Thursday, April 16. 2009
LOST
Posted by Biggi Gringo
at
10:26
Hér er þetta viðtal... spjall... bull...

Ástþór í "viðtali" á RÚV
Ástþór er greinilega alls ekki í jafnvægi þegar hann mætir í þetta viðtal þar sem hann er svo augljóslega búinn að ákveða það áður en þetta byrjar að hann ætlar svo sannarlega að drulla yfir allt og alla. Það er bara svo erfitt og í raun varla hægt að taka nokkuð mark á manni sem hefur greinilega ekki stjórn á sér. Strax í byrjun byrjar hann á einhverjum samsæriskenningum varðandi ritskoðun og einelti. "þú þarft að henda mér út með valdi" kemur Ástþór með eftir aðeins um 50sek og eina spurningu! Sá sem er að spurja Ástþór þarna kemur með fullkomlega eðlilega spurningu til að byrja þetta spjall og fær bara dólgslæti, dónaskap og rugl í andlitið frá Ástþóri sem er alveg magnað.
Það fyndnasta við þetta allt saman finnst mér persónulega vera það hversu lost hann Ástþór virðist vera í hugtökum. Hann reynir að halda því fram að hann sé að bera út boðskað lýðræðis en kemur svo með fullyrðingar varðandi það að ef hann væri við völd, þá væru allir þessir útrásarvíkingar lokaðir inni. Þetta minnir mig meira á einræði en lýðræði... er ég einn um það?
"ef ég kemst hér til valda, þá fara útrásarvíkingarnir í fangelsi, þeir verða handteknir og settir í gæsluvarðhald og ef lögreglustjórinn gerir það ekki með mig yfir stjórnarráðinu þá verður hann rekinn... strax!"
Já Ástþór... svona virkar einmitt lýðræði... flottur
Fyrir utan það að biturð, reiði og æsingur virðist alveg stjórna honum þá er afar erfitt að horfa framhjá því að framkoma hans í þessu viðtali er hreinlega til skammar. Freyr Eyjólfsson, sem er þarna í raun bara fórnarlamb hans þarna reynir að vera faglegur og kurteis en fær í andlitið dólgslæti, dónaskap og hálfgerða geðveiki hreinlega.
Þetta er bara mitt persónulega álit, endilega hlustið á þetta og dæmið sjálf en ég er á því að einhver þurfi að hringja á vælubílinn fyrir Ástþór og það strax í gær.
Wednesday, April 15. 2009
Ha ég? Kjósa?
Posted by Biggi Gringo
at
11:06
Ef við höldum okkur bara við þá röð sem var í síðasta bloggi og byrjum þá á…
Sjálfstæðisflokkurinn
Þessi flokkur er nú búinn að vera við völd hér á Íslandi í mjög mörg ár og nánast öll þeirra í samstarfi við Framsókn. Ég man mjög vel rök þeirra sjálfstæðismanna sem ég þekki fyrir síðustu kosningar. Þá var allt það góða sem var í gangi hreinlega í boði þeirra og þetta góðæðri var uppskera þeirra vinnu og vinnubragða. Fyndið að þegar þessi spilaborg hrundi hvað þetta var allt í einu allt svo mikið minna í þeirra boði eða partur af þeirra uppskeru heldur bara einhverjir útrásarvíkingar sem drulluðu upp á bak og svo erum við fórnarlömb kreppu sem er alþjóðleg… af hverju er þá ástandið svona mikið verra hér en í kringum okkur? Það er efniviður í heila bók að fara yfir allt þannig að ég ætla að taka út það sem ég flokka sem helstu ástæður þess að ég ætla ekki að setja mitt X við D.
- Ástandið í landinu
Hverjum er það mögulega öðrum að kenna en akkúrat þeim sem stjórnuðu í öll þessi ár og lögðu grunn af þessari bólu sem sprakk svo svakalega í andlitið á okkur? Er ekki kominn tími á að gefa þessu fólki hvíld frá stjórnun?
- Bjarni Ben formaður og í 1. sæti í suðvestur
Þetta minnir mig meira á ræktun hunda þar sem ættbók skiptir öllu en stjórnmál, hann er beint af gamla skólanum og er í raun bara ung klónuð útgáfa af Davíð eða Geir. Ég hefði viljað sjá eitthvað ferskara þarna inn en það gerðist ekki.
