heldur en fólk að fokka sér upp duglega, ef þið getið horft á þátt 5 í þessari seríu t.d. án þess að brosa þá er kominn tími á að kveðja held ég... vá hvað þetta er gott sjónvarpsefni!

Hér er eitt besta move sem sést hefur í þessari seríu:

Þetta er s.s. maður sem heitir Jacob Mann og er í dag legend eftir frammistöðu sína í Wipeout. Hann varð í raun frægur fyrir það að notast við orðin "crunch time" áður en hann tók þátt og rústaði svo á sér stellinu... ég ætla bara að láta ykkur um að sjá þetta með eigin augum:



Við erum að tala um að kauði byrjar á því að fá gott högg beint í hreðjarnar svo fer hann í splitt sem hann klárlega ætlar sér ekki að gera, skallar á sér hnéið og kremur hreðjarnar á sér...AFTUR! Ég kúgaðist úr hlátri þegar ég sá þetta fyrst... hahaha!! Kauði endar svo þessa glæsilegu þáttöku sína í þessum leik með því að leggjast flatur og hætta svo vegna ógleði... skiljanlega, hverjum væri ekki óglatt eftir svona meðferð á pung?

Maður dagsins.... Jacob "crunch time" Mann
Comment (1) | Trackbacks (0)

Comments
Display comments as (Linear | Threaded)

Þetta er á efa flottasta splitt sem ég hef séð, grenjaði yfir þessu. Þessi kauði er kláralega gáfaða týpan, fórnar sér algjörlega.
#1 Halldór Eggertsson on 2008-11-06 17:58 (Reply)

Add Comment

Enclosing asterisks marks text as bold (*word*), underscore are made via _word_.
Standard emoticons like :-) and ;-) are converted to images.
E-Mail addresses will not be displayed and will only be used for E-Mail notifications

To prevent automated Bots from commentspamming, please enter the string you see in the image below in the appropriate input box. Your comment will only be submitted if the strings match. Please ensure that your browser supports and accepts cookies, or your comment cannot be verified correctly.
CAPTCHA 1CAPTCHA 2CAPTCHA 3CAPTCHA 4CAPTCHA 5


 
 
 
Serendipity-Template by Vladimir Simovic (aka Perun)