Thursday, April 16. 2009
LOST
Posted by Biggi Gringo
at
10:26
Hér er þetta viðtal... spjall... bull...

Ástþór í "viðtali" á RÚV
Ástþór er greinilega alls ekki í jafnvægi þegar hann mætir í þetta viðtal þar sem hann er svo augljóslega búinn að ákveða það áður en þetta byrjar að hann ætlar svo sannarlega að drulla yfir allt og alla. Það er bara svo erfitt og í raun varla hægt að taka nokkuð mark á manni sem hefur greinilega ekki stjórn á sér. Strax í byrjun byrjar hann á einhverjum samsæriskenningum varðandi ritskoðun og einelti. "þú þarft að henda mér út með valdi" kemur Ástþór með eftir aðeins um 50sek og eina spurningu! Sá sem er að spurja Ástþór þarna kemur með fullkomlega eðlilega spurningu til að byrja þetta spjall og fær bara dólgslæti, dónaskap og rugl í andlitið frá Ástþóri sem er alveg magnað.
Það fyndnasta við þetta allt saman finnst mér persónulega vera það hversu lost hann Ástþór virðist vera í hugtökum. Hann reynir að halda því fram að hann sé að bera út boðskað lýðræðis en kemur svo með fullyrðingar varðandi það að ef hann væri við völd, þá væru allir þessir útrásarvíkingar lokaðir inni. Þetta minnir mig meira á einræði en lýðræði... er ég einn um það?
"ef ég kemst hér til valda, þá fara útrásarvíkingarnir í fangelsi, þeir verða handteknir og settir í gæsluvarðhald og ef lögreglustjórinn gerir það ekki með mig yfir stjórnarráðinu þá verður hann rekinn... strax!"
Já Ástþór... svona virkar einmitt lýðræði... flottur
Fyrir utan það að biturð, reiði og æsingur virðist alveg stjórna honum þá er afar erfitt að horfa framhjá því að framkoma hans í þessu viðtali er hreinlega til skammar. Freyr Eyjólfsson, sem er þarna í raun bara fórnarlamb hans þarna reynir að vera faglegur og kurteis en fær í andlitið dólgslæti, dónaskap og hálfgerða geðveiki hreinlega.
Þetta er bara mitt persónulega álit, endilega hlustið á þetta og dæmið sjálf en ég er á því að einhver þurfi að hringja á vælubílinn fyrir Ástþór og það strax í gær.

Lýðræði er að henda öllum í steininn sem hafa uppi ranghugmyndir.... minnir mig á Sovétríkin sálugu.
Markt af því sem þessi maður var að segja er nákvæmlega það sem fólk er að tala um sýn á milli, inná kaffistofum og heima hjá sér, en hvort að þessi maður sé sá rétti til að bera út þennan boðskap er svo allt annar handleggur..
..svo ekki sé talað um aðferðarfræðina.
Skil ekki að maðurinn eigi ekki aðstandendur sem stoppi hann af áður en hann fer svona langt með þessa vitleysu.