- Óþefur og mútur
Það er nokkuð magnaður óþefur af mörgum vinnubrögðum Sjálfstæðisflokksins undanfarin ár , ég nenni ekki að fara að telja þetta allt upp en ef þessi umræða um mútugreiðslur núna undanfarið hefur alfarið farið framhjá þér, þá er ég ekki viss um að þú eigir að vera með atkvæðisrétt. Hvað er mögulega eðlilegt við það að tvö fyrirtæki gefa 60 milljónir króna á einu bretti rétt áður en lögum er breytt um hámark? Þetta tengist örugglega ekkert neinu öðru.. nei nei.. bara gjafmildir einstaklingar… riiight! Hversu heppilegt er það líka að sá maður sem er hættur í stjórnmálum (Geir Haarde) er til í að taka alla sökina á sig, djöfulsins bull og það er svo vandræðalega áberandi að þessi flokkur virðist treysta á gleymsku og heimsku kjósenda.

Ég skil vel þá einstaklinga sem telja að stefna Sjálfstæðisflokksins sé sú besta, þegar maður les heimasíður þessara flokka þá get ég alveg tekið undir það að stefna þeirra hljómar vel og jafnvel best í mínum huga en…. Er verið að fylgja þessari stefnu? Eru nægilega gáfulegir einstaklingar að starfa fyrir flokkinn? Sjálfstæðisflokkurinn er sá flokkur sem hefur drullað mest upp á bak og til að toppa það allt koma upp dæmi um spillingu, klíkuskap og mútur. Hvernig getur fólk trúað svona blindandi á einhverja stefnu og sett nafn sitt við svona… tja… bull? Er nóg fyrir flokk að fá vel skrifandi einstaklinga til að setja saman einhverja stefnu og þá fá þeir atkvæði? Ég vona að fólk dæmi frekar vinnubrögð en stefnur.
Hér er svo samantekt, sem er algjört meistaraverk!
Wednesday, April 8. 2009
Lærum af fortíð og hugsun sjálfstætt!
Posted by Biggi Gringo
at
16:39
Íslendingar eru auðvitað einnig heimsmeistarar í því að gleyma, það er nú þannig að ef einhver gerir e-ð af sér þá eru allir gjörsamlega snar, vilja hengja viðkomandi helst í gær en svo nokkrum dögum eða vikum seinna þá er allt í besta lagi. Bestu dæmi um það nýlega eru t.d. Árni Johnsen. Maðurinn er þjófur og fjárglæpamaður en stoppað það pakkið á suðurlandi í að koma honum beint aftur á þing? Ónei! Það er auðvitað ekkert betra en að vera með siðblinda fjárglæpatröllið úr Eyjum á alþingi á svona tímum. “Hann hugsar um okkar hag” vælir svo þetta lið sem merkir við nafn hans á kjörseðlinum, er það staðreynd eða er það e-ð sem Árni er búinn að vera að vinna í núna í mörg ár að troða inn í hausinn á fólki með furðulegum fréttum og bulli? Söng og þjófa útaf alþingi takk!
Núna ætla ég að varpa fram nokkrum spurningum… Hefur þú skoðað hvaða folk er í framboði? Hefur þú spáð í málefni flokka? Hefur þú velt því fyrir þér hverjir bera ábyrgð á þessari stöðu sem landið er í? Hefur þú spáð í eigin framtíð?
Þetta er svona smá brot af því sem maður hefur verið að velta fyrir sér undanfarið þar sem ég er búsettur eins og er á Akureyri en með lögheimili í Kópavogi þá ætla ég mér að kjósa núna strax eftir páska. Ég hef því verið að skoða framboðslista flokka, heimasíður og annað slíkt undanfarið og velt því nokkuð duglega fyrir mér hvað ég ætla að gera við mitt atkvæði. Fyrir ykkur sem eruð í suðvesturkjördæmi (lesist Kópavogur og klink) getið kíkt á eftirfarandi slóðir (nei, þetta er ekki í neinni spes röð):
Sjálfstæðisflokkurinn
Vinstri Grænir
Framsókn
Samfylking
Ef þú ert að spá í því af hverju ég er ekki að linka á önnur framboð þá er ástæðan mín einföld. Ég hef ekki áhuga á því að sóa mínu atkvæði í einhver lítil framboð sem hreinlega eiga ekki séns og innihalda oftar en ekki einhverja óvita (lesist Sturla) og/eða rugludalla (lesist Ástþór).
Þetta er nú að verða ágætlega langt hjá mér en í næsta bloggi ætla ég að fara aðeins nánar í mitt alit á þessum listum og fólkinu sem er á þeim í þeirri von að það fái ykkur hugsanlega til að velta þessu aðeins fyrir ykkur… enda ekki nema 17 dagar í einar mikilvægustu kosningar sem haldnar hafa verið.
Friday, March 27. 2009
Þessar djö... ryksugur!
Posted by Biggi Gringo
at
21:59
« previous page
(Page 2 of 135, totaling 675 entries)
» next page

